Skessuhorn - 23.11.2005, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005
Bygging
bílgeymslu
boðin út
BORGARNES: Framkvæmda-
sýsla ríkisins hefur óskað eftir tdl-
boðum í hönnun og ff amkvæmd-
ir við bílgeymslu fyrir tvær
sjúkrabifreiðar við Heilsugæslu-
stöðina í Borgarnesi. Stærð
geymslunnar er um 100 fermetr-
ar. Tilboð verða opnuð þann 6.
desember og verkinu skal lokið
eigi síðar en 31. maí á næsta ári.
-hj
Kappræður um
erfðaefhi
HVANNEYRI: Undanfarið
hefur farið fram mikil umræða
um hugsanlegan innflutning á
erfðaefni fyrir kýr. Fimmtudag-
inn 24. nóvember kl. 21.00
verða haldnar kappræður um
slíkan innflutning. Verða kapp-
ræðurnar haldnar í matsal
heimavistar Landbúnaðarhá-
skóla Islands á Hvanneyri.
Frummælendur verða valin-
kunnir menn úr landbúnaðar-
geiranum og stjórnandi um-
ræðnanna verður Gísli Einars-
son, fféttamaður. Kappræðurn-
ar eru haldnar til styrktar bú-
fjárræktarklúbbi LBHÍ. Að-
gangseyrir er 500 krónur.
-bj
Óskað upplýs-
inga um drag-
nótaafla
ALÞINGI: Guðjón Guðmunds-
son, sem nú situr á Alþingi í fjar-
veru Einars K. Guðfinnssonar
sjávarútvegsráðherra, hefur lagt
fram fyrirspum til sjávarútvegs-
ráðherra um dragnótaveiðar í
Faxaflóa. Oskar hann upplýsinga
um hversu mildll afli úr því veið-
arfæri hefur borist á land úr
Faxaflóa síðasdiðin fjögur fisk-
veiðiár. Einnig óskar hann upp-
lýsinga um hverjar hafi verið
aflaheimildir og afli einstakra
báta á þessum ártun hvar aflanum
hafi verið landað og í hve miklum
mæh á hverjum löndtmarstað.
-bj
Minnkandi afli
í október
á milli ára
VESTURLAND: í október var
landað á Vesturlandi 3.325 tonn-
um af sjávarfangi í höfnum á
Vesturlandi. A sama tíma í fyrra
var landað 4.248 tonnum þannig
að ríflega fimmtungs samdráttur
er á milh ára. Mestur er sam-
drátturinn í þorskafla. I ár var
landað 976 tonnum af þorski en í
fyrra var aflinn 1.636 tonn. A
fyrstu tíu mánuðum ársins var
landað samtals 87.601 tonni af
sjávarfangi en á sama tíma í fyrra
var búið að landa 143.971 tonni
og nemur samdrátturinn á milh
ára því rúmum 39%.
-hj
S
Attatíu og átta línubrjótar
Samtals 88 svokallaðir
línubrjótar komu til slátrunar í
slámrhúsinu í Búðardal í haust.
Þetta upplýsti sveitarstjóri á
síðasta fundi sveitarstjórnar.
Línubrjótar eru þær sauðkindur
kallaðar sem farið hafa milli
sauðfjárveikivarnahólfa. A
áðurnefndum fundi lagði Bryndís
Karlsdóttir fram svohljóðandi
tillögu: „Með vísan til þessa og í
ljósi þess að farin er af stað
umræða og vinna um að hætta að
bólusetja sauðfé og geitur við
garnaveiki í Dalahólfi nyrðra
skorar sveitarstjórn Dalabyggðar á
Sauðfjárveikivarnir að halda við
varnargirðingu á milli hólfa. I
haust var slátrað í sláturhúsinu í
Búðardal alls 88 línubrjótum, sem
skiptist þannig; 53 fullorðið og 35
lömb.“ Tillagan var samþykkt
samhljóða.
