Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 17
PRESSAN 1726. júlí 2019
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár
Ásta María Benónýsdóttir
Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061
BEITT GRÓFU ÁREITI AF HÁLFU ÍSLENSKS GESTGJAFA Á AIRBNB
var eins og það opnaðist einhver
flóðgátt. Allt í einu byrjaði ég að
skjálfa og gráta stöðugt.“
Alison segir þessa röð at-
vika hafa rifið upp gömul sár;
minningar af misnotkun í æsku
hafi blossað upp. „Þetta opnaði
augu mín fyrir öllu ofbeldinu og
áreitinu sem ég hafði orðið fyrir
sem barn og unglingur og ung
kona. Ofbeldi og áreiti sem ég
hafði lært að hunsa og grafa nið-
ur og gera lítið úr vegna þess að
það er einfaldlega það sem kon-
ur gera. Ég fór allt í einu að hugsa
um öll atvinnuviðtölin sem ég
hef farið í þar sem karlar töluðu
niður til mín; öll skiptin þegar ég
var úti að skemmta mér og það
var káfað á mér og ég lét mig bara
hafa það.“
Dauðhrædd
Alison segir að þegar hún var
komin heim til Texas, þar sem
hún var búsett, hafi það verið
hennar fyrsta verk að hringja í
þjónustuver Airbnb og tilkynna
manninn. Hún hafi síðan sent
þeim ýtarlega lýsingu á hegðun
hans. „Sem betur fer brugð-
ust stjórnendur síðunnar mjög
skjótt við, lokuðu á allar bókan-
ir sem hann hafði gert og lokuðu
aðganginum hans strax, innan
nokkurra mínútna.“
Hún segir manninn hafa
brugðist afar illa við eftir að
stjórnendur síðunnar lokuðu
fyrir aðgang hans. Það hafi kom-
ið henni illa að maðurinn var
með símanúmerið hennar, enda
er venjan að gestir og gestgjafar
á Arinbnb skiptist á tengiupplýs-
ingum þegar gisting er bókuð.
„Hann fékk senda tilkynn-
ingu um að ég hefði lagt fram
kvörtun. Í kjölfarið byrjaði hann
að hringja í mig aftur og aftur og
á einum tímapunkti skildi hann
eftir 10 skilaboð í talhólfi í sím-
anum mínum. Hann úthúðaði
mér, sagði að ég hefði eyðilagt
líf hans og hótaði að leggja fram
kvörtun á hendur mér til baka.
Síðan sagðist hann hafa talað við
hina gestina sem væru með hon-
um í liði. Ég var auðvitað dauð-
hrædd. Á endanum þurfti ég að
skipta um símanúmer.
Í langan tíma leið mér mjög
óþægilega innan um ókunnuga,
gamla menn, líkaminn á mér
hreinlega fraus,“ segir hún enn
fremur.
Hún segist hafa glímt við
mikla áfallastreituröskun eftir
að hún kom heim til Bandaríkj-
anna. Henni leið stöðugt illa og
fékk síendurteknar martraðir. Að
lokum leitaði hún sér hjálpar hjá
sérfræðingum og byrjaði að hitta
ráðgjafa. Í dag líður henni vel.
„Ég leitaði ekki til lögreglu og
ég gerði lítið úr þessu áreiti fyrst,
reyndi að leiða það hjá mér. En
mér er mikið í mun um að fólk
skilji að rétt eins og nauðgun þá
getur gróft kynferðislegt áreiti
haft hrikalegar afleiðingar. Ég
hugsaði fyrst að þar sem þetta
var ekki nauðgun þá væri þetta
nú ekkert svo alvarlegt. Sem sýn-
ir hvað við konur getum verið
ónæmar fyrir þessari hegðun.
Þetta er svo rótgróið í menningu
okkar.“
Airbnb og ábyrgð
Óljóst er hver ábyrgð Airbnb er
hér á landi þegar kemur að of-
beldi og kynferðisbrotum gagn-
vart gestum. Á heimasíðu Airbnb
kemur meðal annars fram að
gestir geti sett sig í samband við
þjónustuver sem er opið allan
sólarhringinn.
