Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Page 24
Sumarið 3. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
REIÐHJÓLAVERZLUNIN BERLIN:
Fyrir sjálfstæða og stíl-
meðvitaða einstaklinga
sem elska falleg reiðhjól
Reiðhjólaverzlunin Berlin hefur skapaði sér nafn sem reiðhjólaverslun með meiru.
Berlin sérhæfir sig í klassískum
hjólum, vönduðum fylgihlutum og
er með ýmsar aðrar fallegar vörur
sem henta til daglegra nota. Einnig
er verkstæði á staðnum og er tek-
ið á móti öllum gerðum reiðhjóla til
viðgerða, viðhalds, umfelgunar og
samsetningar á hjólum
„Við erum mikið í þessum klassísku
vintage-hjólum, sem eru falleg útlits
og höfða til fólks sem vill ekki hjóla í
sérstökum hjólafötum heldur bara
í venjulegum hversdags klæðnaði,“
segir Jón Óli Ólafsson, eigandi fyr-
irtækisins og eini starfsmaðurinn.
Meðal vinsælustu reiðhjóla hjá Berlín
eru REID Ladies Classics og svo hjól
undir merkinu Berlin.
„Við viljum bjóða upp á einföld,
einstök og skemmtileg hjól fyrir sjálf-
stæða og stílmeðvitaða einstaklinga,“
segir Jón Óli.
Berlin býður einnig reiðhjól frá Pure
Cycles, Achille og Pashley. Nýjasta
hjólamerkið er ítalska merkið Cinelli.
Cinelli býður upp á alls konar útgáfur
af samsetningum við stellið.
Reiðhjólaverzlunin Berlin skipu-
leggur og heldur utan um Tweed
Ride. „Hér kemur fólk saman og hjólar
í klassískum fötum og dragtir í anda
breskra hefðarmanna og -kvenna.
Hjólað er um á klassískum og virðu-
legum borgarhjólum,“ segir Jón Óli
um þennan skemmtilega viðburð.
Gömul reiðhjól fá nýtt líf
Óhætt er að segja að Jón Óli veiti
góða og persónulega þjónustu en
hann hefur meðal annars hjálpað
viðskiptavinum að láta gömul reiðhjól
öðlast nýtt líf. „Við höfum bjargað
hérna hjólum frá allt aftur til 1950,
og svo hjólum frá sjötta, sjöunda og
áttunda áratugnum. Ef fólk kaupir
aukahlutina hér set ég hjólin saman
viðkomandi að kostnaðarlausu, en
svo eru aðrir sem kjósa að gera þetta
sjálfir en fá efni og þá aðstoð og ráð
sem þeir vilja hjá mér,“ segir Jón Óli.
Opið lengur með hækkandi sól
Reiðhjólaverzlunin Berlin er til húsa
að Ármúla 4. Núna 2. maí lengdist
afgreiðslutíminn og er opið þriðju-
daga–föstudaga frá 11 til 19 og
laugardaga frá 11 til 17. Lokað er
sunnudaga og mánudaga.
Að sögn Jóns Óla fer áhuginn og
aðsóknin að aukast upp úr miðjum
mars en það fer þó eftir veðri. „Maður
finnur fyrst fyrir auknum áhuga á
vefsíðunni en fólk byrjar að skoða
þar áður en það kemur á staðinn,“
segir Jón Óli en ágæt vefsíða
verslunarinnar er á slóðinni reidhjola-
verzlunin.is.
„Það er mjög mikið að gera inn í
júní, en síðan kemur dálítil sumar-
leyfalægð í júlí. Í ágúst, september
og október er síðan mikil traffík,“
segir hann, en Jón Óli finnur vel fyrir
vaxandi áhuga á hjólreiðum allt árið.
„Það er hægt að setja negld dekk
undir flest hjól sem hér eru til sölu
og það er algengt að fólk fari að
spyrjast fyrir um slíkt með haustinu.
Ég finn líka þá breytingu seinni árin
að viðskiptavinir nefna þennan
möguleika við mig að fyrra bragði.“