Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 38
38 FÓKUS - VIÐTAL 3. maí 2019 E mbætti héraðssaksóknara rannsakar um þessar mund­ ir mál 25 ára konu sem lést fyrr í mánuðinum eftir af­ skipti lögreglu. Foreldrar stúlk­ unnar hafa gagnrýnt vinnubrögð lögreglumanna vegna atviksins og telja að röngum aðferðum hafi verið beitt. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem einstaklingur deyr hér á landi eftir afskipti lögreglu. Í september 2004 lést 33 ára karlmaður, Bjarki Haf­ þór Vilhjálmsson, eftir að hafa lent í átökum við lögregluna í Keflavík. Bjarki Hafþór fékk hjartaáfall í átökunum við lögreglumennina og lést á staðnum en atburðurinn átti sér stað við heimili hans að Ís­ hússtíg. Í kjölfarið fól Ríkissaksóknari lögreglunni í Reykjavík að rann­ saka málsatvik en niðurstaðan var sú að andlát Bjarka hefði ekki orðið vegna vinnubragða lögreglu. Krufning átti eftir að leiða í ljós að dánarorsök Bjarka var hjartastopp. Anna Hafbergsdóttir, móðir Bjarka, gagnrýndi lögregluna hins vegar harðlega og sagði í samtali við DV skömmu eftir atburðinn að lögreglan hefði drepið son henn­ ar. Tveimur árum síðar ræddi hún aftur við DV og var ennþá á sömu skoðun. „Það versta er að þetta mál var aldrei til lykta leitt. Það var aldrei rannsakað heldur var kærunni vísað frá. Ég las skýrslurnar í mál­ inu og það liggur í augum uppi að Bjarki fékk hjartaáfall og lést vegna meðferðarinnar. Hann var hraustur drengur sem hafði verið í íþróttum og það er alveg á hreinu að ungir menn fá ekki hjartaáfall upp úr þurru.“ Annað mál kom upp í lok árs 2007 en þá lést Jón Helgason, 31 árs gamall, tveggja barna fað­ ir úr Vogunum, á gjörgæsludeild Landspítalans. Jóni hafði verið haldið sofandi í öndunarvél í tæpa viku eftir að hann lenti í átökum við sveit lögreglumanna á hóteli í Reykjavík. Opinber dánarorsök Jóns var svokallað æsingsóráðsheilkenni, en um er að ræða sjúkdómsástand sem kemur fram þegar einstak­ lingur er að veita mikið viðnám eða mótspyrnu. Mikil óvissa ríkti hins vegar um andlát hans og spruttu upp getgátur um að Jón hefði látist vegna súrefnisskorts sem stafaði af harkalegu kverka­ taki lögreglumannanna sem tók­ ust á við hann. Fjölskylda Jóns steig nokkrum mánuðum seinna fram í sjónvarpsþættinum Komp­ ási þar sem leitað var nánari svara. Vitni sem DV ræddi við á sín­ um tíma töldu ljóst að lögreglu­ mennirnir hefðu beitt svokölluðu svæfingartaki sem hefði riðið Jóni að fullu. Þess vegna hefði Jón leg­ ið látinn í lögreglubíl í tíu mínútur án þess að lögreglumennirnir yrðu þess varir. Í samtali við DV sagði Geir Jón Þórisson aðstoðaryfir­ lögregluþjónn að slíku taki hefði ekki verið beitt. „Það tíðkaðist hér áður fyrr að lögreglumenn notuðu kverkatak, en það er löngu liðin tíð. Það er bannað að nota slík tök í dag.“ Réðust inn á hjón í brúðkaupsferð DV heldur áfram að rifja upp mál sem upp hafa komið hér á landi undanfarna áratugi þar sem lög­ regluembættið er sakað um harð­ ræði og ofbeldi. Í júlí 2013 réðst víkingasveitin inn í sumarbústað í Vaðnesi, skammt frá Selfossi, þar sem nýg­ iftu hjónin Ívar Aron Hill Ævarsson og Silja Sigurðardóttir voru stödd í brúðkaupsferð ásamt svaramanni Ívars, Hersi Má Jónssyni. Hjónin lögðu í kjölfarið fram kæru á hendur lögreglunni og kröfðust bóta fyrir ólögmæta og grófa aðför að friðhelgi einkalífs þeirra. Sögðu þau víkingasveitina hafi ráðist á þau, án viðvörunar, snúið þau niður og frelsissvipt í dágóðan tíma á meðan lögreglan leitaði í bústaðnum án heim ildar en aðfarirnar náðust á myndband. Ástæðan fyrir innrás víkinga­ sveitarinnar var leit lögreglunnar að síbrotamanninum Stefáni Loga Sívars syni sem talinn var dvelja í bústað