Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 2
2 3. maí 2019FRÉTTIR
sem afsökuðu sig með áfengi
Sagt er að
allir stjórn
málamenn eigi
eitt meðferðar
spjald. Það er að
þeir geti afsakað
brot eða axarskaft með
áfengisneyslu. Þeir sem lenda í
þessari aðstöðu viðurkenna yfirleitt
dómgreindarbrest, EN þeir hafi nú
verið fullir og eigi þar af leiðandi við
vandamál að stríða. Ágúst Ólafur
Ágústsson, þingmaður Samfylk
ingarinnar, snýr nú aftur eftir áfeng
ismeðferð hjá SÁÁ. Var það eftir að
blaðakonan Bára Huld Beck, hjá
Kjarnanum, greindi frá kynferðis
legri áreitni Ágústs. Siðanefnd
Samfylkingarinnar áminnti Ágúst í
kjölfarið. Hér eru 5 stjórnmálamenn
sem notuðu áfengisneyslu sem
afsökun.
Björgvin G.
Sigurðsson
Viðskiptaráðherrann
fyrrverandi lét af
störfum sem sveitar
stjóri Ásahrepps árið
2015 eftir að hann
nýtti greiðslukort
sveitarfélagsins til
persónulegra nota.
Neitaði Björgvin að um
ásetningsbrot væri að
ræða en sagðist hafa
gerst sekur um dóm
greindarbrest. Mætti
rekja það til áfengis
neyslu og ætlaði hann
því í meðferð.
Eyþór Arnalds
Árið 2006 keyrði Eyþór
Arnalds, núverandi
borgarfulltrúi,
ölvaður á ljósastaur
við Kleppsveg og flúði
af vettvangi. Var það í
kjölfar sveitarstjórnar
kosninga og Eyþór var
oddviti Sjálfstæðis
flokksins í Árborg. Í
kjölfarið dró hann sig
úr kosningabaráttunni
og fór í meðferð.
Bergþór Ólason
Klausturbróðir
Gunnars, Bergþór
Ólason, var hvað
orðljótastur á Klaustri.
Um Lilju Alfreðsdóttur
menntamálaráðherra
sagði hann: „Þarna
loksins kom skrokkur
sem typpið á mér
dugði í.“ Bergþór lét
ekki ná í sig lengi
eftir uppákomuna en
sneri síðan til baka og
sagðist hafa átt viðtöl
við áfengisráðgjafa.
Hann ætlaði þó ekki í
meðferð til að haka í
einhver box.
Gunnar Bragi
Sveinsson
Utanríkisráðherrann
fyrrverandi var sá
sem talaði hvað hæst
og digurbarkalegast
á Klaustri bar í nóv
ember síðastliðnum.
Viðurkenndi hann til
að mynda að hafa
skipað Geir H. Haarde
sem sendiherra til að
eiga greiða inni hjá
Sjálfstæðismönnum.
Í viðtali hjá Hring
braut sagðist Gunnar
hafa farið í algjört
„blackout“ og hefði
ekkert munað eftir
kvöldinu.
Sigurður Kári
Kristjánsson
Sigurður Kári var
nýkjörinn á þing,
árið 2003, þegar
upp komast að hann
hefði misst bílprófið
vegna ölvunaraksturs.
Sigurður sagðist hins
vegar hafa sest of
snemma undir stýri,
daginn eftir drykkju.
Hann er nú meðeig
andi lögmannsstof
unnar sem rekur mál
Klaustur bræðra.
Á þessum degi,
3. apríl
1901 – kviknuðu eldar í Jacksonville í
Florída í Bandaríkjunum. Þegar loksins
tókst að slökkva í síðustu glæðunum
varð ljóst að um þriðju verstu hamfarir í
sögu Flórída var að ræða. Einnig var um
að ræða þriðja versta borgareldsvoðann
í Bandaríkjunum. Þeir tveir verstu áttu
sér stað í Chicago árið 1871 og í San
Francisco árið 1906.
Árið 1901 var stærstur hluti bygginga í
Jacksonville úr timbri og um þetta leyti
höfðu viðvarandi þurrkar geisað og því
um kjörinn eldsmat að ræða víða um
borgina.
Um hádegisbil tóku verkamenn í
Cleveland Fibre Factory sér hádegis
verðarhlé. Örfáum mínútum síðar bárust
glóðaragnir úr skorsteini nærliggjandi
húss í spánskan mosa (e. Spanish Moss)
sem lagður hafði verið út til þerris.
Verkamenn reyndu að slökkva eldinn
með vatni í fötum, það hafði alla jafna
nægt þegar eitthvað viðlíka henti. Í
þetta sinn fengu þeir ekki við neitt ráðið
og norðvestangola olli því að eldurinn
barst í nærliggjandi hús, eitt á fætur
öðru.
Á átta klukkustundum brunnu 146
húsalengjur til kaldra kola; meira en
2.368 byggingar, og 10.000 manns
misstu heimili sín.
Að sögn einbeittu slökkviliðsmenn sér
að því að hindra að eldarnir bærust í
hverfi hvítra þar í borg á meðan hverfi
blökkufólks urðu logunum að bráð. Sjö
manns misstu lífið.
