Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 48
26. júní 2019
30. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Seðlabankinn
– eldum rétt!
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
m
yn
d-
o
g
te
xt
ab
re
ng
l
benni.is
Reykjavík
Krókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
Í Opel sportjeppum eru þægindi, hátækni og lúxus staðalbúnaður.
Aktiv pakkinn fullkomnar bílinn fyrir íslenskar aðstæður
með aukinni veghæð og enn meiri búnaði.
SUMAR!
Þýsk gæði
Þýsk hagkvæmni
Þýsk hönnun
Fullt verð með aukabúnaði: 4.890.000 kr.
GRANDLAND CROSSLAND
Opel Aktiv pakki:
• Aukin veghæð
• Toyo heilsársdekk
• Toppgrind
Allt þetta til viðbótar sjálfsögðum þægindum,
öryggi og einstökum aksturseiginleikum.
Aktiv sumarverð:
Sjálfskiptur 4.490.000 kr.
• Thule farangursbox
• Aurhlífar
• Útilegukortið 2019Fullt verð með aukabúnaði: 3.290.000 kr.
Aktiv sumarverð:
Beinskiptur 2.990.000 kr.
Miðbær í Grindavík
í vinsælli þáttaröð
á Netflix
H
úsið Miðbær sem
stendur austur í hverfi í
Grindavík kemur fram
í bresku sjónvarpsþátt-
unum Black Mirror, sem hafa
notið mikilla vinsælda meðal
áhorfenda.
Þátturinn er sá þriðji í
fjórðu þáttaröð, og ber nafnið
Crocodile. Þátturinn var að
mestu tekinn upp á Íslandi
í febrúar árið 2017 og hafði
framleiðslufyrirtækið True
North aðkomu að gerð hans.
Sækja þurfti um leyfi til Um-
hverfisstofnunar vegna kvik-
myndatöku við Kleifarvatn, en
þar er jarðrask óheimilt nema
með leyfi stofnunarinnar. Þátt-
inn, sem og aðra þætti í þátta-
röðinni, má finna á Netflix. n
Sveinn fer í
Seðlabankann
S
veinn Kjartansson mat-
reiðslumeistari hefur
staðið vaktina á veitinga-
stað sínum, AALTO Bi-
stro í Norræna húsinu, í tæp
fimm ár.
Sveinn hefur einnig vakið
athygli fyrir sjónvarpsþætti
sína, hefur verið gestakokk-
ur og kennari við UNISG, virt-
an Slow Food-skóla á Ítalíu,
og gefið út matreiðslubók.
Sveinn er þekktur fyrir að fara
spennandi og óhefðbundnar
leiðir í matreiðslunni og nýta
hráefni á frumlegan hátt.
Nú er hins vegar komið að
tímamótum hjá Sveini, sem
hyggst hefja nýtt starf í septem-
ber sem forstöðumaður mat-
ar- og veitingasviðs Seðlabanka
Íslands. Í viðtali við veitinga-
geirinn.is segist hann hafa
þegið starfið með þökkum,
„enda heillandi og spennandi
starf.“ Bætir hann við að sam-
hentur hópur muni vinna með
hjartanu og honum þar til nýr
veitingamaður tekur við kefl-
inu í Vatnsmýrinni.
S
ig urður Kjart an Hilm ars-
son, sem er oftast kall-
aður Siggi skyr, fer yfir
listina að búa til skyr í
viðtali við vefsíðuna The Kitchn.
Siggi ætti að kunna það einna
best, en hann stofnaði The
Icelandic Milk and Skyr Cor-
poration í Bandaríkjunum árið
2006 og hóf fljótlega sölu á skyri
undir vörumerkinu Siggi’s skyr.
Í byrjun síðasta árs seldi Siggi
fyrir tækið til franska mjólkurris-
ans Lactalis, en það kemur ein-
hverjum hugsanlega á óvart að
aðferð Sigga til að búa til skyr er
heldur betur kostuleg.
Siggi fræðir lesendur The
Kitchn um að það sé í raun
frekar einfalt að búa til skyr
heima; maður einfaldlega hiti
mjólk í 110° til 120° Fahrenheit
til að brjóta niður próteinin og
bæti síðan þétti, skyri úr fyrri
framleiðslu, í blönduna. Síðan
er hitanum haldið stöðugum svo
þéttirinn, sem er sýrumyndandi
bakteríur og gersveppir, geti
gert sín kraftaverk. Siggi segir að
halda verði jöfnum hita í sex til
tólf klukkustundir.
Gott og vel, en síðan fer Siggi
út í hvernig í ósköpunum hann
fer að því að halda hitanum jöfn-
um og þá kemur margt á óvart.
„Flestir eiga ekki ofna
sem geta haldið svona lág-
um hita. Þannig að ég hita
þetta bara upp í rétt hitastig
á hellu, tek síðan pottinn af
og vef honum í handklæði,
baðsloppa, peysur – hvað
sem ég finn til að halda
hitanum. Þetta er frekar
fyndið apparat!“
segir Siggi. n
Baðsloppurinn leikur stórt hlutverk í skyrgerð