Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐA Sandkorn 3. maí 2019 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Fréttastjóri: Kristinn Haukur Guðnason Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Svik og prettir DV hefur verið að fjalla um nýja stétt fólks, hina svokölluðu áhrifavalda sem nota samfélagsmiðla til að auglýsa sína persónu, og í leiðinni vörur, bæði frá fyrirtækjum sem borga þeim fyrir það og í auknum mæli vörur sem þeir selja sjálfir. Þann 10. apríl greindi DV frá því að Sólrún Diego, einn vin- sælasti áhrifavaldurinn, notaði Instagram-síðu sína til að auglýsa netverslunina akart.is. Sagðist hún hafa fengið mikið af fyrirspurnum frá fylgjendum sínum vegna út- prentaðrar myndar af þvottabirni úr barnaherberginu sínu. Síðan var nafnlaus og þegar DV grennsl- aðist fyrir um þetta kom í ljós að hún var í eigu unnusta Sólrúnar og hún sjálf prókúruhafi í félaginu. Þar að auki sagðist eigandi þvotta- bjarnarmyndarinnar ekki hafa gef- ið leyfi. Þann 26. apríl greindi DV frá sambærilegu máli og öðrum þekktum áhrifavaldi, Tönju Ýri Ástþórsdóttur. Tanja auglýsti á sinni Instagram-síðu varning frá netversluninni bossbabe.is, sem einnig var nafnlaus. Sagðist hún hafa fengið þaðan vörur í „gjöf.“ Kom á daginn að hún sjálf er eig- andi og sömu vörur er hægt að fá fyrir langtum lægra verð hjá Ali- express og fleirum. Netverslunin akart.is var tekin niður eftir frétt DV. Tanja Ýr bætti upplýsingum um eignarhald sitt á bossbabe.is inn á sína Instagram- -síðu eftir frétt DV. Það er allt saman gott og vel. Það er gott að fólk lagi breytni sína en vitaskuld hefði þetta aldrei verið gert ef mál- in hefðu ekki verið dregin fram í dagsljósið. Það sem er einnig sorglegt í þessu máli er að hvorki Sólrún né Tanja hafa beðið fylgj- endur sína afsökunar, fylgjend- urna sem blekkingarnar beindust að, fylgjendurna sem verið var að reyna að græða á. Þvert á móti hafa þær beitt gamalkunnu bragði, að gagnrýna fjölmiðilinn sem kom upp um þær. Þetta vandamál er ekki bundið við þessar tvær dömur. DV greinir nú frá fleiri málum, fleiri duldum auglýsingum og hvernig fylgjend- ur eru sífellt blekktir. Alltaf er reynt að fela tilganginn fyrir neytandan- um. Áhrifavaldar beita öllum til- tækum ráðum til að komast hjá að fylgja lögunum, sem vissulega eru til staðar. Þeir nota skammstafan- ir sem enginn þekkir, hafa merk- inguna með hvítu letri á hvítum fleti til að hún sjáist ekki, og svo framvegis. Þetta er allt saman plat og gabb, svik og prettir, blekking út í gegn. Maður kemst ekki hjá því að hugsa og spyrja: Af hverju að standa í þessum feluleik? Af hverju ekki að merkja allt vel og vandlega, greina stoltur frá sínu fyrirtæki og segja: „Hér er ég, ég er að selja þessa vöru sem ég held að muni gagnast þér, hér getur þú keypt hana af mér.“ Myndi það letja fólk til að kaupa vöruna? Nei, ég held ekki. En heiðarleiki vandfundinn á meðal þessa samfélagshóps sem kallar sig þessu flotta nafni, áhrifa- valdar. n Leiðari Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Aumingjavæðing tungumálsins Íslensk tunga er sífellt í þróun líkt og önnur tungumál. Yfir- leitt gerist þetta ómeðvitað og sjálfkrafa. Orð komast í tísku og önnur detta úr tísku, rétt eins og fatnaður eða tónlistar- stefnur. Á undanförnum árum hefur það hins vegar færst í aukana að tungumálinu sé breytt með handafli hins opinbera. Oft á þetta rætur í háskólasamfé- laginu og hið opinbera tekur meðvirkt við breytingunum. Eitt nýjasta orðið er skólaforðun. Hugtak sem um langan tíma hefur einfald- lega verið kallað skróp. Skróp þykir nú slæmt orð, og því ber að tipla á tánum í kring- um hegðunina með því að nefna hana þessu nýja heiti, skólaforðun, sem væntanlega verður orðið skammarheiti eftir tíu til fimmtán ár. Þá geta sér- fræðingarnir skapað sér verk- efni með því að finna nýtt orð. Viðkvæmni á Vísi Mikil við- kvæmni virðist ríkja hjá visir.is þegar kem- ur að málum hælisleit- enda þessa dagana. Þann 27. apríl birt- ist þar frétt um uppákomu á fundi Sjálfstæðisflokksins um þriðja orkupakkann þar sem hælisleitandi stóð upp og vildi ræða um stöðu síns hóps. Þann 2. maí birtist síðan frétt um kröfugöngu sem hælisleitend- ur hugðust fara í frá Keflavík til Reykjavíkur. Í báðum tilfellum lokaði vis- ir.is fyrir athugasemdir fljót- lega eftir að fréttirnar birtu- st. Vekur þetta nokkra athygli í ljósi þess að slíkt er yfirleitt ekki gert nema um dauðsföll, alvarleg slys, ofbeldi eða ann- að slíkt sé um að ræða. Fremur er það reglan að taka út eins- taka athugasemdir við aðrar fréttir ef þær eru augljóslega ærumeiðandi. Lítur visir.is svo á að málefni hælisleitenda þoli ekki almenna umræðu? Spurning vikunnar Ertu með fóbíu fyrir einhverju? „Já, fólki sem heldur ekki fyrir munninn þegar það hóstar.“ Elberg Þorvaldsson „Já, aðallega fyrir trúðum.“ Álfhildur Reynisdóttir „Já, fyrir geitungum.“ Linda Mjöll Gunnarsdóttir „Nei, engu.“ Óttar Eyþórsson „Áhrifavaldar beita öllum til- tækum ráðum til að komast á skjön við að fylgja lögunum, sem vissulega eru til staðar. Myndin Skógarþröstur í baði Fyssa, verk listakon- unnar Rúríar í Grasagarðinum, er öllum til yndisauka. MYND: HANNA/DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.