Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 30
Sumarið 3. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ HVAMMSHÓLAR EHF: Allt að 99% hreinsun á skólpi Fjölskyldufyrirtækið Hvamms­hólar ehf. sérhæfir sig í hreinsun á skólpi og býður upp á fjölbreyttar lausnir á því sviði fyrir ólíka viðskiptavini. Eigandi Hvammshóla ehf. er Sigurður Viggó Halldórsson pípulagningarmeistari en hann hefur sérhæft sig í upp­ setningu skólphreinsistöðva og ólíkum aðferðum við hreinsun á skólpi síðastliðin 15 ár. Ásamt því að selja hreinsistöðvar, bjóða Hvamms­ hólar einnig upp á viðhald, mælingar og eftirlit með gæðum hreinsunar. Hreinsistöðvar fyrirtækisins skila allt að 99% hreinsun þar sem tekið er á hreinsun á köfnunarefnum, fosfór og kólígerlum. Leiðandi á sviði skólptanka Árið 2013 hófst náið samstarf á þessu sviði með þýska fyrirtækinu Graf sem er leiðandi á þessu sviði og hefur framleitt skólptanka í yfir 50 ár. Þýska fyrirtækið styrkti sig enn frekar á þessu sviði árið 2014 með kaupum á fyrirtækinu Klaro sem framleiðir hreinsibúnað í tankana og því er um heildstæðar lausnir í hreinsun skólps að ræða. Þrjár lausnir Hvammshólar bjóða upp á þrjár mismunandi lausnir til skólp­ hreinsunar eftir stærð og umfangi þeirra frárennsliskerfa sem um er að ræða. Fyrirtækið hefur selt lausnir sínar fyrir t.d. hótel, íbúðar­ byggðir, sumarhús og heilsárshús og eru notendur Hvammshóla í Mývatnssveit, á Þingvöllum, í Eyjafirði, á Hornafirði og Öndverðarnesi, svo nokkrir staðir séu nefndir sem dæmi. Allt að 99% hreinsun Ódýrasta og einfaldasta lausnin er Graf ANAEROBIX rotþró með síu fyrir 1–600 íbúa. Hún hentar notendum sem vilja ódýra lausn en mikla hreinsun. Um er að ræða hreinsivirki sem hægt er að bæta við og stækka ef á þarf að halda vegna fjölgunar íbúa/notenda. Minnstu einingarnar eru 1 tankur en þegar um fleiri notendur er að ræða eru tankarnir raðtengdir sem seyrutankar, svifagnatankar og síutankar. Sían er staðsett við útrennslið. Hún er samsett af mörgum plastkubbum með stórum fleti sem grípa svifagnir sem eru á leiðinni út. Þessi aðferð skilar yfir 90% hreinsun. Hægt er að auka hreinsigetu ANAEROBIX með eftirhreinsun í siturgöngum t.d. úr rauðamöl eða vikri. Í næsta flokki er Graf One2clean hreinsistöð fyrir 5–50 íbúa og hreinsar hún með lífrænum hætti allt að 99%. Um er að ræða eitt tankhólf þar sem hreinsun fer fram tvisvar á sólarhring og hentar lausnin vel á þeim svæðum þar sem gerð er rík krafa um mikla hreinsun. Hægt er að bæta við búnaði sem viðheldur réttu rotnunarhitastigi í tanki allan ársins hring, þ.e. 10–12°C. Stærsta lausnin fyrir allt að 750 íbúa Fullkomnasta hreinsilausnin er Graf Klaro XXL skólphreinsikerfi fyrir 50–750 íbúa. Þetta er góður kostur þar sem vatnsstaða er mjög há, t.d. á viðkvæmum vatnsverndar­ svæðum þar sem talin er þörf á meiri umhverfisvernd vegna viðkvæmrar náttúru eða dýralífs. Graf Klaro XXL skilar allt að 99% hreinsun og fer hreinsunin fram með lífrænum hætti. Í aðalatriðum vinnur stöðin í tveim hólfum og skrefum. Fyrst er geymsla á óhreinsuðu skólpi í seyruhólfi. Þar á eftir er hreinsun á skólpi í lokuðu hreinsihólfi. Hreinsun fer fram fjórum sinnum á sólarhring. Ýmis auka­ búnaður fæst frá Graf sem hægt er að „prjóna“ við lausnina. Má þar telja búnað til lækkunar köfnunarefnis, til aukinnar fosfórhreinsunar og/eða til að fækka gerlum í hreinsuðu frá­ rennsli við útdælingu með UV geislun. Einnig fæst fjarstýrður eftirlits­ búnaður sem gefur upplýsingar um bilanir og stöðu, auk þess sem hægt er að bilanagreina og gera við með fjarrænum hætti. Nánari upplýsingar fást á Face- book-síðunni: Hvammshólar Netpóstur: siggi@hvammsholar.is Sími: 660-4085 Stærsta lausnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.