Skessuhorn - 23.11.2005, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005
33
7^(XUU/l/U~^2:
Viltþú búa í þjómistiilaiisiim bæ?
Að versla í heimabyggð er gamall
og góður frasi. Hefur verið notað-
ur mikið úti í landi til að sporna við
að heimamenn beini viðskiptum
sínum til Reykjavíkur. Víða eiga
verslanir og þjónustufyrirtæki und-
ir högg að sækja og eru lítdl fyrir-
tæki í samkeppni við stóru risana í
Reykjavík. Víða utan höfúðborgar-
innar eru „stóru risarnir“ með úti-
bú. Er það mín skoðun að það sé af
hinu góða.
Hér á Akranesi hefur þessi ffasi
verið notaður mikið. „Verslið í
heimabyggð“. Mér finnst þetta
orðið úrelt og ekki gert til að auka
viðskipti hér á svæðinu. Eg er hins
vegar sammála inntaki orðanna.
Hvað er það sem skapar gott
samfélag? Það er góð opinber
þjónusta, góðir skólar, næg fjöl-
breytt atvinna, gott mannlíf o.m.fl.
Hér á Akranesi erum við mjög
lánsöm að hafa nokkuð fjölbreytta
flóru fyrirtækja og gefur það góð
atvinnutækifæri. Hins vegar þurf-
um við að gera enn betur. En
hvemig gemm við það?
Það er mín skoðun að það verður
hver og einn að líta í eigin barm og
skoða sína eigin hegðtm. Hvert
beinum við viðskiptum okkar? Ef
við beinum þeim markvisst út úr
bænum þá eram við að styðja fyrir-
tæki sem ekki era staðsett hér. Auð-
vitað er margt sem hér vantar og
við þurfum oft að leita yfir lækinn.
Að mínu mati era allt of margir sem
fara beint til Reykjavíkur með við-
skipti sín. Kanna ekki hvort varan
og/eða þjónustan er í boði hér. A
sama tíma er kvartað yfir því hvað
það era fáar verslanir á Akranesi og
of takmarkað vöruúrval.
„Það er vonlaust
að reka fyrirtæki á
Akranesi!“
Þessi frasi er mikið notaður og
vísar til þess hvað verslunum og
þjónustuaðilum hefur fækkað hér á
undanfömum árum. En að baki
liggja ýmsar ástæður. Mér hefur nú
sýnst ansi mörg fyrirtæki vera til
sölu í henni Reykjavík og er ég viss
um að hlutfallslega erum við ekkert
í verri málum en aðrir. Við-
skiptaumhverfið almennt hefur
breyst töluvert og er mjög erfitt
fyrir lítinn einkaaðila að standa í
samkeppni við stórfyrirtæki sem
eru með gildan höfuðstól og geta í
krafti stærðar sinnar náð hagstæð-
um innkaupum. I raun ættum við
að vera kannski þakklát fyrir það
hvað við þó höfum. En hvernig
getum við lagt okkar að mörkum?
Eg skora á ykkur Skagamenn að
kanna hvað er í boði. Gera saman-
burð og bera þá saman sömu hluti.
Það er ekki eðlilegt að bera saman
sérvöruverslum með hátt þjónustu-
stig við stórmarkað eins og Hag-
kaup og Rúmfatalagerinn, með
fullri virðingu fyrir þeim verslim-
um. Ef litið er til sérvöruverslana í
Reykjavík þá standast verslanir hér
á Akranesi fyllilega samanburð.
„Hér er enga
vinnu að fá!“
Þetta heyrir maður víða og þá
sérstaklega hjá konum. Hér eru
fáar verslanir og lítið val um þannig
störf. Það er alveg rétt. En er þá
ekki vit að líta í eigin barm og skoða
hvort við getum með einhverju
móti hjálpað til? Með því að beina
viðskiptum okkar innávið þá styrkj-
um við heimafyrirtækin og sköpum
atvinnu. Ef það er ekkert að gera í
versliminni þá er sjálfhætt. Þetta á
ekki bara við um verslanir heldur
einnig alla aðra þjónustu. Við þurf-
um að taka ábyrgð sjálf. Fyrirtæki
og stofnanir þurfa að beina við-
skiptum sínum hingað í mun meira
mæli. Þannig vinnum við saman að
því að skapa störf og styðja við þau
fyrirtæki sem hér eru. Þetta styður
hvert annað. Með því að efla versl-
un og/eða þjónustu þá styðjum við
hvort annað. Og gefúm öðrum fyr-
irtækjum tækifæri til að koma inn á
markaðinn og skapa þannig fleiri
störf. Sem dæmi um þetta má nefna
ferðaþjónustu. Hún er ekki einka-
mál þeirra sem standa í ferðaþjón-
ustu hér. Ef ferðamenn koma hér
t.d. að skoða söfúin þá eigum við að
stefna að því að þeir komi líka nið-
ur í bæ og kíki í búð eða fari á veit-
ingahús. Þannig er þetta hagmuna-
mál okkar allra.
