Skessuhorn - 20.12.2001, Qupperneq 33
SKgSSIiliöBKl
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001
33
Viðbragðsaðilar á
Akranesi undir eitt þak
Björgunarfélag Akraness og
Rauðakrossdeildin á Akranesi hafa
sent bæjarráði Akraness bréf þar
sem kynntar eru hugmyndir um að
byggja sameiginlegt hús fyrir
Slökkvilið Akraness, Björgunar-
félagið og Rauðakrossdeildina.
Bæjarráð hefur tekið jákvætt í
erindið en telur nauðsynlegt að
fyrir liggi nánari upplýsingar um
kostnaðarhlið málsins áður en
ákvörðun verður tekin um málið.
Að sögn Hannesar Fr.
Sigurðssonar hjá Björgunarfélagi
Akraness kom þessi hugmynd upp á
borðið í tengslum við leit að lausn í
húsnæðismálum félagsins.
"Ekki hafa verið sett nein strik á
pappír enn sem komið er enda
einungis verið að kanna möguleika
á hugsanlegu samstarfi þessara aðila
í húsnæðismálum. Við þurfum að
byggja yfir starfsemi okkar og þessi
hugmynd að slá þarna þrjár flugur í
einu höggi og byggja yfir alla
viðbragðsaðila í bænum er hluti af
því sem er verið að skoða. Að setja
viðbragðsaðilana þrjá undir eitt þak
finnst okkur mjög forvitnilegur
möguleiki," sagði Hannes.
Málefni Slökkviliðsins á Akranesi
hafa verið mikið til umræðu
undanfarið og þar á meðal hefur
verið bent á nauðsyn þess að bæta
úr húsnæðismálum þess.
"Farið verður í að kanna
rýmisþörf og hugsanlega
þármögnun á næstunni en enn sem
komið er hefur lítið verið rætt um
hvar slík bygging yrði staðsett ef af
verður," sagði Hannes Fr.
Sigurðsson.
K.K.
Meiri metnaður -
magnaðri nemendur
Þróunarverkeftii í Grundaskóla á Akranesi
Um þessar mundir er unnið að
athyglisverðu þróunarverkefni á
unglingastiginu í Grundaskóla á
Akranesi. Verkefnið er undir
kjörorðinu : Meiri metnaður -
magnaðri nemendur. Markmiðið
með verkefninu er að útbúa
verkefhi fyrir nemendur sem ekki
fá nægilega ögrandi verkefni í
daglegu starfi. Einnig er ætlunin að
auka faglegt samstarf
umsjónarkennara á mismunandi
aldursstigum og í ólíkum
námsgreinum.
Undirbúningsnefnd stjórnar
verkefninu en í henni eiga sæti
Steinunn Guðmundsdóttir, Laufey
Karlsdóttir, Einar Viðarsson,
Sigurður Arnar Sigurðsson,
Hjördís Hjartardóttir og Erna
Guðlaugsdóttir.
Fjölbreytt verkefni
I hópnum sem taka þátt í
verkefninu í Grundaskóla eru 14
nemendur úr 9. og 10. bekk, 8
stúlkur og 7 piltar. Að sögn
Hjördísar Hjartardóttur kennara
fara nemendurnir í heimsóknir í
stóriðjuna hér í nágrenninu
Sementsverksmiðjuna, Járnblendi-
verksmiðjuna og Norðurál og
kynna sér starfsemina þar. ”í fyrstu
heimsókn er aðeins um kynningu
að ræða en síðan er ætlunin að kafa
dýpra og vinna að einstökum
verkefnum sem tengjast
fyrirtækjunum. Meðal verkefna
sem ætlunin er að leysa eru til
dæmis hvaða hráefni er notað,
hvaðan kemur það, hvernig fer
vinnslan fram, hvert fara
afurðirnar, í hvað eru afurðimar
notaðar og svo framvegis og því
koma greinar eins og
samfélagsfræði, náttúrufræði og
efnafræði við sögu," segir Hjördís.
Að sögn hennar hafa nemendur
fengið mjög góðar viðtökur.
Hvatt til sjálfstæðra
vinnubragða
Hjördís segir nemendurna þurfa
að glíma við margar ólíkar
spurningar í framhaldinu svo sem
eins og hver sé umhverfisstefna
fyrirtækisins. "Þeir þurfa að leita
svara við spurningum eins og
hvaða efni eru hættulegust?
Hvernig fer umhverfisvökmn
fram? Hver em samfélagsleg áhrif
svona verksmiðju, t.d áhrif á
fólksfjölda, starfsmenn, sögu
Akraness og fleira. Stóriðja og
raforkunotkun em fyrirferðarmikil
umræðuefni og því má spyrja af
hverju sé talað um virkjun og
stóriðju í einu og sama orðinu?"
Nemendur hittast að jaíhaði einu
sinni í viku og segir Hjördís þetta
vera hreina viðbót við smndaskrá
þeirra. Kennslumagnið er áætlað
40-50 kennslustundir. Smndum fer
kennslan fram á venjulegum
skólatíma en stundum seinni part
eða um helgar.
"Fyrst var farið í hópeflisútilegu
en síðan farin kynnisferð í
Norðurál á Grundartanga.
Lokaskil nemenda felast í að þeir
kynna verkefnið fyrir kennuram,
foreldmm, fulltrúum fyrirtækjanna
og ýmsum öðrum aðilum sem
tengjast verkefninu. Við ætlumst til
sjálfstæðra vinnubragða af
nemendum, þeir þurfa að afla sér
upplýsinga á vettvangi, í gegnum
netið, dagblöð, tímarit og aðra
fjölmiðla, úr bókum og
fyrirlestrum. Kennarinn er svona
meira í verkstjórahlutverki, hann
sér ekki um beina miðlun
upplýsinga en leiðir nemendurna í
gegnum verkið," segir Hjördís
Hjartardóttir kennari. K.K.
Kolbeinsstaðahreppur
Eyja- og Miklaholtshreppur
Yfir 4.000 myndir
5 Verö: 15.000,- kr. (báðar bœkurnar)
| 9.000,- kr. (ein bók)
z
g
| Upplýsingar og pantanir í síma 565 4282
Q
Reynir Ingibjartsson
'ASON hdl.
og skipasali
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
Nýtt á söluskrá
Kjartansgata 12, Borgarnesi.
Einbýlishús 114 ferm. og 44 ferm. bflskúr. Forstofa
flísalögð, stofa og hol (gangur) parketlagt. 4 parketlögð
herb. skápar í 3 herb. Eldhús parketlagt, ljós viðarinnr.
Baðherb. dúklagt, ljós viðarinnr., kerlaug/sturta.
Þvottahús flísalagt. Geymsla. Húsið stendur á góðum
stað með stórum garði.
Verð: 12.500.000.
Þórólfsgata 12A, Borgarnesi.
íbúð 96 ferm. á efstu hæð í þríbýlishúsi og 37 ferm.
bflskúr. Forstofa og stigi teppalagt. Stofa og gangur
parketlagt. Spónaparket á eldhúsi, brún viðarinnr. 4
parketlögð herb., skápar í 2 herb. Baðherb. flísalagt,
kerlaug. Geymslur í risi og sérgeymsla á neðri hæð.
Sameiginl. þvottahús.
Verð: 10.000.000.
Er rekstrarvandi aö hrjá fyrirtæki
þitt og/eöa er breytinga þörf?
Veiti alhliða þjónustu á sviði
rekstrarráðgjafar m.a.:
* markaðssetning
* áætlanagerð
* fjármálaráðgjöf
Tímavinna eöa föst verðtilboð.
Starfssvæði allt SV-hornið.