Skessuhorn - 20.12.2001, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001
Kolbnin Ýr Kristjánsdóttir stóð sig frábærlega á Evrópumeistaramót-
inu sem fram í Antwerpen um síðustu helgi. Kolbrún Ýr er ekki óvön
góðum árangri í sundlauginni þó segja megi að nú sé hún að ná sér á
strik aftur eftír smá lægð að undanförnu. Kolbrún Ýr sýnir á sér hina
hliðina í þessari viku.
Nafn: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir
Fœðingadagur og ár: 11. nóvember 1983
Starf: Nemi
Fjölskylduhagir: A fóstu (Marías Hjálmar Guðmundsson)
Hvemig bíl áttu: Reunault Megan, mamma ogpabbi eiga hann samtl!
Uppáhalds matur: Maturinn hennar mömmu
Uppáhalds drykkur: Islenska vatnið er best
Uppáhalds sjónvarpsefni: Horfi á hvad sem er.....
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Ulfar í Spritz tíví
Uppáhalds leikari innlendur: Ingvar Sigurðsson
Uppáhalds leikari erlendur: Sean Connery og tnargir fleiri.
Besta bíómyndin: Mary Poppins
Uppáhalds íþróttamaður: Ríkharður Daðason frœndi
Uppáhalds íþróttafélag: ÍA auðvitað...
Uppáhalds stjómmálamaður: Fylgist voða lítið meðþessu....allir bara!
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Ekki hugmynd...enginn sérstakur.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Lenny Kravitz
Uppáhalds rithöfundur: Steinun Jóhannesdóttir
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjóminni: NO COMMENT
Hvað meturðu mest ífari annarra: Þegarfólk segir mér satt!!
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Þegar fólk fer á bak við mig
og þegarfólk er að reyna vera einhver annar en það er.
Hverþinn helsti kostur: Akveðin
Hver er þinn helsti ókostur: Það er hvað ég er hrikalega óskipulögð stundum
ogþað getur verið soldið slæmtþegar að ég er í skóla og að æfa 8 sinnurn í viku!
Ertu hjátrúarfull fyrir keppni: Nei ekkert rosalega....en samtþarf ég oftast
að vera búin að heyra eitthvað í mömmu áður en ég keppi!!
Afhverju byrjaðirþú að afa sund: Byijaði að æfa 7 ára en byrjaði í
sundskóla 5 ára.
Hvað geturþú synt lengi í kafi: Rúmlega 2 ferðir í Jaðarsbakkalaug
Stærsta stundin áferlinum: Olymphdeikamir í Sidney 2000
Hvert er þitt æðsta takmark í sundinu: Vera með þeim allra bestu. Fikra mig
ofar á heimslistanum
Eitthvað að lokum: Þakka bara öttumfyrir stuðninginn og bara fyrir að hafa haft trú á mér!!
Kjúklingur með Thailensku ívafi
og grænmetistjútti
(Allt óvenjulegt er skemmtilegt)
Að þessu sinni kíkjum við inn í
eldhúskrókinn á Bjarnarfossi í
Staðarsveitinni á Snæfellsnesi. Þar
seiðir Sigríður Gísladóttir fram
pottagaldra síha, en hún gengst af
einlægni við því að vera sælkeri í
merg og bein. Hún fékk má segja
sitt eldhúsuppeldi á Hótel Búðum,
en hún var einn eigenda þess á ár-
unum frá 1980 - 1994 auk þess að
stýra því um árabil. Segist Sigríður
vera mikið fyrir nýstárlegan mat,
en síður þennan hefðbundna ís-
lenska, og nefhir sérstaklega ýmsa
réttí frá Tælandi og Spáni. Hún er
smekkkona enda starfandi mynd-
listarmaður auk þess að kenna
myndlist við Lýsuhólsskóla. Hún á
varla lýsingarorð til að lýsa ánægju
sinni með sumar nýjar lífrænt
ræktaðar íslenskar afurðir, sérstak-
lega grænmetí og krydd, og mælist
tíl þess að slíkt hráefni verði efrir
föngum notað í uppskrift sína.
