Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 20.12.2001, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 20.12.2001, Blaðsíða 13
giiaessiíiiO'.íM FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 13 Hætt kominn Ásberg Þorsteinsson var hætt kominn þegar hann féll fyrir borð af síldarskipinu Elliða frá Akranesi á laugardagsmorgun í síðustu viku. Ohappið vildi þannig til að mann- skapurinn var að vinna við nýtt troll á dekkinu og í skutrennunni þegar trollpokinn slóst í Asberg með þeim afleiðingum að hann þeyttist fyrir borð. Að sögn Ás- bergs náði hann að hanga í enda trollpokans en hann var klæddur úlpu og stígvélum sem gerðu hon- um erfitt fyrir. „Eg barst hratt frá skipinu en náði að grfpa í trollpok- ann þar sem ég hélt mér dauða- haldi. Eg saup mikinn sjó því það var dálítdl alda. Þeir náðu að kasta til mín björgunarhring með ljósi og mátti ekki miklu muna að ég næði til hringsins. Þetta var hrikalega erfitt og ég skil eiginlega ekki hvernig mér tókst að smeygja mér í björgunarhringinn. Það var síðan Rúnar Þór, annar stýrimaður, sem kom syndandi til mín í flotbúningi og Sveinn Isaksson, skipstjóri, not- aði hliðarskrúfur skipsins til að Asberg Þorsteinsson var hætt kominn þeg- ar hann féllfyrir borð. Mynd: K.K. nálgast okkur. Ég var orðinn helvíti kaldur og kokkurinn og vélstjórinn drifu mig beint í heita sturtu þegar þeir voru búnir að ná mér um borð,“ sagði Asberg. Siglt var með Asberg í land og taldi hann sig vera búinn að jafna sig að mestu þegar Skessuhorn ræddi við hann á þriðjudag. Asberg lét engann bil- bug á sér finna og segist ætla að fara í næsta túr. K.K. Krefjast tafarlausra framkvæmda Dalamenn vilja skýr svör frá verktakanum á Bröttubrekku Litlar sem engar framkvæmdir hafa verið við veginn yfir Bröttu- brekku frá því í vor. Haraldur Lín- dal Haraldsson sveitarstjóri Dala- byggðar segir íbúa sveitarfélagsins vera mjög óánægða með seinagang við vinnslu verksins og hafa að hans sögn verulegar áhyggjur af fram- vindu mála. Á fjölmennum borg- arafundi í Dalabúð var eftirfarandi ályktun samþykkt um málið: "Almennur borgarafundur íbúa Dalabyggðar haldinn í Búðardal miðvikudaginn 12. desember 2001 samþykkir að skora á samgöngu- ráðherra og þingmenn hins nýja Norðvesturkjördæmis að sjá til þess að verktaki við Bröttubrekku leggi nú þegar fram nýja framkvæmdaá- ætlun vegna uppbyggingar vegar um brekkuna og honum verði gert að sýna fram á hvernig hann ætli að standa við samningsbundna tímaá- ætlun verksins. Á engan hátt verður fallist á tafir við skil á verkinu og/eða verkhlutum þess frá upp- haflegum samningi. Hér er um mikið hagsmunamál fyrir íbúa Dalabyggðar að ræða, bæði hvað varðar uppbyggingu á svæðinu og samgöngur við aðra landshluta". MM Veitum vel... Orkuveita Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.