-hj
Fámennt en góðmennt íbúaþing
Síðastliðinn laugardag var haldið
íbúaþing í nýju sameinuðu
sveitarfélagi Borgarbyggðar,
Kolbeinsstaðahrepps, Borgar-
fjarðarsveitar og Hvítársíðu. Að
sögn Hólmffíðar Sveinsdóttur,
starfsmanns sameiningar-
nefiidarinnar var þingið gott að
öðm leyti en því að mæting var
frekar slök. „Eg veit ekki hvort túlka
má dræma aðsókn á þann veg að fólk
sé almennt sátt og hafi ekki meira
um sameininguna að segja. Það kom
líka fram hjá þeim sem mættu að
íbúar virðast almennt sáttir við
málefnaskrána og em jákvæðir og
bjartsýnir á ffamtíð nýs sveitarfélags.
Það var ýmislegt sem menn vildu
undirstrika og meðal annars kom
fram í umræðum í hópavinnu að
leggja bæri mun meiri áherslu á
málefhi aldraðra en þau em ekki í
nógu góðu standi í héraðinu í dag.“
Að sögn Hólmffíðar verða helstu
Ljósm: Þorgerður Gunnarsdóttir.
niðurstöður þingsins kynntar í
desember og síðan er ætlunin að
halda opirm fund effir jól. Þá verður
einnig haldið ungmennaþing fyrir
nýtt sveitarfélag á nýju ári. GE
I umræðum á Alþingi um
hugsanlega lækkun virðisaukaskatts
á veggjöldum um
samgöngumannvirki lét Guðjón
Guðmundsson varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins þau orð falla að
fella ætti með öllu niður gjald um
göngin enda hefur hann lagt tillögu
um það fyrir Alþingi, en málið náði
ekki ffam að ganga. Guðjón benti á
að hvergi væri á öðmm stöðum
greitt fyrir notkun mannvirkja
jafnvel þó þau væru reist í
einkaffamkvæmd. „Eg minni á að
Gjaldskyld göng en
ógjaldskylt monthús!
gongin em eina
samgöngumannvirkið á Islandi sem
er skattlagt. Ætli þar sé ekki
borgaður einn milljarður króna á
ári á sama tíma og enginn annar
borgar neitt? Það nefnir enginn
veggjald á tvöföldun
Reykjanesbrautar, Fáskrúðs-
fjarðargöng, Héðinsfjarðargöng og
hvað það heitir allt saman. Þetta
fyrirkomulag er jafnan réttlætt með
því að Hvalfjarðargöng séu
einkaffamkvæmd, sem er rökleysa
að mínu mati. Eins og ffam kom í
máli hæstv. ráðherra era alls konar
einkaframkvæmdir í gangi án þess
að lýðurinn sé skattlagður til að
borga niður einkaffamkvæmdina.
Eg minni á að nú stendur fyrir
dyrum að byggja 12 milljarða króna
monthús við Reykjavíkurhöfh í
einkaffamkvæmd. Ríki og borg ætla
að greiða niður kosmaðinn á 20
árum. Það nefhir enginn að leggja
gjald á alla þá sem reka nefið inn í
það fína hús,“ sagði
varaþingmaðurinn orðrétt.
UJ
Nýtt skrifstofu- og verslnnarhús
á teikniborðinu
Tillaga arkitektastofu Ingimundar
Sveinssonar að búsum á Digranesgötu 4 í
Borganmesi.
Frumhugmyndir að nýjum húsum
að Digranesgötu 4 í Borgamesi
hggja nú fyrir og em til kynningar
hjá eiganda lóðarinnar sem er
fasteignafélagið Borgarland ehf. Um
er að ræða óbyggða lóð á milli
Sparisjóðsins og Bónuss. Guðsteinn
Einarsson, ffamkvæmdastjóri
Borgarlands gerir ráð fyrir að
fyrirtækið byggi húsin sem um ræðir
og ýmist leigi eða selji rými í þeim.
Segir hann að um verði að ræða tvö
hús sem hægt verði að áfangaskipta
og jafnvel byggja í áföngum efrir
eftirspum. Tillagan gerir ráð fyrir
tveggja og þriggja hæða húsum sem
hýsa verslunar- og þjónusturými.
