Skessuhorn - 20.12.2001, Blaðsíða 31
airassnHigreM
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001
31 t
að mínu mati.Það virðist vera ein-
hver ótti hjá þeim við hörkuna í
enska boltanum. Það er vissulega
nokkuð til í því en ef þeir klára sig
hér þá klára þeir sig alls staðar.
Þetta er bara spurning um hvort
menn hafa nægan metnað til að
leggja eitthvað á sig,“ segir Guðjón.
Lítið jólafrí
Þótt flest venjulegt fólk njóti þess
að slappa af og ryðja í sig kræsing-
um um jólahátíðina þá gildir það
ekki um enska knattspyrnumenn.
Fram undan er mikil törn en sam-
kvæmt hefðinni er dagskráin hvað
þéttust í ensku knattspyrnunni milli
jóla og nýárs. A annan í jólum á
Stoke útileik gegn Tranmere
ur um eigin hæfileika að hann láti
alla gagnrýni sem vind um eyru
þjóta. „Eg hef engar áhyggjur af
því þó menn stökkvi upp á nef sér.
Fótbolti snýst um tilfinningar eins
og ég sagði áður þannig að það er
algengt að menn missi aðeins tökin
á sjálfum sér í hita leiksins. Eg vinn
eftir minni sannfæringu enda hef ég
ekki annað að bjóða. Ef ég tapa
minni sannfæringu, tapa ég leikn-
um. Það er ekki boðið upp á neinar
málamiðlanir í fótbolta. Við getum
tekið sem dæmi að ef eitthvað fyrir-
tæki ætlaði að kaupa málverk til að
gefa forstjóranum í afmælisgjöf þá
myndi stjórnin varla setjast niður,
hver með sinn pensil til að mála
mynd. Það yrði væntanlega ráðinn
lensku leikmannanna. „Það var
ljóst þegar Stoke var keypt af út-
lendingum að ekki væru allir sáttir.
Tuttugu prósent stuðningsmanna
lýstu yfir óánægju og þeir hafa unn-
ið gegn okkur þótt þeir telji sig
stuðningsmenn. Það er sama hvað
við gerum. Þeir verða okkur alltaf
erfiðir og fljótir að höggva ef þeir
fá færi á okkur. Það er staðreynd
sem verður ekki breytt. Eins er það
gagnvart Bjarna að þótt hann hafi
ítrekað verið okkar besti maður
hefur hann aldrei verið metinn að
verðleikum. Þessvegna var hann
settur á sölulista þótt hann hafi
engan áhuga á að fara sjálfur. Eg er
þó að vona að það sé að breytast og
að menn sjái, jafnvel þótt þeir forð-
Markmiðið hefur alltaf verið
ljóst, þ.e. að vinna sér sæti í 1. deild
að ári en það er ekki nóg að komast
upp því þá tekur við þrautin þyngri
að halda sætinu eða, eins og fram-
tíðardraumarnir eru, að komast
enn lengra. „Grunnurinn að þessu
liði er nógu góður til að spila í 1.
deild. Við þyrftum að bæta við okk-
ur 3 -4 góðum leikmönnum en við
erum með lið til að byggja á þannig
að ef við komust upp verður það
ekki til að fara beint niður aftur.
Það er alveg ljóst.“
Óli sýndi úr hverju
hann er gerður
Eins og glöggt kemur fram hér
að ofan er í mörg horn að líta hjá
mwmmm
rIÉpi<P| m gl ij
MBL Ijósmynd:: RAX
Rovers og annan útileik þann 29.
gegn Huddersfild. A nýársdag er
heldur ekki setið með hendur í
skauti því þá kemur Blackpool í
heimsókn á Brittania. „Þetta er
hefðin. Englendingarnir vilja hafa
þetta svona og við verðum bara að
búa við það. Það er aldrei meiri að-
sókn en einmitt yfir jólin og
skemmtileg stemmning á leikjun-
um. Eg er reyndar einn af fáum
stjórum sem gef frí á jóladag
þannig að okkar menn fá aðeins að
setjast niður en annars er þetta
massíf törn, reyndar ekki bara núna
um jólin heldur nánast óslitið
þangað til tímabilið er búið. Við
spilum 46 deildarleiki og bikarleiki
til viðbótar þannig að við spilum að
minnsta kosti 51 leik á tímabilinu.“
Þeir sem fylgst hafa með ferli
Guðjóns sem knattspyrnumanns og
þjálfara með íslenskum félagslið-
um, landsliðinu og núna á engilsax-
neskri grund þekkja að oft hefur
gustað um kappann og ekki alltaf
allir á eitt sáttir um ákvarðanir hans
og framkomu. Guðjón virðist hins-
vegar láta sig það litlu skipta hvort
gerðir hans kunni að fara fyrir
brjóstið á fólki og heldur sínu striki
þrátt fyrir gagnrýni á köflum. Sag-
an sýnir hinsvegar að undantekn-
ingalaust hefur Guðjón staðið uppi
sem sigurvegari að lokum og þá
gleymist allt annnað fljótt. Að
minnsta kosti þar til tilefni gefst að
nýju til að rifja upp gamlar ýfingar.