Síðustu orðin
„Allar eigur mínar fyrir eitt
andartak.“
– Elísabet I. Englandsdrottning
(1533–1603)
Hvað er Gerður
að horfa á?
G
erður Huld Arinbjarnar-
dóttir eða Gerður í Blush,
eins og hún er oftast köll-
uð, er ung og hörkudug-
leg athafnakona sem stofnaði fyr-
irtækið sitt Blush.is þegar hún
var aðeins 21 árs gömul. Þar hef-
ur hún til sölu hin ýmsu tæki til
hjálpar ástarlífinu og hefur Gerður
opnað umræðuna um kynlíf mikið
hérlendis.
Hvað ert þú að horfa á?
Ég er að horfa á GOT. Var að byrja
á fyrstu seríu því það virðast all-
ir vera að horfa á það svo ég varð
að komast að því hverju ég væri að
missa af. Mér finnst þetta byrja vel
en þó frekar mikið af upplýsing-
um sem maður þarf að meðtaka
svo maður þarf að fylgjast vel með
til að ná samhenginu og kynnast
karakterunum.
Ég er líka að horfa á þætti sem
heita The Act sem eru um Gypsy
Rose sem myrti móður sína,
þættirnir eru sannsögulegir og
mjög átakanlegir að horfa á. Ég á
það til að lifa mig aðeins of mikið
inn í þættina svo ég tek bara einn
og einn af þeim þegar ég er í stuði,
en þættirnir eru alveg magnað-
ir og ótrúlegt að svona hlutir geti
gerst í alvörunni.
Önnur sería sem ég var að klára
núna heitir Imposters og hún er
æðisleg. Þættirnir fjalla um konu
sem giftist mönnum og lætur sig
svo hverfa með
peninga þeirra.
Ég datt alveg
inn í þá þætti,
þeir eru svona
aðeins létt-
ari en hinir
þættirnir, og
auðveldara
að horfa
á marga í
einu.“
LOF & LAST
– Plokkarar og Isavia
Lof vikunnar fá plokkarar. Stóri
plokkdagurinn var haldinn
sunnudaginn 28. apríl um allt
land og mátti sjá gulvestaða
plokkara úti um alla
koppa og grundir. Þétt
býlið kemur alltaf skítugt
undan vetri og rusl liggur
eins og hráviði alls staðar. Þetta
átak er því kærkomin upplyfting
fyrir sumarið, bætir líðan okkar og
þeirra ferðamanna sem hingað
koma. Á þessum tímum verðum
við að beita öllum ráðum til að
halda í þá. Þau sem skelltu sér í
vesti og óðu inn í runna með poka
og prik eiga hrós skilið.
Last vikunnar fær Isavia. Isavia
er með allt niður um sig í málum
sem tengjast WOW air. Kyrrsetti
ríkisfyrirtækið vél sem
flugfélagið var með á leigu
sem veð fyrir milljarða
króna skuld félagsins.
Byggt á því veitti stjórn
Isavia forstjóranum heimild til
að lána annan milljarð króna.
Verða það að teljast ansi vafasöm
vinnubrögð að kyrrsetja eignir
óviðkomandi aðila og lítill sómi að
því fyrir Ísland.
Orðið á götunni:
Þingmönnum
leyft að sitja hjá
O
rðið á götunni er að
andstaðan við þriðja
orkupakkann sé svo
mikil innan Sjálfstæð-
isflokksins að málamiðlan-
ir verði að gera og leyfa eins-
tökum þingmönnum að leggja
ekki blessun sína yfir hann. Þá
helst íhaldssömum þingmönn-
um. Sömu sögu er hægt að
segja innan Framsóknarflokks-
ins þar sem grasrótin er ekki á
einu máli um ágæti pakkans og
valdaframsal til ESA.
Nýlega greindi Ásmundur
Friðriksson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi, að hann hygðist ekki
styðja þingsályktunartillöguna
um innleiðingu orkupakkans.
Ásmundur vildi þó ekki tjá sig
mikið um hvernig hann myndi
leggjast gegn tillögunni. Hugs-
anlega sitja hjá eða vera fjarver-
andi þegar kosið yrði. Ólíklegt
verður að teljast að hann kjósi
gegn henni.
Á þingi er yfirgnæfandi
meirihluti með tillögunni,
bæði frá stjórn og stjórnarand-
stöðu. Aðeins Miðflokkurinn
og Flokkur fólksins hafa sýnt
henni mikla andstöðu. Ef þetta
er reiknað eftir flokkslínum sést
að 52 þingmenn ættu að vera
samþykkir en aðeins 11 á móti.
Þessi staða leyfir ríkisstjórninni
að slaka á klónni gagnvart eins-
taka þingmönnum og senni-
lega yrði það til að lægja inn-
anflokksátök að einhverju leyti.
Fleiri þingmenn gætu bæst í
hópinn sem fá að sitja hjá eða
vera fjarverandi. Þá helst Páll
Magnússon, Njáll Trausti Frið-
bertsson, Jón Gunnarsson,
Óli Björn Kárason og Brynjar
Níelsson. Hjá Framsóknar-
flokki koma ýmis nöfn til
greina. Þá helst Halla Signý
Kristjánsdóttir og Silja Dögg
Gunnarsdóttir.