Skessuhorn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Skessuhorn - 20.12.2001, Qupperneq 7

Skessuhorn - 20.12.2001, Qupperneq 7
 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 7 Afjólasveinum ogjólaketti Það fer ekki á milli mála að það eru að koma jól. Eftir því s e m 1 e n g r a líður á að- ventuna s t a f 1 a r maður meira af jólaskapi í hjart- að ásamt með kærleika til ná- ungans, item stórum skömmtum af ást og friði. Maður er jafnvel farinn að heilsa yfirlýstum kröt- um að íyrra bragði, en það háttalag dettur væntanlega átómatískt út strax að þrettánd- anum liðnum. Jólasveinarnir íslensku eru sem betur fer að styrkja stöðu sína gagnvart þessum út- lenska í rauða dressinu, þessum sem var upphaflega rússneskur dýrlingur en Kanar poppuðu upp og nefndu Sánkti Kláus. Undirritaður var í bernsku aldrei mjög trúaður á tilvist þessa Kláusar. Þetta átti sér eðl- isfræðilegar skýringar. Hvernig gátu svo sem örfá pínulítil hreindýr hreyft svona stóran og feitan karl á sleða úr stað, hvað þá að ná ferlíkinu á flug? Ekki glæta. Þar hefði ekki dugað neitt minna en tekníkin túrbó. Auk þess standa þessir íslensku okkur mikið nær en rússneskur karl aftan úr pápísku. Enda ekkert yfirnáttúrulegt við það að koma fótgangandi til byggða ffá híbýl- um foreldra sinna. Svo eiga jólasveinarnir líka samsvörun í nútíma Islendingum sumum hverjum, þeir eru matgráðugir, hrekkjóttir og jafnvel óffómir. Þess vegna getur maður með góðri samvisku kastað tiltrú á þetta rússnesk- ameríska fyrir- brigði, en trúað á íslenska jóla- sveina ævina út. Þá trúir undir- ritaður afar staðfastlega á tilvist jólakattarins. Eg hef nefhilega séð þetta kvikindi með eigin augum. Eg hef líklega verið um það bil hálfhaður með fýrsta tug ævi minnar, og þess vegna kom- inn af óvitastigi uppá næsta stig, sem er þá óviti plús, eða örlítill þroski mínus. Þá sá ég jólakött- inn skjótast milli þúfha austur við hesthús rétt eftir hádegi, sirka viku fyrir jól. Ég taldi mig alveg ljónheppinn að vera sam- ferða afa mínum þarna sem ég horfði á jólaköttinn steypa stömpum milli þúfnakollanna, því á svona stundum er bráð- nauðsynlegt að hafa vitni sem geta staðfest merkilega atburði, sem annars yrðu bara rengdir og ofaní kaupið væri maður búinn að gera sig að fífli í langan tíma á effir. En þarna brást afi mér al- gerlega, þó yfirleitt værum við sammála um alla skapaða hluti. „Þetta er minkur,“ sagði afi, „þetta er jólakötturinn,“ sagði ég. Nú var meintur jólaköttur horfínn sjónum okkar, en á- greiningi langt í frá lokið. „Þetta var minkur,“ sagði afi, „þetta er jólakötturinn,“ sagði ég. Við komumst af með þessi tvö orð alla leið fram hjá hesthúsi og austur að fjárhúsunum. Afi opn- aði dyrnar á vestustu krónni, "minkur" sagði hann og gekk inn, "jólaköttur" sagði ég og elti afa inn í fjárhús. Það var ekki fyrr en á leiðinni heim frá hús- unum að við komumst að til- tölulega ásættanlegri niðurstöðu fyrir báða. Ekki það, að annar okkar hefði bakkað með annað hvort kvikindið til móts við hinn, enda hvorugur sú týpan sem lætur svo glatt af sinni sann- færingu. Nei, niðurstaðan var sú að hvor um sig taldi hinn ekki búa yfir nægjanlegri undirstöðu- þekkingu í dýrafræði til að geta tjáð sig fullkomlega um ffam- andi skepnur sem sæjust ör- skotsstund í svartasta skamm- deginu. En svo líða nokkrir dag- ar og afinn og dóttursonur hans hafa aftur tekið upp þann sið að vera sammála um alla skapaða hluti. Þeir passa sig bara á því að nefna ekki þessi tvö orð, minkur og jólaköttur. Og það er komin epla- og hangikjötsilmur í bæinn og til viðbótar við tvo steinolíu- lampa, því ekkert er raffnagnið, eru nokkur kerti á litlu jólatré, jólatré sem undirritaður geymir vonandi hvað lengst í minning- unni þó hann endi snarkalkaður á elliheimili. Oska svo öllum gleðilegra jóla og gæfu á nýju ári. Bjartmar Hannesson Verið velkomin i verslun okkar í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.