„Upplifun þín af Airbnb hefst
um leið og þú opnar þig ævin-
týrum. Það gerist einungis ef þú
treystir samfélaginu og finnur
til öryggis. Við gerum því kröfu
um að þú stofnir hvorki öðrum í
hættu né ógnir þeim.“
Á öðrum stað segir:
„Þú mátt ekki ógna öðrum
með ofbeldi, beita kynferðislegu
ofbeldi, áreitni eða misnotkun,
vera gerandi í heimilisofbeldi,
ræna, stunda mansal, beita öðru
ofbeldi eða halda neinum gegn
vilja sínum. Meðlimir í hættu-
legum samtökum, þ.á m. hryðju-
verkasamtökum, skipulögðum
glæpasamtökum og hópum um
kynþáttafordóma, eru ekki vel-
komnir í þessu samfélagi. Air-
bnb hefur skuldbundið sig til að
vinna með löggæsluyfirvöldum
eins og við á og bregst við gild-
um beiðnum löggæsluyfirvalda.“
„Þessi maður á að sjálfsögðu
ekki að vera skráður á þessa
síðu. Ég efast um að ég sé fyrsti
gesturinn sem hefur neikvæða
reynslu af honum og ég er al-
veg örugglega ekki fyrsta kon-
an sem hann áreitir. Það gefur
auðvitað augaleið að deilihag-
kerfi á borð við Airbnb laða að
sér kynferðis brotamenn, þeir
sjá erlenda ferðamenn sem auð-
velda bráð,“ segir Alison. „Öfugt
við það þegar þú gistir á hóteli,
þar þurfa starfsmenn að uppfylla
ákveðin skilyrði.“
Alison segist jafnframt velta
fyrir sér hver sé lagaleg ábyrgð
Airnb í málum eins og þessum.
„Mér finnst það mjög óþægi-
leg tilhugsun að hugsanlega sé
þessi maður búinn að búa til
nýjan aðgang á síðunni og haldi
áfram uppteknum hætti. Mér
skilst að það sé mjög auðvelt að
búa til nýjan aðgang á Airbnb.“
Á heimasíðu Airbnb segir:
„Ef við erum með nægar upp-
lýsingar (vanalega að minnsta
kosti eiginnafn, kenninafn,
fæðingardag og -ár) til að stað-
festa deili á gesti eða gestgjafa
með búsetu í Bandaríkjunum
berum við þær saman við til-
teknar opinberar sakaskrár ríkja
og sýslna ásamt skrám um kyn-
ferðisbrotamenn í ríkjum og fyrir
allt landið til að athuga hvort
viðkomandi hafi verið sakfelldur
í refsimáli eða hvort hann sé
skráður kynferðisbrotamaður.“
Þetta á hins vegar eingöngu
við ef viðkomandi gestur eða
gestgjafi eru staðsettir í Banda-
ríkjunum.
Á heimasíðu Airbnb segir að
fyrirtækið áskilji sér rétt til að
nálgast upplýsingar um viðkom-
andi notanda, en hvergi kemur
fram að bakgrunnur viðkomandi
sé kannaður við skráningu.
Fordæmi
Árið 2017 lagði Leslie Lapa-
yowker fram kæru á hendur Air-
bnb og krafðist miskabóta vegna
kynferðisbrots af hálfu gestgjafa.
Hafði hún bókað gistingu í stúd-
íóíbúð í Los Angeles. Sagði hún
gestgjafann hafa brotist inn íbúð-
ina á meðan hún dvaldi þar, dreg-
ið hana inn í herbergi og beitt
hana grófu kynferðislegu áreiti.
Síðar kom í ljós að gestgjafinn,
Del Olmo, hafði nokkrum árum
áður verið handtekinn fyrir of-
beldisbrot. Nafn hans kom ekki
upp þegar stjórnendur Airbnb
renndu nafni hans í gegnum við-
eigandi gagnagrunna, þar sem
hann var ekki dæmdur vegna
brotsins á sínum tíma.
Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu
kom fram að „atvikið yrði ekki
liðið“ og að reynt hefði ver-
ið af fremsta megni að styðja
Lapayowker og koma til móts
við hana. Þá kom fram að gest-
gjafinn hefði verið fjarlægður af
síðunni. n