Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 56
3. maí 2019 18. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Míga, skíta, skeina? Sigurður Magnús er aðdáandi Game of Thrones S igurður Magnús Sigurðsson er einn af fjölmörgum aðdáendum sjónvarpsþátt- anna Game of Thrones, en áttunda og síðasta þáttaröð er nú í sýningu. „Ég er mikill GOT- aðdáandi og er að endurlesa bækurnar núna. Var að klára að lesa aftur þriðju bókina og á þar með eftir tvær bækur af fimm,“ segir Sigurður, sem er 34 ára, búsettur í Philadelphiu í Bandaríkjunum, þar sem hann starfar við umsýslu fasteigna. „Ég rek fasteignir fyrir önnur fyrirtæki og er nýbúinn að fá nýja stöðu, þar sem ég vinn á Manhattan í New York.“ Í tilefni af síðustu þáttaröð Game of Thrones ákvað Sigurður að bregða á leik og útbjó dánar- borð með persónum síðustu þáttaraðarinnar. Sigurður klippti út mynd af hverri persónu og þegar viðkomandi deyr kveikir hann á kerti fyrir viðkomandi. „Við eigum von á miklum dauðsföllum. Game Of Thrones á það til að láta persónur í sögunni deyja, oft á mjög hryllilegan hátt.“ En er líf eftir GOT? „Hugsanlega. Ég er að bíða eftir næstu tveim bókum, en George R.R. Martin er að klára að skrifa síðustu tvær bækurnar, en þær eiga að verða sjö samtals,“ segir Sigurður. „Þannig að þetta er ekki búið. Það er líka mikilvægt að benda á að bækurnar eru mjög ólíkar þáttunum og það eru mun fleiri persónur í bókunum. Það er líka talað um að HBO- sjónvarpsstöðin ætli að gera „spin-off“-þátta- röð, sem mun gerast í Game of Thrones-heiminum, en í annarri tímalínu.“ Það er því ljóst að Sigurður og fleiri aðdáendur þáttanna þurfa ekki að örvænta alveg strax, við hin sem enn höfum ekki tekið ástfóstri við GOT eigum margt í vændum. Ósmekkleg Hildur H ildur Lilli- endahl Viggós- dóttir, verk efnisstjóri hjá Reykjavíkurborg, birti nýlega myndir af fyrrverandi ráðherrum sem gagnrýndu þriðja orkupakkann og spurði: Ríða, drepa, giftast? Vissulega er þetta einsleitur hópur stjórnmálamanna, aldn- ir karlmenn og íhaldssamir, og margir hafa hent grín að því. Þetta grín Hildar er hins vegar svo ósmekklegt að verstu striga- kjaftar hefðu veigrað sér við því að fleygja slíku fram opin- berlega. Vel má snúa þessu við í tilbúnu dæmi. Að ungar kon- ur hefðu birt saman yfirlýsingu og eldri maður, í sama starfi og Hildur, hefði spurt: Ríða, drepa, giftast? Yrði honum vært í starfi eftir það? Hvernig hefði Hildur brugðist við? Auð herbergi í Víðinesi E kki eru öll herbergi í húsnæðinu í Víðinesi leigð út. Vistmenn segja að lengst af í vetur hafi tvö herbergi staðið laus en nú séu þau fjögur. Borgin vill ekki taka fleiri þar inn þar sem um tilraunaverkefni sé að ræða. Í vetur falaðist Landspítalinn eftir því að sjúklingur sem þar lá inni kæmist á Víðines en fékk synjun hjá borginni. Í svari frá borginni stóð að borgin myndi frekar aðstoða núverandi íbúa að komast í varanlega búsetu. Mikil óvissa ríkir um framtíð fólksins í Víðinesi, frestur hefur verið framlengdur og fundir haldnir án nokkurrar niðurstöðu. Vandræða- gangurinn heldur því áfram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.