„Það er allt svo
dýrt héma!“
I samanburði við hvað? Eins og
ég kom inn á hér áðan þá verðum
við að bera saman sambærilega
hluti. Auðvitað geta lítil fyrirtæki
ekki keppt við „stóru risana.“ Þess
merki sjáum við um gervalla
Reykjavík. Til að vekja athygli á sér
þurfa fyrirtæki að vera meðvituð
um markaðsstarf. Verslunar- og
þjónustufyrirtæki þurfa að láta vita
af sér. Það á aldrei að taka við-
skiptavininn fyrir sjálfsagðan hlut.
Inn um bréfalúguna streymir í
hverri viku bæklingar og kynning-
arefni frá stórmörkuðum í Reykja-
vík. Auðvitað verða verslunareig-
endur hér að láta vita af sér og
hvaða kostaboð þeir hafi að bjóða.
Við neytendur gerum þá kröfu að fá
vöruna á sama eða sambærilegu
verði.
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir,
formaður Markaðsráðs Akraness og
framkvæmdastjóri Viðskiptaþjón-
ustu Akraness ehf
Ljósmynd: Mats
Aðventan
í Safnahúsi
Fimmtud. 1. des. kl. 20:00 - í Safhahúsi, 2. hæð.
Þráinn Bertelsson -Valkyijur
Súsanna Svavarsdóttir - Dætur hafsins
Ragnar Amalds - Eldhuginn (Jörundur Hundadagakonungur)
Miðvikud. 7. des. kL 17:00 - í GamlaMjólkursamlaginu.
Pönnukakan hennar Grýlu- Brúðusýning
Leikari: Björgvin Franz Gíslason
Fimmtud. 8.des. kl. 17:00 - íSafhahúsi, 2. hæð.
Kristín Thorlacius- Les úr þýðingum sínum.
Guðni Kolbeinsson- Þýðingar m.a Skúli skelfir og Eragon
Sigrún Eldjám- Steinhjartað
Mánud. 12. des. kl 17:30 - í Sajhahúsi, 2. hæð
Norræna félagið. Nokkrir Islendingar segja ffá jólasiðum hinna
Norðurlandanna eins og þeir upplifðu þá.
Fimmtud. 15. des. kl. 20:00 - í Safhahúsi, 2. hæð
Asgeir Tómasson og Rúnar Júlíusson- Herra Rokk,
ævisaga Rúnars Júl.
Hreinn Vilhjálmsson- Bæjarins Verstu
Þorsteinn frá Hamri- Dyr að draumi
Guðmundur Magnússon- Thorsararnir- auður völd, örlög.
Magnús Kolbeinsson- Engjafang
Safnahús Borgarfjarðar, Bjamarbraut 4-6, Borgamesi
Netf: safhahus@safhahus.is • sími 430-7200
Stytti bt'ækur, muma lyál,
míð þér nýjati jakka.
'Nalgaób áðimv iideMujál,
mi er tími cv fraktwv.
\ri ö-.'j
. [.ijflS '
: J
i Jfehír 6i|
Tek að mér fata viðgerðir,
breytingar, nýsaum og hönnun.
Anna Dröfn, Borgarbyggð.
Simi 865 3899
Netfang: annadr@simnet.is
r \
Tillaga að Aðalskipulagi
Innri-Akraneshrepps 2002-2014
Hreppsnefnd Innri-Akraneshrepps hefur tekið aðalskipulag Innri-Akraneshrepps til fyrri umræðu
sbr. 2. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Hreppsnefnd Innri-Akraneshrepps auglýsir hér meðtillögu að Aðalskipulagi Innri-Akraneshrepps
2002-2014 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Greinargerð og skipulagsuppdrættir verða til sýnis frá og með 23. nóvember 2005 til og með
21. desember 2005 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofu sveitarféiagsins að Miðgarði
Á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hvalfjordur.is
Hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,105 Reykjavík
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir við skipulagstillöguna. Athugasemdir skulu hafa borist eigi síðar en 6. janúar 2006.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins, Miðgarði, 301 Akranes.
Þeirsem ekki gera athugasemdir við skipulagstillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkja hana.
Innri-Akraneshreppur 15. nóvember 2005
Ása Helgadóttir, oddviti
V___________________________________________________________________________________J
MÁLIIMGARDA GAR
afsláttur af hágæða
íslenskri innimálningu
Slippfélagið
LITALAND