Blaðamanni leikur hinsvegar for-
vitni á að vita hvort Guðjón sé með
það þykkan skráp og það sannfærð-
einn listamaður til verksins. Þannig
er það líka í fótboltanum það þýðir
ekkert að það séu margir sem mála
myndina. Eg tel mig hafa fullt vit á
því sem ég er að reyna að skapa
með minni vinnu og ég hef góða
aðstoðarmenn og gott fólk í kring-
um mig. Ef ég tryði því ekki sjálfur
að ég væri vandanum vaxinn þá
dytti mér ekki í hug að standa í
þessu. Það þýðir því ekkert að velta
sér endalaust upp úr því hvort allir
séu hamingjusamir. Ef maður ætl-
aði að reyna að gera öllum til hæfis
myndi það enda með skelfingu. Eg
geri það sem ég tel að þurfi til að ná
árangri og verð síðan bara að vona
að það dugi til.“
Verða alltaf á
móti okkur
Það eru vissulega orð að sönnu
að knattspyrna sé tilfinningamál og
það sést meðal annars ef skoðaðar
eru heimasíður á netinu sem tengj-
ast Stoke. A umræðuvefjum, m.a. á
hinum vinsæla vef Teamtalk er oft
fróðlegt að fylgjast með umræð-
unni. Þar eru menn ófeimnir við að
lýsa skoðunum sínum á liðinu, ein-
stökum leikmönnum og ekki síst
knattspyrnustjóranum sem virðist
ýmist vera hataður eða elskaður.
Þegar illa hefur gengið hefur verið
veist harkalega að þessum
„andsk....“ Islendingum sem ekkert
vit hafa á fótbolta, en þegar betur
gengur, líkt og þessa dagana, er
annað hljóð í strokknum og ekki
annað að sjá en þessa dagana beri
stuðningsmenn Stoke City fullt
traust til knattspyrnustjórans og ís-
ist að viðurkenna það, að hann er
liðinu gífurlega mikilvægur. Þess
ber hinsvegar að geta að meirihluti
áhangendanna hefur séð hvað við
erum að gera og eru mjög sáttir. Eg
fæ mikil viðbrögð og þeir sem gefa
sig á tal við mann eru yfirleitt já-
kvæðir. Eg fæ líka helling af tölvu-
pósti og bréfum, meðal annars
skammarbréf og skítkast en meira
samt á hinn bóginn. Það er bara
hluti af þessu.“
Þótt Stoke sé í ágætum málum
þessa dagana þá er mikið eftir af
mótinu og allt getur gerst. Sumir
segja að jólatörnin skilji á milli feigs
og ófeigs og eftir hana megi nokk-
uð sjá hvaða lið berjast í toppbar-
áttunni og á öðrum vígstöðvum.
„Þeir segja það margir en ég vil
meina að það sé ekki fyrr en eftir
tvo þriðju af mótinu sem línur fara
að skýrast. Það geta alltaf orðið af-
föll af mannskap og margt sem spil-
ar inn í þannig að hlutirnir breytast
fljótt. Við erum vissulega ánægðir
með árangurinn það sem af er en
það dugar okkur skammt. Við þurf-
um tölvuert fleiri stig og getum
ekki leyft okkur að slaka á fyrr en
mótið er búið. Við erum á pari ef
svo má segja, með tvö stig í leik og
það markmið er enn í gildi. Það eru
sterk lið á hælunum á okkur og við
þurfum að halda vel á spilunum ef
við eigum að halda okkur á toppn-
um. Það er hinsvegar búið að hafa
mikið fyrir því að komast hingað
þannig að menn eru ekkert á því að
gefa toppsætið eftir.“
knattspyrnustjóranum og því má
ætla að ekki sé offramboð á frítíma.
Að knattspyrnunni slepptri eru lax-
veiðar eitt helsta áhugamál Guð-
jóns og hvað sem öllum saman-
burði á knattspyrnusviðinu líður
þarf ekki að deila um að jiegar kem-
ur að laxveiðinni hefur Island vinn-
inginn. „Eg hef því miður ekki haft
mikinn tíma til að fara heim í lax-
veiði. Eg skaust aðeins í sumar en
með afleitum árangri. Þetta er eitt
af því sem ég missi af og sakna að
sjálfsögðu en vonandi verður ein-
hver tími til að tortíma laxi næsta
sumar."
