Skessuhorn - 23.11.2005, Síða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005
^tcMunukj
stóli ráðherra hafði undirbúið
breytingar á yfirstjórn fyrirtækis-
ins meðal annars með því að und-
irbúa ráðningu á nýjum forstjóra
og við þá ákvörðun hans stóð ég og
axlaði þá ábyrgð sem fylgdi því.
Ætlunin var síðan sú að selja hlut
ríkisins en af ýmsum ástæðum, sem
of langt yrði að telja upp hér, tókst
það ekki. Markaðsaðstæður réðu
þar mestu en hrun varð á fjármála-
mörkuðum um það leyti sem salan
átti að eiga sér stað. Sú ákvörðun
að fresta sölunni var mér pólitískt
flugstjórinn sem átti að svipta skír-
teini flýgur ennþá, enda heill
heilsu. Það liggur fyrir að ég hef
beitt mér fyrir miklum breytingum
á flugöryggismálum í kjölfarið
bæði varðandi löggjöf, skipulag
flugslysarannsókna og framkvæmd
Flugmálastjórnar. Þá blasir við að
með samþykkt Alþingis á fjar-
skiptaáætlun og með breytingum á
fjarskiptalögum lagði ég grunn að
sölu Símans sem tókst svo vel og
skapar okkur skilyrði til frekari
uppbyggingar. Auðvitað má
St.Fransisckussystur ásamt hjónunum Sturlu og Hallgerði.
mjög erfið, en nú er komið á dag-
inn að sú ákvörðun var hárrétt.
Þessi þrjú mál voru mjög fyrirferð-
armikil í fjölmiðlum og það verður
að segjast eins og er að þar var
gengið fram með mjög ósann-
gjörnum hætti. Það var afar sér-
stakt að upplifa þessa umræðu.
Hún reyndi ekki síst mjög mikið á
mína fjölskyldu. A hverjum morgni
í langan tíma þurffi fjölskyldan að
hlusta á nýjar árásir á hendur mér.
Avirðingar sem voru ómálefnaleg-
ar og áttu sér ekki nokkra stoð í
raunveruleikanum. Einu mistökin í
Símamálinu svokallaða sem ég get
fallist á að hafa gert er að hafa fall-
ist á ráðningarsamning forstjórans
sem var til sama tíma og forstöðu-
menn ríkisstofnana voru ráðnir til.
Starfslok hans tóku mið af þessu.
Þau væru ekki talin til tíðinda í dag
miðað við þá samninga um kjör
forstjóra fyrirtækja sem í dag gilda.
Þannig orkar allt tvímælis þá gert
er.“
Þessi mikla fjölmiðlaumræða og
gagnrýni hafa verið mikil viðbrigði
fyrir þig og þína? ,Já þetta var ó-
skaplega erfiður tími. Fjölskyldan
stóð hins vegar mjög þétt saman
og við náðum að komast í gegnum
þennan ólgusjó og ég fann hversu
mikilvægt það er að eiga sterkt
bakland meðal flokksmanna sem
voru á vaktinni og veittu mér öfl-
ugan stuðning. Vissa mín að rétt
hefði verið staðið að málum í ráðu-
neytinu hélt mér við efiiið í þess-
um málum.“
Þegja nú
- sem höfðu hæst áður
En nú var sótt að þér úr öllum
áttum og ekki voru það bara póli-
tískir andstæðingar þínir sem þar
voru á ferð? „Nei það voru líka
nokkrir samflokksmenn mínir sem
grétu þessa umræðu og aðför að
mér þurrum tárum. En þannig er
það stundum í stjórnmálunum.
Lengi má mennina reyna. Sem
betur fer naut ég stuðnings forystu
flokksins og þingflokksins allan
tímann sem þessi átök stóðu yfir.
En þetta er liðinn tími sem er ekki
að trufla mig í dag.
Niðurstaða rannsókna Skerja-
fjarðarmálsins liggur nú fyrir og
stöðugt bæta framkvæmd á vett-
vangi opinberrar stjórnsýslu og
stjórnmálamenn verða að vera til-
búnir að taka gagnrýni og standa
fyrir breytingum að undangeng-
inni málefnalegri umræðu.
Niðurstaða þessara mála sýnir
hversu mikilvægt það er að stjórn-
málamenn íhugi mál vel, haldi ró
sinni, vandi alla vinnu og haldi síð-
an sínu striki hvað sem tautar og
raular í fjölmiðlum. Við megum
ekki láta hrekja okkur af leið sem
við höfum markað og erum sam-
færð um að er sú hin rétta.“ Nú er
niðurstaða þessara mála sem þú
áðan nefndir ekki jafn fyrirferðar-
mikil í fjölmiðlum og þegar ásak-
anir á hendur þér voru sem mest-
ar? „Nei það er rétt. Af einhverjum
ástæðum eru sumir fjölmiðlar ekki
jafn áhugasamir um málin nú og
þegar menn héldu að þeim væri að
takast að ganga frá mínum póli-
tíska ferli. Það segir sína sögu.“
Ekki á útleið
Fyrir síðustu Alþingiskosningar
urðu breytingar á kjördæmaskipan
landsins. Vesturlandskjördæmi,
Vestfjarðakjördæmi og Norður-
landskjördæmi vestra voru að
mestu sameinuð í nýtt Norðvest-
urkjördæmi. Fyrir voru sex þing-
menn Sjálfstæðisflokks og ljóst að
aðeins var hægt að gera ráð fyrir
þremur þingsætum til flokksins.