Hún gefur okkur hér uppskrift að
tælenskum kjúklingi og segir van-
anum stríð á hendur.
Enginn eldhúskrókur er óhultur
fyrir Siggu Gísla sem erfljót að þefa
uppi eitthvað óvenjulegt og
skemmtilegt eins og þessar niður-
lögðu marakósku sítrónur sem eru í
krukkunni.
Steikið eitt stk. meðalstóran kjúkling. Strá yfir hæfi-
legu magni af salti, pipar, uppáhalds karrýinu, olíu og
sítrónusafa. Um. 1 1/2 klukkustund í ofni.
Kælið kjúklinginn.
Rífið allt kjötið af og geymið á meðan grænmetið er
steikt.
Varðveita soðið auðvitað.
3 dljasmin hrísgrjón
6 dl Vatn
Suðan látin koma upp og látið sjóða í nokkrar mínút-
ur. Hrært tvo hringi, þrisvar sinnum. Slökkva undir
og hafa lokið á. Látið standa á hellunni þar tíl vatn-
ið er gufað upp - venjulega passlegt þegar maturinn
er settur á borðið.
Grænmetistjúttið:
1 stk. Chilly pipar (meðal stór)
Engifer
Kóriander
Hvítlaukur
Salt ogpipar
Allt saxað smátt og steikt saman. Út í þetta fer síðan
gróff skorið:
Paprika - Gul, rauð og græn - ein af hverju.
1 stk. Stór laukur
Slatti afléttsoðnum gulrótum
Slatti af léttsoðnu Broccoli
Einn lítill bakki af baby com (léttsoðið)
Grænmetið er steikt saman þar til það er orðið mjúkt
undir tönn. Niðurrifnum kjúklingnum er blandað
saman við. Borið fram strax með jasmin hrísgrjónum
og ferslcu salati.
Ath. Allt annað ferskt og gott grænmetí getur geng-
ið. Ferskar kryddjurtir er hægt að nálgast orðið í
flestum verslunum. Kóriander fæst í krukkum og
kemur alveg í stað þess ferska - Smakka sig bara á-
fram, það á að vera kóriander bragð af réttinum.
Menningarfulltrúi
Snæfellsbæjar
Fyrir skemmstu sagði Skessu-
horn frá því að fyrirhugað væri að
ráða lista- og menningarfulltrúa
Snæfellsbæjar. A bæjarstjórnar-
fundi í Snæfellsbæ þann 6. desem-
ber barst erindi frá bæjarstjóra,
Kristni Jónassyni, varðandi ráðn-
ingu í stöðuna en hann upplýsti þar
að fjórar umsóknir hefðu borist í
starfið. A fundinum kynnti bæjar-
stjóri umsóknirnar og lét þess getið
að þær hefðu allar verið frambæri-
legar. Tiltók hann sérstaklega um-
sóknir Elínar Unu Jónsdóttur og
Daníels Freys Jónssonar sem hann
sagði hafa verið mjög góðar og
sambærilegar hvað varðar mennt-
un. Hinar tvær umsóknirnar voru
frá Ragnheiði Víglundsdóttur og
Yngveldi Karlsdóttur en Kristinn
lét þess getið að Ragnheiður hefði
unnið mjög gott og óeigingjarnt
starf í Pakkhúsinu. Asbjörn Ottars-
son, bæjarfulltrúi, tók undir með
bæjarstjóra og sagðist vilja fyrir
hönd bæjarstjórnar þakka Ragn-
heiði hennar störf við Pakkhúsið.
Var gengið til atkvæða um um-
sækjendur og hlaut Elín Una Jóns-
dóttir öll greidd atkvæði bæjar-
stjórnar.
