Skessuhorn - 23.11.2005, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005
19
Lifandi landbúnaðar
og sóknarfæri til
Lifandi landbúnaður og Bænda-
samtök Islands héldu fund að
Breiðabliki í Eyja- og Miklaholts-
hreppi 15. nóvember sl. Var hann
liður í fundaherferð sem nú stend-
ur yfir. Mjög góð þátttaka var og
var þetta fjölmennasti fundurinn til
þessa, en alls mættu 29 konur og 1
karl. Frummælendur voru Ragn-
hildur Sigurðardóttir verkefnastjóri
Lifandi landbúnaðar og Ami Jó-
steinsson, verkefnastjóri Sóknar-
færa til sveita. Arni kynnti verkef-
nið Sóknarfæri til sveita sem er um
viðskiptahugmyndir og hvernig á
að móta þær og koma þeim á fram-
færi. Ragnhildur kynnti verkefnið
Byggjum brýr, sem er styrkt af Le-
sveita
onardo da Vinci starfsmenntaáætl-
un Evrópusambandsins. Einnig
fjallaði hún um Lifandi landbúnað
sem er grasrótarhreyfing kvenna í
landbúnaði og er íyrir allar konur
sama hvort þær hafa áhuga á að
vinna heima á búi eða í félagsstörf-
um, eru í námi, handverki eða
hverju sem er. ÞSK
Tillaga um starfslokasamning felld
Sveitarstjórn Dalabyggðar felldi
á dögunum tillögu frá Guðrúnu
Jónu Gunnarsdóttur þess efnis að
fela sveitarstjóra að ganga frá
starfslokasamningi við aðstoðar-
mann sveitarstjóra, sem lét af
störfum fyrir nokkru. Eins og fram
kom í frétt Skessuhorns hefur
byggðaráð hafnað að greiða að-
stoðarmanninum fyrrverandi laun
í uppsagnarfresti þar sem hann
hafi þegar hafið störf hjá öðrum
vinnuveitanda. Tillaga sú sem
Guðrún Jóna lagði fram var
svohljóðandi: „Legg til að sveitar-
stjóri og sveitarstjórn gangi frá
starfslokasamningi við aðstoðar-
mann sveitarstjóra í samræmi við
kjarasamninga og lög og skyldur
um réttindi opinberra starfs-
manna. Treysti sveitarstjóri sér
ekki til að ganga frá umræddum
starfslokum legg ég til að leitað
verði til launanefndar Sambands
ísl. sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags.“ Tillagan var felld á
jöfnum atkvæðum, þ.e. tveimur
gegn tveimur atkvæðum. Þórður
Ingólfsson sem sat þennan fund
sveitarstjórnar lét bóka að hann
teldi sig ekki færan til að ræða
málið vegna starfs síns.
HJ
Getum við aðstoðað þig? / Ritgerðir & skýrslur Prentun & frágangur
% Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Kveldúlfsgötu 23-310 Borgarnes 437 2360 - 893 2361 olgeirhelgi@islandia.is
® Ertu 29+? ®
Viltu hitta fólk og fá borgað fyrir?
Á Shellstöðina í Borgamesi vantar fólk í hlutastörf,
aðallega eftir kl 18 á daginn.
Bflpróf og íslenska eiginlega einu skilyrðin
og svo auðvitað góða skapið.
Upplýsingar gefur Hjörtur
í síma 437 1282 eða 892 1884