Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 20.12.2001, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 20.12.2001, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra heimsótti verksmiðjuna Trico á Akranesi í morgun og kynnti sér það frumkvöðlastarf sem þar á sér stað. Eins og sagt hefur veriðfrá í Skessuhomi hefur Trico náð góðum árangri í þróun og markaðssetningu á sérstökum eldvamar- fatnaði og ekki var annað að sjá en að ráðherra litist vel á það semfyrir augu har. Staðardagskrá 21 fer vel af stað í Borgarbyggð Að sögn Hólmfríðar Sveinsdóttur verkefnisstjóra Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hefur Bæjarstjórn Borgarbyggðar ákveðið að koma á Staðardagskrá 21. Staðardagskrá 21 er heildaráædun um þróun hvers samfélags fyrir sig og jafnframt for- skrift að sjálfbærri þróun. Hólm- fríður Sveinsdóttir var ráðin til að stýra verkefninu í Borgarbyggð og hefur hún þegar hafið störf. Hólmfríður segir verkefnið fara vel af stað og áhuga íbúanna fari fram úr sínum björtustu vonum. "Eitt af megin markmiðum verk- efhisins er að virkja íbúana til þátt- töku. Þannig hefur öllum íbúum, félagasamtökum og fyrirtækjum verið boðin þátttaka í tengslahópi. Meðal hlutverka tengslahópsins er að vera verkefnisstjóra og stýrihópi verkefnisins til ráðgjafar. Hópurinn mun líka gegna stóru hlutverki í markmiðssetningu fyrir hvern málaflokk. Nú þegar hafa 38 ein- staklingar skráð sig til þátttöku og enn er verið að bæta við áhugasömu fólki," segir Hólmfríður. Stýrihópur verkefnisins fundaði fyrir skömmu og segir Hólmfríður umræðurnar hafa verið líflegar og skemmtilegar. "Stýrihópur verk- efhisins í Borgarbyggð hefur á- kveðið að taka fyrir alls 13 mála- flokka. Málaflokkarnir eru: holræsi og fráveitur; úrgangur frá heimil- um og fyrirtækjum; vatnsból og gæði neysluvatns; Menningarminj- ar og náttúruvernd; umhverfis- fræðsla í skólum; skipulagsmál; eyðing meindýra; atvinnulífið; op- inber innkaup; neyslumynstur og lífstíll; ræktun og útivist; börn og Hólmfríður Sveinsdóttir verkefnissljóri staðardagskrár 21 unglingar; og eldri borgarar." Til að kynna verkefnið fyrir íbú- um Borgarbyggðar var haldinn borgarafundur í Hótel Borgarnesi þann 22. nóvember sl. Þrátt fyrir aftakaveður mættu rúmlega 40 manns á þann fund. GE Björgunarfélags Akraness verður í Jónsbúð, Akursbraut 13 og að Ægisbraut 19 Opnunartími Fimmtudaginn 27. des. Föstudaginn 28. des. Laugardaginn 29. des. Sunnudaginn 30. des. Gamlársdag Sunnudaginn ó. janúar (emungis i Jonsbuo) Oskum öllum Akurnesingum og nœrsveitamönnum gleðilegra jóla og farsœls komandi árs með þökk fyrir góðan stuðning undanfarin ár. —zr~- ■ SIYSAVARNAFÉLAGIÐ LANDSBJÖRG kl. 13-22 Id. 13-22 kl. 13-22 kl. 13-22 kl.10-16 kl.13-18 Jónsbúð - Sfml 4314450 Ægisbraut 19 - Slml 4313123 SHA fær milljarð Fjárveiting til Sjúkrahúss Akraness á næsta ári verður tæpur milljarður eða um 970 milljónir króna og hefur því hækkað um rúmlega 8% frá árinu 2001. Fjár- lagafrumvarp gerði ráð fyrir 940 milljón króna framlagi og við af- greiðslu fjárlaga kom til viðbótar- framlag að fjárhæð 28,7 milljónir króna, aðallega vegna uppreikn- ings á launabótum. Rekstur SHA á þessu ári er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Samkvæmt rekstraryfir- liti SHA frá janúar til nóvember er rekstrarafgangur þessa tímabils 11,8 milljónir króna, eða um 1,5% af samanlögðum tekjum og fram- lagi ríkisins. Til samanburðar nam neikvæð rekstrarafkoma síðasta árs þetta tímabil 18,2 milljónum króna, eða 2,4%. K.K. Loftmynd af fyrirbuguðum dvalarstað Keikós, innan við Stykkishólm við Baulutanga í Breiðafirði. Velferð Keikós -vel bornið við Stykkishólm Nýverið luku þau Kobert A. nágrenni Stykkishólms eru ekki Stefánsson og Menja von Schma- lensee, fyrir hönd Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi, við skýrslu fyrir Ocean Futures Society (Frelsum Willy/Keikó samtökin) sem ber yfirskrifdna: Is it sensible to move the killer whale Keiko to a non-enclosed bay in Breiðafjordur? Er tilgangur skýrslunnar sá að svara því hvort skynsamlegt sé (með vel- ferð Keikós í huga) að flytja há- hyrninginn í opið hafsvæði Breiða- fjarðar, inn af Stykkishólmi við Baulutanga. I skýrslunni kemur fram að Stykkishólmur sé að mörgu leyti á- kjósanlegur staður fyrir Keikó. Helstu kostirnir eru samkvæmt skýrslunni eftirtaldir: tiltölulega lítil skipaumferð er um Stykkis- hólmshöfh, Stykkishólmur er í á- gætri nálægð við Reykjavík (172 km eða 2 tíma akstur), fiskiveiðar í miklar og alla nauðsynlega þjón- ustu má sækja til Stykkishólms. Hugsanlegir gallar eru effirtaldir: hætta vegna neta og skipa (sem er þó lítil vegna lítillar skipaumferð- ar), hætta á því að ís geti ógnað Keikó er hverfandi vegna þess að hann verður geymdur á opnu haf- svæði og þá er ekki talin þörf fyrir nein auka skjól fyrir náttúruöflum, þó hann sé á opnu hafsvæði, vegna hinna góðu náttúrulegu skjólgóðu eyja sem er að finna í Breiðafirðin- um. Niðurstaða skýrslunnar er sú að hugmyndin um að flytja Keikó að Baulutanga sé allrar athygli verð. Er þar mælt með því, með velferð Keikós í huga, að Keikó verði hafð- ur á opnu hafsvæði, hvort sem hon- um verður valinn staður í Breiða- firðinum eða annars staðar. smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.