Starfs síns vegna þarf Guðjón að
ferðast víða til að skoða efnilega
leikmenn og meðal annars hefur
hann sem kunnugt er leitað fanga á
Islandi og því hefur hann ekki alveg
sleppt hendinni af íslenskri knatt-
spyrnu. Það verður því ekki hjá því
komist að fá hann til að leggja kalt
mat á íslenska boltann í dag. „Ég sá
nokkra leiki í sumar og það verður
að segjast eins og er að það er búið
að taka lungann úr íslenskri knatt-
spymu þar sem bestu mennirnir
eru komnir í atvinnumennsku. Það
er hinsvegar mikið af ungum og
efnilegum mönnum sem eiga eftir
að þroskast og vaxa þannig að
framtíðin er björt en við getum
ekki horft fram hjá þeirri staðreynd
að þeir sem hafa burði til að verða
atvinnumenn þeir eru að sjálfsögðu
ekki að spila heima. Það var hins-
vegar mjög gamana að fylgjast með
Islandsmótinu í sumar og sjá
hvernig Ola Þórðar tókst til með
sína menn. Hann sýndi og sannaði
svo um munar úr hverju hann er
gerður og Skagamenn náðu frábær-
um árangri. Eg óska þeim að sjálf-
sögðu öllum til hamingju með
þetta afrek og þá sérstaklega Ola en
það á enginn fremur hrós skilið en
hann.“
Bikarinn
Eins og fyrr segir er staða Stoke í
annarri deild afar vænleg sem
stendur en einnig er liðið komið í
þriðju umferð ensku úrvalsdeildar-
innar eftir sigur gegn hinu geð-
þekka liði Halifax: 3-0 á Brittania í
síðustu viku. Liðin skildu reyndar
jöfh 1 - 1 í Halifax og þurfti því að
leika aftur en þá áttu lærisveinar *
Guðjóns ekki í neinum vandræðum
með bomlið þriðju deildar. Segja
má að Stoke hafi dottið í lukku-
pottinn hvað varðar mótherja en
upp úr hattinum kom úrvalsdeild-
arlið Everton og fer leikurinn fram
á Brittania 5. - 7. janúar n.k. „Þetta
er spennandi verkefhi," segir Guð-
jón aðspurður um hvernig honum
lítist á að mæta „hinu liðinu“ frá
Liverpool. Það er samt ekki hægt
að stilla sig um að rifja upp harka-
legan skell Stoke gegn Liverpool í
sömu keppni í fyrra. „Við erum
einfaldlega með mun betra lið en
þegar við mættum Liverpool í fyrra
og betur í stakk búnir að takast á
við verkefni af þessari stærð-
argráðu. Eg ætla samt ekki að vera
með neinar yfirlýsingar en það sem
er hvað mest spennandi og
skemmtilegast við fótboltann er að
það er alltaf möguleiki hvað sem
stigatöflum eða deildaskiptingu líð-
ur. Það er allavega ljóst að það
verður stútfullur völlur, mikil
stemmning og aur í kassann.,“ seg-
ir Guðjón.
Margir halda því fram að þátt-
taka í bikarkeppninni geti spillt fyr-
ir gengi liða í deildarkeppninni sér-
staklega hjá þeim sem eru í topp-
baráttunni. Sumir eru þeirrar skoð-
unar að það trufli einbeitinguna að
berjast á mörgum vígstöðvum í
einu og sé jafnvel óæskilegt. „Eg er
ekki sammála því,“ segir Guðjón.
„Við límm á bikarinn sem bónus.
Þessi keppni fær mikla athygli en
þátttaka í henni á alls ekki að þurfa
að trufla okkur neitt. Næstu daga
einbeitum við okkur að jólatörn-
inni og síðan kemur að leiknum við
Everton og þá verður tekið á því.
Þetta er skemmtileg tilbreyting og
virkar vel á sjálfstraustið ef vel
gengur og ekkert nema gott um
það að segja.“
Framtíðin
Það liggur ljóst fyrir hvað knatt-
spyrnustjórinn einbeitti hefur íyrir
stafni næsm mánuðina, a.m.k. en
hvað með framtíðarmarkmiðin. Er
von til að Guðjón snúi sér aftur að
íslenskri knattspyrnu eða er fram-
tíðin á enskum grasbletmm? „Eg
held að ég sé búinn að gera allt sem
ég get gert í fótboltanum heima
þannig að ég á ekki von á að ég fari
í þjálfarastarf á Islandi í fyrirsjáan-
legri framtíð alla vega. Samningur-
inn minn hjá Stoke var endurskoð-
aður í sumar að minni ósk og samið
til eins árs enda lýsti ég því yfir að
ég væri tilbúinn að standa og falla
með mínum árangri. Það er ekkert
komið í ljós hvað verður eftir þetta
keppnistímabil en það ræðst vænt-
anlega af því hvernig það endar. Ef
ég verð ekki hérna áfram þá vonast
ég til að ég verði einhvers staðar f
annars staðar á svipuðum vett-
vangi.“ Aðspurður um hvort eitt-
hvað slíkt sé uppi á borðinu vill
Guðjón lítdð tjá sig. „Við gemm
sagt að það hafi verið talað við mig
um önnur störf,“ segir stjórinn í
Stoke, dularfullur á svip. ,
GE