Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 9
3. maí 2019 FRÉTTIR 9 GRÆNA TUNNAN AUÐVELDAR FLOKKUNINA Pappír, pappa, plast og minni málmhluti má setja beint í tunnuna - Muna að skola Pantaðu grænu tunnuna í síma 577-5757 eða www.igf.is/panta 577 5757 „ÞETTA ER LÖGLEYSA OG Á EKKI AÐ LÍÐAST“ n Kvartað undan duldum auglýsingum áhrifavalda daglega til Neytendastofu n Áhrifavaldar líta á eftirlitið sem persónulega árás n Mikill peningur í samfélagsmiðlum Í pistli á vef Forbes fer blaðamað­ urinn Mike Schmidt yfir umfang markaðssvæðis áhrifavalda og seg­ ir að erfitt sé að átta sig á hve stór iðnaðurinn sé í raun og veru. Það sé að hluta til út af annarri blekkingu, en færst hefur í aukana að minni áhrifavaldar, svokallaðir „micro in­ fluencers“, setji á svið kostað efni með kassamerkjum á borð við #ad og #sponsored til að láta líta út fyrir að þeir fái greitt fyrir auglýsingar. Er þetta gert til að áhrifavaldarnir laði að sér auglýsingasamninga. Mike Schmidt vitnar í ýmsar skýrslur til að meta hve stór þessi markaður er. AdWeek spáir að þessi markaður velti tíu milljörðum dollara á næsta ári. Skýrsla Statista segir hins vegar að markaðurinn verði 2,38 milljarða dollara virði í ár, sem er talsverð aukning frá árinu 2017 þegar að hann velti rétt rúm­ lega milljarði dollara. Í nýlegri rannsókn Bazaarvoice voru fjögur þúsund neytendur í Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi spurðir um viðhorf til áhrifavalda. Sögðust 49% vilja strangari reglur á samfélagsmiðlum um kostað efni og 47% voru þreytt á einsleitum, ko­ stuðum færslum frá áhrifavöldum. Um 62% fannst áhrifavaldar nýta sér trúgjarna fylgjendur, 55% fannst færslur áhrifavalda of efnislegar og 54% töldu áhrifavalda gefa ranga mynd af raunverulegu lífi. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, telur ábyrgðarleysi að dylja auglýs­ ingar. „Lögin eru skýr hvað þetta varðar. Mér finnst lágmarks­ krafa til allra, bæði einstaklinga og fyrir tækja, að fara að lögum. Það er skýrt í lögum að keyptar auglýsingar eða kostaðar ber að merkja sem slíkar á samfé­ lagsmiðlum. Mér finnst það á ábyrgð allra, ekki síst fyrirtækja, að taka ekki þátt í svona lögleysu. Línurnar eru skýrar. Það eru engin grá svæði. Mér finnst að öll ábyrg fyrirtæki eigi að þekkja það. Mér finnst óþarfi að vera að reyna að laumast eitthvað. Þetta er lögleysa og á ekki að líðast,“ segir Breki. Lögfræðingurinn Þórdís Vals­ dóttir skrifaði lokaritgerð í sínu meistaranámi um duldar aug­ lýsingar á samfélagsmiðlum. Þá komst Þórdís einnig í kastljósið í fyrra í kjölfar þess að hún sendi ábendingu á Neytendastofu um brot fyrrnefndra áhrifavalda, Fanneyjar og Svönu. Í kjölfar­ ið lenti Þórdís í netárásum frá áhrifavöldum. „Mér brá auðvitað talsvert þegar ég sá að allt í einu var ég orðin eitt­ hvert skot­ mark áhrifa­ valdanna, í raun fannst mér óþarfi að „skjóta sendiboð­ ann“. Ég skil ekki almenni­ lega hvers vegna þetta er svona mikið feimnismál, það að dylja auglýsingar á samfélags­ miðlum er brot á lögum og mér þykir furðulegt að þeir sem hafa verið gripnir við slíkt lögbrot beini reiði sinni að mér persónu­ lega í stað þess að viðurkenna að mistök hafi átt sér stað. Ég held nefnilega að margir áhrifavaldar og auglýsendur á samfélagsmiðl­ um séu ekki að brjóta reglurnar vísvitandi, en þó held ég að núna ætti þetta að vera orðið nokkuð skýrt svo það er erfiðara að skýla sér á bak við fá­ fræði.“ Ómögulegt er að segja hve mikið áhrifavald­ ar fá greitt fyrir að auglýsa þjónustu og vöru. Markaðs­ fræðingur sem vill ekki láta nafns síns getið segir það hins vegar ljóst að vinsæl­ ir áhrifavaldar með yfir tuttugu þúsund fylgjendur auglýsi ekkert frítt. Því þurfi að taka færslur með fyrirvara þar sem ákveðnar vörur eða þjón­ usta er sýnd með tengingu í fyrirtæki sem býður upp á téða vöru og þjónustu. Þó færslan sé ekki merkt sem auglýsing sé hægt að leiða að því líkur að um kostað efni sé að ræða. Þessi sami markaðsfræðing­ ur, sem keypt hefur þjónustu áhrifavalda, heldur því fram að fyrirtæki leiti í auknum mæli eftir því að gera langtíma­ samninga við áhrifavalda sem felst í mánaðarlegri greiðslu fyrir ákveðið margar færslur í mánuði. Geti þessir samningar gefið á bilinu 100 til 200 þús­ und krónur í laun á mánuði og stundum jafnvel meira, allt eftir áhrifavaldinum. Stærstu áhrifavaldar á Íslandi eru margir hverjir, að sögn heim­ ildarmanns DV, með nokkra langtímasamninga í gangi. Það rímar við það sem áhrifavaldurinn Lína Birgitta sagði í hlaðvarpsþætti Föstu­ dagsþáttarins Fókus fyrir stuttu. Hún sagð­ ist helst vilja vera með fjóra til fimm langtíma­ samninga við ákveðin fyrir­ tæki. Þá sagði hún hægt að þéna vel í starfi áhrifavaldsins. „Já, það eru peningar í sam­ félagsmiðlum. Það er hægt að fá góðan pening úr samfélags­ miðlum.“ Umboðsskrifstofan Crea­ tive Artists Iceland, CAI, er ein sú stærsta hér á landi, ef ekki sú stærsta þegar kem­ ur að áhrifavöldum. Áhrifa­ valdar, eins og Sólrún Diego, Camilla Rut, Guðrún Veiga og fyrrnefnd Lína Birgitta, eru allir á samningi hjá CAI. Árni Björn Helgason, eigandi CAI, getur ekki svarað því hve mikið áhrifavaldar fá fyrir að auglýsa vörur og þjónustu á samfé­ lagsmiðlum. „Það fer allt eftir manneskju, fyrirtæki, vöru, tímalengd, fjölda fylgjenda,“ segir Árni Björn en ítrekar að duldar auglýsingar séu ekki til sölu hjá áhrifavöldum hjá CAI. Hann segir það raunina að áhrifavaldar leitist við að ná langtímasamningum við fyrir­ tæki í stað færri og minni ver­ kefna, en gefur ekki upp hve mikið áhrifavaldar taka fyrir kostaðar færslur á samfélags­ miðlum. „ÞAÐ ERU ENGIN GRÁ SVÆÐI“ ERFITT AÐ SKÝLA SÉR Á BAK VIÐ FÁFRÆÐI „ÞAÐ ER HÆGT AÐ FÁ GÓÐAN PENING ÚR SAMFÉLAGSMIÐLUM“ NEYTENDUR ÞREYTTIR Á ÁHRIFAVÖLDUM Breki Karlsson. Þórdís Valsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.