Er gert ráð fyrir að staða lista- og
menningarfulltrúa Snæfellsbæjar sé
60% starf og samþykktí bæjarstjórn
að fela bæjarstjóra að ganga til
samninga við Elínu Unu og leggja
að því loknu starfssamning fyrir
bæjarstjórn. smh
Flestir búnir að tengja
Mikil ánægja
er meðal íbúa í
Dalabyggð
með nýju hita-
veituna. Nú
þegar er búið
að tengja hana
inn á um 90%
heimila á leið-
inni frá Gröf í
Miðdölum í
Búðardal. Að
sögn Gunnólfs
Lárussonar hjá
Dalabyggð er vatnið um 65-68
gráðu heitt þegar það kemur í Búð-
ardal. Eigendur þeirra húsa sem
kyntu áður með þilofhum fá 120
Frá opnun hitaveitu Dalabyggðarfyrir sléttu ári síðan.
þúsund króna styrk til framkvæmd-
arinnar, en þeir sem höfðu vatns-
ofna fyrir fá 36 þúsund krónur til
breytinga hjá sér.
MM
Könnunarviðræðum hafhað
Hreppssnefndum nágrannasveit-
arfélaga Akraness var fyrir
skemmstu sent erindi þar sem ósk-
að var eftír könnunarviðræðum um
kosti og galla sameiningar allra
sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar.
I bréfi hreppsnefndar Skilmanna-
hrepps, dagsett 10. desember síðast-
liðinn er þessari ósk um könnunar-
viðræður hafnað. K.K.
Fjárhagsáætlun Borgar-
byggðar samþykkt
Leikskólabygging á Bifröst vegur hvað þyngst ífiárhags-
áætlun sveitarfélagsins jyrir ruesta ár.
Fjárhagsáætlun Borg-
arbyggðar fyrir árið
2002 var samþykkt á
fundi bæjarstjórnar
þann 13. desember s.l.
Samkvæmt fjárhagsá-
ætluninni er gert ráð
fyrir að skatttekjur árs-
ins 2002 nemi 604 millj-
ónum króna sem er um
8% hækkun á milli ára.
Þær skiptast þannig að
útsvarstekjur eru áætl-
aðar 414 milljónir
króna, fasteignagjöld 67
milljónir króna og
framlög úr Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga 123
milljónir króna. Þjónustutekjur eru
áædaðar um 140 milljónir króna.
Kostnaður við rekstur málaflokka
að frádregnum þjónustutekjum
nemur 537 milljónum króna. Þar af
fara 330 milljónir króna eða 55% af
skatttekjum til fræðslumála, þar
með taldir leikskólar. Framlegð fyr-
ir fjármagnsliði nemur samkvæmt
áæduninni 67 milljónum króna sem
er um 11% af skatttekjum. Rekstr-
aráætlunin einkennist af hækkun
launakosmaðar í kjölfar kjarasamn-
inga sem gerðir hafa verið á árinu
2001 og á móti að fylgt verði að-
haldssemi í rekstri sveitarfélagsins.
Til ffamkvæmda og fjárfestinga
eru áætlaðar um 140 milljónir
króna á árinu 2002. Þar vega þyngst
áform um bygginu leikskóla á Bif-
röst en endanlegar tillögur þar að
lútandi liggja ekki fyrir. Mikil upp-
byggingu hefur verið á Bifföst síð-
ustu misseri og enn frekari upp-
bygging er ráðgerð þar á næsta ári.
Samkvæmt fjárhagsáædun Borg-
arbyggðar eru lántökur á árinu
2002 áædaðar um 150 milljónir
króna en að afborganir eldri lána
nemi um 70 milljónum króna. Um
næstu áramót verða gerðar breyt-
ingar á reikningsskilum sveitarfé-
laga sem mun jafnframt þýða breyt-
ingu á ffamsetningu fjárhagsáætl-
unar sem unnið verður að í byrjun
árs 2002.