Skessuhorn - 20.12.2001, Blaðsíða 54
54
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001
SffiCSSIjHÖEiíJ
>
ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR -
*
>
Ungmennafélagið Islendingur
varð 90 ára þann 12. desember
síðastliðinn. Af því tilefni var haldin
vegleg afmælishátíð á laugardag-
inn var í félagsheimilinu Brún í Bæj-
arsveit. Félagsmenn á öllum aldri
stóðu fyrir fjölbreyttri dagskrá sem
bar menningarstarfi innan félagsins
fagurt vitni. Þarna var söngur, dans
og leikur auk þess sem minnisverð-
ir atburðir úr sögu félagsins voru
raktir. I tilefni dagsins árnuðu þau
Ásdís Helga Bjarnadóttir, sam-
bandsstjóri UMSB, Björn B. Jónsson
formaður UMFI og Ríkarð Brynjólfs-
son oddviti Borgarfjarðarsveitar fé-
laginu heilla og færðu því gjafir.
Stjórn Islendings vill nota tækifærið
til að þakka gestum fyrir komuna,
og hlakkar til að starfa í sinni sveit
næstu 90 árin.
Körfuknattleikur r
Slæmur skellur hjá IA
» -miklar hræringar innan félagsins
setja mark sitt á starfið
Skagamenn máttu þola sitt fjórða
tap í röð og það sjötta í síðustu sjö
leikjum þegar þeir steinlágu fyrir Ár-
manni/Þrótti 114-47 sl. föstudag í
1 .deildinni. Skagamenn eru sem
stendur í næstneðsta sæti með 4 stig
eftir níu umferðir. Talsverðar hrær-
ingar hafa átt sér stað innan körfu-
boltans á Akranesi að undanförnu.
Brynjar Karl Sigurðsson, sem hefur
verið driffjöðurinn í því uppbygging-
> arstarfi sem á sér stað í körfuboltan-
um á Akranesi um þessar mundir,
sagði upp störfum sem þjálfari mfl.
IA vegna vangoldinna launa. Auk
þess að þjálfa meistaraflokkinn sá
Brynjar einnig um fjóra yngstu
flokka félagsins. Þessi uppsögn snerti
því marga innan félagsins. Málin
leystust þó eftir um þriggja vikna
skeið og hefur Brynjað hafið störf á
nýjan leik. Aðstoðarþjálfari
Brynjars, Sævaldur Bjarnason, hefur
tekið við þjálfun meistaraflokksins en
Brynjar mun áfram þjálfa 7.,8.,9.
og 10. flokk. Brynjar mun hinsvegar
ekki halda áfram að spila með
meistaraflokki og er það mikill miss-
ir fyrir liðið þar sem hann hefur ver-
^ ið yfirburðamaður í leikjum þess í
vetur. Þá hefur Ægir Hrafn Jónsson
Brynjar Karl Sigurðsson
gengið úr röðum Skagamanna til
liðs við Val. Einn reyndasti leikmað-
ur IA, Jón Þór Þórðarson, hefur ver-
ið meiddur undanfarinn mánuðen
hans er þó að vænta aftur í slaginn í
kringum áramótin. Að sögn Sævald-
ar hefur þessi mikla blóðtaka hjá lið-
inu undanfarið reynst ungum leik-
mönnum liðsins erfið. Hann vonast
þó til að starfið innan félagsins sé
komið í réttan farveg eftir ólgusjó
undanfarinna vikna. Sú uppstokkun
sem hófst á körfuboltanum á Akra-
nesi á síðasta ári gengur þrátt fyrir
allt vel og eru yngri flokkarnir að
standa fyrir sínu. Sem dæmi um það
nefnir Sævaldur það að þrír flokkar
eru sem stendur í b-riðlum á íslands-
mótinu og eiga þeir allir góða
möguleika á að komast í a-riðil í
næstu "turneringu". Enn fremu sagði
Sævaldur að áfram yrði lögð megin-
áhersla á yngri flokkana en að sjálf-
sögðu vonuðust menn til að fara að
sjá hagstæðari úrslit hjá meistar-
flokki félagsins. HJH
Það ætlar að reynast þrautin
þyngri að velta hinum getspaka
Sigurði Sverrissyni úr sessi. Ekki
reyndist Sigþór Eiríksson Sigurði
mikil hindrun því aðeins tveir
leikir vöfðust tyrir Sigurði en Sig-
þór hafði vitlaus merki á fimm
leikjum. Lokatölur því 11-8 fyrir
Sigurð. Sigþór skoraði á Aka
Jónsson sem er sannfærður um að
Siguriur Aki Júnssun
Sverrisson
honum takist það sem Sigþóri og
Elínbjörgu misfórst, þ.e. að sigra
Sigurð. Aki er, líkt og Sigurður,
harður stuðningsmaður Liverpool
og er því harla kátur þessa dagana.
Svona líta seðlar þeirra félaga út.
1. Watford-Wolves Aki IX Sigurður 1 2
2. Leeds-Newcastle 1X2 1
3. Tottenham-Ipswich 1 1
4. Man.Utd.-Southampton 1 IX
5. Charlton-Blackbum X2 1X2
6. Sunderland-Everton X 1
7. Middlesbro-Fulham X2 1 2
8. Leicester-West Ham 1X2 X
9. Crewe-Man.City 1 2 2
10. Bumley-Millwall 1 IX
11. Norwich-Wimbledon 1 1
12. W.B.A. -Shejf. Wed. 1 1
13. Bamsley-Gillingham 1 1X2
Islandsmeistararnir
taplausir en samt
í neðsta sæti
Hjálmur Dór skoraði tvö mörk gegn Fram
Islandsmeistarar ÍA riðu ekki
feitum hesti frá fjögurra liða mót-
inu sem þeir tóku þátt í um síðustu
helgi. Skagamenn enduðu í neðsta
sætinu en þrátt fyrir það töpuðu
þeir ekki leik í venjulegum leik-
tíma. Fyrri leikurinn var gegn
Grindvíkingum og fór hann 1-1.
Ellert Jón Björnsson skoraði mark
Skagamanna en Grindvíkingar
jöfnuðu tuttugu mínútum fyrir leiks-
lok. Skagamenn sóttu nær látlaust
það sem eftir lifði leiks en tókst
ekki að nýta nein af þeim fjöl-
mörgu færum sem þeir fengu.
Engin framlenging var spiluð og
því farið beint í vítaspyrnukeppni.
Þar reyndust Grindvíkingar sterk-
ari, skoruðu úr átta af níu spyrnum
sínum en Skagamenn úr sjö. Það
var því hlutskipti Skagamanna að
leika um þriðja sætið tveimur dög-
um seinna gegn Fram. Skaga-
menn hófu leikinn gegn Fram af
miklum krafti og kom Hjálmur Dór
Hjálmsson Skagamönnum yfir í
fyrri hálfleik með góðum skalla en
Framarar svöruðu með tveimur
mörkum í upphafi seinni hálfleiks.
Hjálmur var síðan aftur á ferðinni
rétt fyrir leikslok með öðru marki
sínu i leiknum og þar við sat, loka-
tölur 2-2. Sem fyrr var farið beint
í vítaspyrnukeppni að loknum
venjulegum leiktíma og aftur voru
leikmenn IA slakari á vítapunktin-
um en andstæðingurinn. Skaga-
menn máttu því bíta í það súra
epli að enda í fjórða og neðsta
sæti þrátt fyrir að tapa ekki leik.
HJH