Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Qupperneq 30
30 PRESSAN 26. júlí 2019
Lyktin
Geimfararnir fundu sérstaka lykt
á tunglinu. Schmitt, síðasti mað-
urinn til að ganga á tunglinu,
sagði að geimförunum hafi fund-
ist lyktin vera eins og af notuðu
byssupúðri en hafi samt ekki ver-
ið málmkennd eða sýrukennd.
Tengingin við byssupúður hafi
líklegast verið ofar í huga þeirra
en önnur lykt. Síðar var sú skýr-
ing sett fram að lyktin hefði verið
viðbrögð nefsins við mjög svo raf-
hlöðnu rykinu á tunglinu og telur
Schmitt að svo sé en hann er sjálf-
ur vísindamaður.
Tollskýrsla
Þegar geimfararnir þrír, sem fóru
með Apollo 11 til tunglsins, sneru
aftur til jarðar skiluðu þeir inn inn-
flutningsskýrslu til bandarískra
tollyfirvalda. Þeir höfðu einmitt
meira meðferðis en þegar þeir yf-
irgáfu jörðina því þeir tóku mikið
magn af grjóti og ryki með heim
frá tunglinu. Í raun og veru þurftu
þeir ekki að gera þetta en þetta var
smá brandari á milli NASA og toll-
yfirvalda. En innflutningsskýrslan
var fyllt út skömmu eftir að geim-
fararnir lentu í Kyrrahafinu.
Feyktu fánanum um koll
Þegar Örninn, lendingarfar Neils
Armstrong og Edwins Aldrin, hóf
sig til flugs frá tunglinu feykti út-
blásturinn frá mótorum þess
bandaríska fánanum, sem þeir
félagar höfðu stungið niður, um
koll. Í kjölfarið gættu aðrir geim-
farar þess að stinga fánanum nið-
ur í meiri fjarlægð frá lendingar-
förunum. Því hefur verið haldið
fram að sólvindar hafi séð til þess
að fánarnir blöktu næstum við
hún en svo er ekki. Í þá voru sett-
ar stangir sem áttu að halda þeim
beinum út frá stönginni.
Penninn bjargaði þeim
Þegar Armstrong og Aldrin fóru
aftur inn í lendingarfarið Örninn
rakst Armstrong óvart í útsláttar-
rofann. Það var fyrirferðarmikið
súrefniskerfið á baki hans sem
rakst í rofann og braut hann. Rof-
inn var lífsnauðsynlegur því hann
ræsti mótora lendingarfarsins en
þeir áttu að koma því upp til móts
við sjálft geimfarið sem hafði flutt
þá frá jörðinni og átti að koma
þeim þangað aftur. Þetta leit ekki
vel út því brotni rofinn gat orðið til
þess að þeir gætu ekki ræst mótor-
ana og sætu því fastir á tunglinu.
Aldrin greip þá til sinna ráða og
fann penna og notaði hann í stað
rofans og náði að ræsa mótorana.
Fyrir áhugasama má geta þess að
penninn er nú til sýnis á Museum
of Flight í Seattle.
Trúði á geimverur
Edgar Mitchell, sem var við stjórn-
völinn í Apollo 14, var ekki feim-
inn við að skýra frá því að hann
teldi 90% líkur á því að margar
þeirra tilkynninga sem bárust um
óþekkta fljúgandi furðuhluti ættu
við rök að styðjast og að þar væru
vitsmunaverur frá öðrum plánet-
um á ferð. Hann gaf í skyn að hann
hefði hitt erlenda embættismenn
sem hefðu persónulega reynslu
af geimverum og hefðu hitt slík-
ar verur. Einnig gaf hann í skyn
að stjórnvöld væru að hylma yfir
þetta. Hann sagði þó alltaf að hann
hefði aldrei sé fljúgandi furðuhlut
og hefði aldrei verið hótað vegna
ummæla sinna og að allt væru
þetta hans persónulegu skoðanir.
Upprunalegu upptökurnar eru
týndar
Upprunalegu upptökurnar af
lendingu Apollo 11 hafa verið
týndar áratugum saman auk mörg
hundruð kassa með tölvugögnum
varðandi geimferðina. Þetta hefur
að vonum ýtt við samsæriskenn-
ingasmiðum sem hafa sumir
hverjir haldið því fram að þetta
sanni að Sovétmenn hafi stolið
upptökunum eða að þær hafi verið
eyðilagðar af því að þær sanni að
lendingin hafi verið sviðsett.
Þegar 40 ár voru liðin frá
lendingu Apollo 11 tilkynnti al-
þjóðlegur hópur, sem var að reyna
að finna upptökurnar, að hann
teldi að óvart hafi verið tekið yfir
þær. En hópurinn hafði fundið af-
rit af upptökunum sem voru betri
að gæðum en þær upprunalegu.
NASA hefur birt þrjár klukku-
stundir af þessum upptökum.
Límbandið kom að gagni
Eins og gefur að skilja er tæknin
hjá NASA háþróuð og mikil vinna
og vísindi liggja að baki geimferð-
um enda ekki einfalt mál að senda
geimfar út í geiminn og hvað þá að
senda menn til tunglsins. Þegar
Gene Cernan og Jack Schmitt, sem
voru tveir síðustu mennirnir til að
ganga á yfirborði tunglsins, voru
þar í desember 1972 urðu þeir að
grípa til óvenjulegra og ekki svo
tæknilegra aðgerða til að gera við
tunglbílinn sem þeir höfðu með-
ferðis. Þeir lentu í dal, sem er um-
kringdur fjöllum og stórum klett-
um, hrauni og tunglryki. Allt var
þetta með ráðum gert til að hægt
væri að kanna þetta magnaða
landslag. En það var svo margt
athyglisvert þarna að þeir voru
sendir með tunglbíl með til að
auðvelda þeim yfirferð um dalinn.
En þegar þeir ætluðu að nota bíl-
inn kom í ljós að aurhlíf að aftan
var skemmd. Án hennar hefði bíll-
inn þeytt ryki upp af yfirborðinu
og hefði það getað hindrað útsýni
geimfaranna og í versta falli valdið
skemmdum á lendingarfarinu.
Þetta leystu þeir félagar með fjór-
um landakortum og límbandi og
bjuggu til nýja aurhlíf með þess-
um lágtækniútbúnaði.
CIA kom að verkefninu
Samsæriskenningasmiðir hafa
lengi haldið því fram að banda-
ríska leyniþjónustan, CIA, hafi
látið sviðsetja tunglferðirnar og
lendingarnar þar til að gera lítið
úr Sovétríkjunum. Það er ekki rétt
eins og flestir vita, en CIA hafði
samt sem áður fingur í verkefn-
inu enda var það mjög mikilvægt
í áróðursskyni.
CIA komst að því að Sovétmenn
voru að undirbúa geimferð til
tunglsins í árslok 1968. Fljúga átti
í kringum tunglið en ekki lenda
þar. Vegna þessara upplýsinga var
fyrirætlunum breytt og var Apollo
8 látinn fara á braut um tunglið í
stað þess að fara bara á braut um
jörðina. n
„Örlögin hafi skipast
þannig að mennirn-
ir sem fóru til tunglsins til
að rannsaka það á friðsam-
legan hátt munu bera bein-
in þar og hvíla þar
Sagan skrifuð
Geimfari snertir tunglið.
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is
LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS