Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 11
3. maí 2019 FRÉTTIR 11 námsaðferða.“ Björn segir að grunnmenntun kennara hafi ekki tekið mið af snjalltækjavæðingunni og það sé vafasamt að byrja tilraunirnar á grunnskólastiginu. Betra væri að feta sig áfram á framhaldsskóla­ stiginu, þar sem unglingar á þeim aldri hafi meiri þroska og sjálfsaga. Gerir þú nægilegan greinar- mun á virkum og óvirkum skjá- tíma? Skjátíminn hérlendis var orðinn mikill hjá börnum og ung­ lingum, jafnvel áður en snjall­ tækjabyltingin reið í garð. Yngstu börnin ráða ekki við þetta frelsi því það er stöðug freisting í gangi um að gera eitthvað annað en fást við námsefnið. En ég tek algjörlega undir það að það er mikill mun­ ur á námsefni og tölvuleikjum og þvíumlíku. Alþjóðaheilbrigðis­ málastofnunin hefur komið fram með nýja greiningu sem er leikja­ röskun (gaming disorder).“ Lítur til Austurlanda fjær Þú dregur fram mjög svarta mynd, getur hún staðist? „Ég hef reynt að fylgja leiðbein­ ingum bandarísku barnalækna­ samtakanna sem hafa verið vak­ in og sofin yfir þessari byltingu og veitt foreldrum markvissa ráðgjöf. Þetta er ný og öflug tækni og við verðum að nýta hana eins skyn­ samlega og við getum. Varðandi til dæmis ofþyngdina er hægt að sjá beintengingu við skjátíma í rannsóknum. En hvað varðar auk­ ingu á greiningu krabbameina, þá tek ég það skýrt fram á fyrirlestr­ um að við vitum ekki hvernig á því stendur. Það gæti tengst öðr­ um þáttum í umhverfinu. Í fyrir­ lestri mínum bendi ég einfaldlega á þá lýðheilsuþætti hjá börnum og unglingum sem eru að breytast á sama tíma og stafræna byltingin reið í garð. Ef það eru til stað­ ar skaðleg áhrif af snjalltækjum þurfum við að vernda börnin fyrir þeim. Það er siðferðileg skylda okkar fullorðna fólksins.“ Hvað varðar Victoriu L. Dunckley, þá viðurkennir Björn að hún sé umdeild en hafi reynslu og hafi skrifað bók um málefnið, Res­ et your child’s brain árið 2015. „Ég legg ríka áherslu á það í mínum fyrirlestrum að þetta séu ekki ritrýnd skrif heldur henn­ ar kenningar og hugarsmíð studd fjölmörgum klínískum dæm­ um úr sjúklingasamlagi Victor­ íu. Ég flyt erindi hennar því með þeim fyrirvara, en eftir hvern fyrir­ lestur koma til mín áhyggjufull­ ir foreldrar sem segjast kannast við einhver af þessum einkenn­ um sem Victoria L. Dunckley lýs­ ir hjá börnum þar sem skjátími er orðinn lengri en barnið þol­ ir. Rannsóknum fleygir fram og ég hef litið mikið til Austurlanda fjær í minni heimildaöflun, því þar reið stafræna byltingin fyrst í garð. Stjórnvöld í þessum löndum líta á hina stafrænu byltingu sem lýðheilsuvanda. Ég er alls ekki að boða einhvern endanlegan sann­ leik heldur hvet til samfélagslegrar umræðu um þessa miklu byltingu. Við þurfum að gæta að því að byltingin borði ekki börnin okkar.“ Tækin eru nútíminn sem börn- in lifa í. Er ekki verið að vekja upp hræðslu hjá fólki við nútímanum? „Þetta eru miklar samfélags­ breytingar sem tækin koma með og það væri mikil bjartsýni að halda því fram að þær væru al­ góðar. Allt sem ég bið um er að við umgöngumst þetta af skynsemi og yfirvegun. Hámörkum not okkar fyrir þessa nýju og öflugu tækni og lágmörkum fylgikvillana. Það hlýt­ ur að verða sameiginlegt markmið okkar allra.“ Rætt í stjórnmálum og skólum Snjallsímabönn hafa verið mikið til umræðu í samfélaginu á undanförnum árum, bæði er­ lendis og hér á Íslandi. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, þáver­ andi óháður borgarfulltrúi, lagði fram tillögu um snjallsímabann í Reykjavík vorið 2018. Hlaut til­ lagan ekki brautargengi. Hún barðist einnig fyrir snjallsíma­ banni í kosningabaráttunni til sveitarstjórnar í fyrravor. Þá var hún oddviti flokksins Borgin okk­ ar en hlaut einungis 0,4 prósenta stuðning kjósenda. Aðrir stjórnmálamenn hafa látið sig málið varða. Til dæmis Björn Leví Gunnarsson, þingmað­ ur Pírata. Hann hefur skrifað um að snjallsímar í skólum séu ekki vandamál í sjálfu sér. En nauðsyn­ legt væri að fræða börnin um hvernig ætti að nota tæknina. Snjallsímabönn hafa vitaskuld verið mikið rædd innan skól­ anna. Síðastliðið haust lagði Fræðslunefnd Fjarðabyggðar til að nemendum yrði bannað að koma með snjalltæki í skólana. En tæk­ in væru svo mikilvæg í kennslu að bannið væri ekki hægt að setja á fyrr en skólinn sjálfur hefði eignast nógu mikið af tækjum. Í september síðastliðnum ræddi RÚV við Helgu Kristínu Gunnars­ dóttur, aðstoðarskólastjóra Val­ húsaskóla á Seltjarnarnesi. Sagði hún þá óraunhæft í framkvæmd að banna farsíma í skólum. Aðeins foreldrar gætu sett strangari reglur um farsíma. n Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Kennarar hugsi vegna fyrirlestrar Björns um skjátækjanotkun n Gera verður greinarmun á virkum og óvirkum skjátíma n Vill meta árangurinn af tilraunaverkefni Kópavogs „Ég held að það sé enginn kennari á Íslandi, sem er að nota þessi tæki, sem tengir við neitt af því sem hann er að segja. Glærusýning Dregur upp mjög dökka mynd af skjánotkun barna og unglinga. Björn Hjálmarsson Hefur varað við mikill skjátækjanotkun barna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.