Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 24
Sumarið 3. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ REIÐHJÓLAVERZLUNIN BERLIN: Fyrir sjálfstæða og stíl- meðvitaða einstaklinga sem elska falleg reiðhjól Reiðhjólaverzlunin Berlin hefur skapaði sér nafn sem reiðhjólaverslun með meiru. Berlin sérhæfir sig í klassískum hjólum, vönduðum fylgihlutum og er með ýmsar aðrar fallegar vörur sem henta til daglegra nota. Einnig er verkstæði á staðnum og er tek- ið á móti öllum gerðum reiðhjóla til viðgerða, viðhalds, umfelgunar og samsetningar á hjólum „Við erum mikið í þessum klassísku vintage-hjólum, sem eru falleg útlits og höfða til fólks sem vill ekki hjóla í sérstökum hjólafötum heldur bara í venjulegum hversdags klæðnaði,“ segir Jón Óli Ólafsson, eigandi fyr- irtækisins og eini starfsmaðurinn. Meðal vinsælustu reiðhjóla hjá Berlín eru REID Ladies Classics og svo hjól undir merkinu Berlin. „Við viljum bjóða upp á einföld, einstök og skemmtileg hjól fyrir sjálf- stæða og stílmeðvitaða einstaklinga,“ segir Jón Óli. Berlin býður einnig reiðhjól frá Pure Cycles, Achille og Pashley. Nýjasta hjólamerkið er ítalska merkið Cinelli. Cinelli býður upp á alls konar útgáfur af samsetningum við stellið. Reiðhjólaverzlunin Berlin skipu- leggur og heldur utan um Tweed Ride. „Hér kemur fólk saman og hjólar í klassískum fötum og dragtir í anda breskra hefðarmanna og -kvenna. Hjólað er um á klassískum og virðu- legum borgarhjólum,“ segir Jón Óli um þennan skemmtilega viðburð. Gömul reiðhjól fá nýtt líf Óhætt er að segja að Jón Óli veiti góða og persónulega þjónustu en hann hefur meðal annars hjálpað viðskiptavinum að láta gömul reiðhjól öðlast nýtt líf. „Við höfum bjargað hérna hjólum frá allt aftur til 1950, og svo hjólum frá sjötta, sjöunda og áttunda áratugnum. Ef fólk kaupir aukahlutina hér set ég hjólin saman viðkomandi að kostnaðarlausu, en svo eru aðrir sem kjósa að gera þetta sjálfir en fá efni og þá aðstoð og ráð sem þeir vilja hjá mér,“ segir Jón Óli. Opið lengur með hækkandi sól Reiðhjólaverzlunin Berlin er til húsa að Ármúla 4. Núna 2. maí lengdist afgreiðslutíminn og er opið þriðju- daga–föstudaga frá 11 til 19 og laugardaga frá 11 til 17. Lokað er sunnudaga og mánudaga. Að sögn Jóns Óla fer áhuginn og aðsóknin að aukast upp úr miðjum mars en það fer þó eftir veðri. „Maður finnur fyrst fyrir auknum áhuga á vefsíðunni en fólk byrjar að skoða þar áður en það kemur á staðinn,“ segir Jón Óli en ágæt vefsíða verslunarinnar er á slóðinni reidhjola- verzlunin.is. „Það er mjög mikið að gera inn í júní, en síðan kemur dálítil sumar- leyfalægð í júlí. Í ágúst, september og október er síðan mikil traffík,“ segir hann, en Jón Óli finnur vel fyrir vaxandi áhuga á hjólreiðum allt árið. „Það er hægt að setja negld dekk undir flest hjól sem hér eru til sölu og það er algengt að fólk fari að spyrjast fyrir um slíkt með haustinu. Ég finn líka þá breytingu seinni árin að viðskiptavinir nefna þennan möguleika við mig að fyrra bragði.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.