Gert er ráð fyrir þriggja hæða
verslunar- og skrifstofurými syðst,
verslanir yrðu á jarðhæð en
skrifstofur á efri hæðum. Gert er ráð
fyrir skyndibitastað með lúgusölu í
suðurenda. I tillögunum segir m.a:
„Nyrðri hluti byggingarinnar sem er
á tveimur hæðum fylgir klettunum
og sveigir til vesturs. Byggingin
undirstrikar þannig vægi byggingar
SPM og myndar um leið aðlaðandi
útirými sem veit út að tjörninni og
klettaveggnum. Verslunum og
veitingastað með aðgang að verönd
við tjömina yrði vel komið fyrir á
neðri hæð hússins en á effi hæð
mætti hugsa sér skrifstofuhúsnæði
sem hægt væri að innrétta með
margvíslegum hætti. Auðvelt er að
sjá fyrir sér að SPM gæti nýtt
húsnæðið ef þörf krefur."
Guðsteinn Einarsson segir að
hugmyndirnar munu nú liggja
frammi til kynningar og skoðunar
fyrir áhugasama aðila. Það var
arkitektastofa Ingimundar
Sveinssonar sem teiknaði húsin.
MM
Hvannir seldar
HVANNEYRI: í síðustu viku
var gengið formlega ffá kaupum
fasteignafélagsins Borgarlands
ehf á skrifstofuhúsinu Hvönnum
við Hvanneyrargötu 3. Seljandi
er sveitarfélagið Borgarfjarðar-
sveit. Kaupverð fæst ekki upp
gefið . -7mn
Hækka
hámarkshraða
GRUNDARFJÖRÐUR: Bæj-
arstjóm Grundarfjarðar felldi á
fundi í síðustu viku tillögu frá
Guðna E. Hallgrímssyni um að
falla ffá hækkun umferðarhraða í
50 km á Grundargötu. Gerði til-
lagan ráð fyrir að hámarkshraði
yrði áffam 35 km. I greinargerð
með tillögunni segir að fyrri
samþykkt um hækkun hámarks-
hraðans hafi verið byggð á tillög-
um Vegagerðarinnar um hverfis-
væna leið og komu verkffæðing-
ar hjá Verkfræðistofii Sigurðar
Thoroddsen að gerð þeirra til-
lagna. I greinargerð Guðna segir
meðal annars orðrétt: „Niður-
staða hönnunar á kantsteinum er
með þeim hætti að eklri er ætlast
til að fólk búi hér og ekki virtist
vera vilji til að taka tilht til þeirr-
ar athugasemdar né ræða um
hvað átt var við. Aðalmálið virð-
ist vera að ná upp hraða. Enn-
ffemur leggur undirritaður til að
breyting verði á kantsteinum og
að tilht verði tekið til þarfa íbú-
anna, því samfélagið byggist á að
hér búi fólk.“ Tillagan var felld
með sex atkvæðum gegn einu. -hj
Skemmtikvöld
BORGARFJ ÖRÐUR: Nem-
endur 10. bekkjar Varmalands-
skóla standa fyrir skemmtikvöldi
í félagsheimilinu Þinghamri,
fimmtudaginn 24. nóvember
klukkan. 20:30. Þar verður leikin
tónhst af ýmsum toga, stiginn
dans, fluttur leikþáttur, upplestur
og bögglauppboð að gömlum og
góðum sveitasið. Aðgangseyrir er
1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr.
fyrir fólk á grunnskólaaldri og
ffítt fyrir yngri. Kaffi og kmðerí
verður á borðum meðan á sýn-
ingu stendur. Allur ágóði af
miðasölu rennur í ferðasjóð 10.
bekkjar. -mm
Svínadalsvegur
kominn á sbrið
Framkvæmdir em nú hafiiar á
fullu við endurbyggingu vegarins
yfir Svínadal í Dölum. Það er
verktakafyrirtækið KNH frá
ísafirði sem annast fram-
kvæmdimar og á þeim bænum em
menn þekktir fyrir að láta hendur
standa ffam úr ermum, eða í þessu
tilfelli tönn ffam úr ýtu, eða
þannig.. Ytustjórinn á myndinni
heitir Pétur Jóhannesson.
Ljósm: GBender.
SKESSUH
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borq
Kirkjubraut 54-56 - Al
garnesi
tkranesi
Sími: 433 5500
Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuöi en krónur 900
sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 alla virka daga
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Fribriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is