hjónanna. Í samtali við DV á sínum tíma sögðust hjónin lítil sem engin tengsl hafa við Stefán. Fram kom að Ívar hefði verið góð­ kunningi lögreglunnar fimmtán ára aldri og hlotið fjölmarga refsi­ dóma fyrir margs konar lögbrot, en væri hins vegar búinn að vera edrú í marga mánuði og kominn á beinu brautina. Ívar sagðist hafa verið úti á palli þegar hann sá þyrlu Landhelgis­ gæslunnar sveima yfir bústaðn­ um. Kallaði hann á konu sína og svaramanninn sem komu út á pall. Í samtali við DV sagði Ívar víkingasveitarmennina hafa kom­ ið þeim algerlega að óvörum, á meðan þau voru að skoða þyrl­ una, og hafa ráðist að þeim án að­ vörunar. „Allt í einu heyrast bara öskur og þeir stökkva út úr trjánum með kylfurnar á lofti, og með byss­ ur á sér. Svo rjúka þeir að okkur og ég er keyrð ur niður. Lögreglu­ mennirnir fóru svo inn í húsið, að sögn án þess að sýna þeim leit­ arheimild og án þess að greina frá ástæðum hinnar ofsafengnu inn­ komu. „Þeir járna mig strax og þrýsta henni niður í gólfið.“ Þegar hjónin sáu víkinga­ sveitina hörfuðu þau inn í hús­ ið, þar sem þau voru snúin niður. „Hann var tæklaður í stofunni og ég í eldhúsinu,“ sagði Silja. Fram kom að þegar Silja lá á eldhús gólfinu með víkingasveit­ armann á bakinu, hefði hún snúið andliti sínu í átt að honum og spurt hvað væri í gangi. Þá hafi hún fengið tröllvaxna hendi í and­ litið á sér og því þrýst af miklu afli niður í gólfið. „Ég var með handarfar í heilan sólarhring eftir þetta. Ég hélt að hann ætlaði að lemja mig, því kylfan var á lofti.“ Hjónin sögðu lögreglumenn­ ina hafa þráspurt þau hvar Stefán væri niðurkominn en því gátu þau ekki svarað. Þau sögðu víkingasveitina síð­ an hafa látið sig hverfa um leið og hún hafði áttað sig á mistökunum. Hjónin sögðust aldrei hafa feng­ ið að sjá húsleitarheimild þó svo að lögreglumennirnir hefðu leitað alls staðar í bústaðnum. „Þeir sögðu bara að þetta væri „major fuck up“ hjá þeim og sögðu við okkur að við hefðum allavega um eitt hvað að tala í kvöld,“ sagði Ívar. Handtekinn í flogakasti Í október 2003 sendu mæðginin Kristjana Hafdís Hreiðarsdóttir og Ágúst Hilmar Dearborn bréf til Ríkissaksóknara þar sem óskað var rannsóknar á handtöku Ágústs rúmlega mánuði áður. Ágúst lenti í bílslysi í Reykjanesbæ eftir að hafa fengið flogaveikiskast und­ ir stýri og furðaði fjölskyldan sig á því að hann hefði verið handtek­ inn með valdi í stað þess að vera fluttur á sjúkrahús. Sögðu þau í samtali við Víkurfréttir að lög­ reglan hefði beitt miklu harðræði við handtökuna. Fram kom að atvikið hefði átt sér stað með þeim hætti að bifreið sem Ágúst ók lenti á járngirðingu við Njarðarbraut í Njarðvík. Í lög­ regluskýrslu um málið kom fram að Ágúst hafi legið í götunni þegar lögreglan kom á vettvang og hann hafi verið með meðvitund en „mjög ringlaður og engu svarað.“ Fram kom að hann hefði verið leiddur að sjúkrabifreið en neitað að fara inn í hana og reiðst mjög. Hann hefði að lokum verið hand­ járnaður þar sem ástand hans var talið óstöðugt og hann fluttur á lögreglustöðina í Keflavík. Fram kom að hann hefði verið „frekar æstur“ og var hann færður í fangaklefa til að „róa hann niður.“ ALLIR ÚT AÐ HJÓLA MEÐ TUDOR Eitt mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir faratækja MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA Bíldshöfða 12•577 1515•skorri.is Við mælum rafgeyma og skiptum um Hr að þjónusta HARÐRÆÐI LÖGREGLUNNAR: SEINNI HLUTI n Mar og beinbrot eftir handtökur n Báðu sér vægðar Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is „Þeir járna mig strax og þrýsta henni niður í gólfið Birgir Jónsson Illa útleikinn eftir lögregluna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.