Prófkjör var ákveðið og þegar til
þess kom hafði verið sótt mjög að
þér sem ráðherra. Þetta hlýtur að
hafa verið mjög erfitt að leggja útí
þennan slag við aðstæður sem
þessar? ,Já því er ekki að neita. I
þessu prófkjöri tókust á margir
mjög hæfir menn sem hver og einn
gerði tilkall til áframhaldandi setu
á Alþingi. Þetta var erfiður slagur
en bakland mitt í kjördæminu er
mjög sterkt og mér tókst með
vinnu stuðningsmanna að standast
þessa áraun. Sigurinn í þessu próf-
kjöri var því mjög sætur og ekki
síður sú staðreynd að niðurstaða
kosninganna varð mjög góð í kjör-
dæminu. Kosningarnar styrktu
mig því mjög sem stjórnmála-
mann.“
Nú þykir ýmsum utan Vestur-
lands nóg um störf þín sem sam-
Vinur ogfélagi úr ríkisstjóminni-, Halldór Asgrímsson, forsœtisráðherra skálar hér við Sturlu í afmceli þess síðamefnda á Hótel Stykkis-
hólmi sl. laugardag.
skipulega eftir henni. Ég hef lagt
mig ffam um að koma á fót lang-
tíma áætlun í sem flestum þáttum
samgangna. Þar má nefna sam-
gönguáætlun, fjarskiptaáætlun,
umferðaröryggisáætlun og stefnu-
mörkun í ferðamálum. Þannig nýt-
ast fjármunir best og þannig
tryggjum við mestar framfarir. En
þrátt fyrir að miklar framfarir hafi
orðið á undanförnum árum eru
mörg og stór verk óunnin ekki síst
í Norðvesturkjördæmi. Að þeim
málum get ég vonandi unnið á-
fram.“
Sturla Böðvarsson er því ekki að
hætta afskiptum af stjórnmálum í
bráð? „Eins og ég sagði áðan hef
ég haft brennandi áhuga á stjórn-
málum frá barnsaldri og sá áhugi
fer síst minnkandi. A meðan ég hef
ánægju af starfinu gef ég kost á
mér til verka í stjórnmálum."
Þú munt því gefa kost á þér í
næstu kosningum? ,Já, ég tel mig
eldrar þínir alast upp í mjög ólíku
umhverfi en þú þegar félagsleg
réttindi voru af skornum skammti.
Þegar stéttabaráttan stóð sem hæst
hefur eflaust reynt á staðfestu sjálf-
stæðismanna. Þú hefur sjálfur
aldrei efast um að Sjálfstæðisflokk-
urirm sé flokkur allra stétta? „Nei
það hef ég aldrei gert. Auk foreldra
minna get ég nefnt tvo menn sem
höfðu afgerandi áhrif á mig sem
stjórnmálamann. Annar þeirra var
Magnús Jónsson frá Mel. Hann var
lengi fjármálaráðherra og var
bankastjóri Búnaðarbankans þegar
ég var að stíga mín fyrstu skref sem
sveitarstjóri. Sem ráðherra hóf
hann að setja reglur um opinber
innkaup og hvernig standa ætti að
framkvæmdum hjá hinu opinbera.
Hann var öflugur sem ráðherra og
hafði skýra sýn á málefni lands og
þjóðar. Til hans sótti ég mikinn
styrk og fróðleik í ýmsu er snéri að
rekstri sveitarfélagsins og ekki síð-
heimila ríkisstjórninni að ábyrgjast
500 þúsund króna lán sem Stykkis-
hólmshreppur vildi taka til vatns-
veituframkvæmda.
Um tíma voru margir á því að
pólitískum ferli Sturlu Böðvars-
sonar væri að ljúka. Að honum var
sótt úr öllum áttum. Líka úr Sjálf-
stæðisflokknum. Trúlega mun
dómur sögunnar sýna að þar hafi
ýmis öfl, þar á meðal fjölmiðlar,
farið offari. Sturla hafði ekki vanist
miklu mótlæti í sínum störfum.
Maðurinn sem hafði látið verkin
tala í Stykkishólmi var allt í einu
orðinn á allra vörum og flestir
höfðu á honum og verkum hans
skoðun. Það eru ekki margir sem
halda ró sinni í slíkum atgangi. En
orrahríðinni lauk og effir stendur
án efa sterkari stjórnmálamaður.
An efa gleðjast margir unnendur
bættra samgangna því að hann er
enn að störfum.
-Halldór Jónsson.
hafa verk að vinna, en það er fólks-
ins að velja frambjóðendur."
Veldur hver á heldur
Aðeins að þínu stærsta pólitíska
vígi, Stykkishólmi. Þar varð mikið
áfall þegar hörpudiskveiðar lögð-
ust af. Fyrirtæki styrktu sig í stað-
inn í rækjuveiðum sem nú hafa að
mestu lagst af. I lögum um stjórn
fiskveiða er gert ráð fyrir að bæta
slíkar skerðingar en þær bætur eru
aðeins tímabundnar því löggjafinn
virðist ekki hafa reiknað með að
hrun í veiðum yrði nema um nokk-
urra ára skeið. Verður ekki að end-
urskoða þessi ákvæði í lögunum?
„Þessi staða sem upp er komin
meðal annars í Stykkishólmi er
mjög sérstök. Ég minni á að þegar
kvótakerfi var sett á voru bátar sem
hófu skelveiðar og þróuðu þær að
greiða fyrir að halda rétti til þeirra
veiða með því að láta hluta þorsk-
heimilda sinna. Við verðum að
horfa til þeirrar staðreyndar þegar
brugðist verður við þeim vanda
sem nú er uppi í Stykkishólmi og
fleiri stöðum. Við verðum að taka
tillit til þessarar aðstæðna. Stykkis-
hólmur er hins vegar mjög öflugt
samfélag sem stendur á gömlum
merg og íbúar þar munu eflaust
takast á við þá erfiðleika sem að
þeim steðja og vinna sig útúr
þeim.Við þessar aðstæður skiptir
svo miklu máli að innviðir samfé-
lagsins hafi verið byggðir vel upp
og þjónustan við bæjarbúa góð og
hagkvæm. Þar gildir að veldur hver
á heldur.“
Flokkur alla flokka
Þú nefndir hér áður það póli-
tíska umhverfi sem þú varst alinn
upp í og mótaði þig að nokkru
leyti sem stjórnmálamann. For-
ur á hinum flokkspólitíska vett-
vangi. Hinn maðurinn var frændi
minn dr. Þórir Kr. Þórðarson pró-
fessor í guðfræði við Háskóla Is-
lands. Hann var um tíma borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Þegar Bjarni Benedikts-
son var borgarstjóri kallaði hann
Þóri til ráðuneytis þegar hið um-
fangsmikla félagslega kerfi Reykja-
víkurborgar var skipulagt að
stærstum hluta og komið á. Þórir
kom oft á heimili foreldra minna
og hann hafði mikil áhrif á mig.
Verk hans og samstarfsmanna hans
í Reykjavíkurborg sönnuðu fyrir
mér svo ekki varð um villst að
Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur
allra stétta. Flokkur sem leggur
höfuðáherslu á frelsi einstaklings-
ins til orða og athafna. Jafnframt er
það grundvallaratriði í starfi
flokksins að tryggja ákveðið félags-
legt öryggisnet fyrir borgarana.
Starf flokksins hefur alla tíð mótast
af þessum hugsjónum og tryggt
hér góð lífskjör. Slíkur flokkur
hlýtur að laða fjölda fólks til starfa
og ég er einn þeirra sem finnst afar
gefandi að fá tækifæri til þess að
starfa undir hans merkjum."
Stundum er það sagt að ekkert
sé nýtt undir sólinni og ekkert í líf-
inu sé tilviljun. Um það skal ekki
felldur dómur hér. Sturla nefnir
hér að framan Gunnar Thorodd-
sen, sem fyrst var kosinn á þing
fyrir Snæfellinga. Sturla nefnir
einnig að þegar hann kom til starfa
í Stykkishólmi hafi eitt af mest að-
kallandi verkefnum sveitarfélags-
ins verið að bæta vatnsveitu bæjar-
ins. Þegar Elínborg Agústsdóttir
varð léttari 23. nóvember 1945 var
einmitt áðurnefndur Gunnar
Thoroddsen að leggja fram á Al-
þingi þingsályktunartillögu um að
gönguráðherra. Menn gantast með
það að brátt geti varla verið effir
nein ffamkvæmd í samgöngumál-
um á Vesturlandi svo athafnasamur
hafir þú verið í ráðherratíð þinni?
„Ég skal fúslega játa það að á síð-
ustu árum hafa orðið miklar fram-
farir í samgöngumálum í landinu
og þá ekki síst á Vesturlandi og ég
hef lagt grunninn að miklum sam-
göngubótum í Norðvesturkjör-
dæmi. Við megum ekki gleyma því
að framfarir hafa að sjálfsögðu
orðið mestar þar sem mest þörf var
Ljósm: Alfons Finnsson.
á framkvæmdum. Því miður voru
gríðarlega mörg verk óunnin á
Vesturlandi og mörg þeirra hafa
komist til framkvæmda á allra síð-
ustu árum. Hins vegar hafa einnig
orðið miklar framkvæmdir í öðrum
kjördæmum. Það blasir við öllum.
I samgöngumálum er mjög mikil-
vægt að hafa skýra stefnu og vinna