Skessuhorn - 23.11.2005, Side 34
34
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005
Nýjar kirkjuklukkur og aðventustarf í Reyklioltskirkj u
Klukkum verður hringt í turni
Reykholtskirkju í fyrsta sinn nú í
upphafi aðventu. Turninn hefur
staðið óinnréttaður síðan kirkjan
var vígð fyrir tæpum áratug síðan.
Velgjörðarmaður kirkjunnar,
Norðmaðurinn Jan Petter Roed,
kostaði stiga og allan búnað í turn-
inn svo unnt yrði að koma klukkum
þar fyrir. Að því hefur verið tmnið
að undanfömu. I Reykholtskirkju
hafa verið tvær klukkur um aldir. Er
önnur, sú stærri, frá miðöldum en
sú minni frá árinu 1745. A hana er
letrað vers á dönsku:
Klokken lyder
Tiden gaar
Gud samle os
1 Englekaar
Tvær gamlar klukkur frá Hall-
grímskirkju í Saurbæ hafa nú bætzt
við: Em báðar gamlar, sú stærri ffá
1739 en minni klukkan gæti verið
talsvert eldri. Sóknamefnd Hall-
grímskirkju í Saurbæ og sr. Jón Ein-
arsson, prófastur stóðu að þeirri
ráðstöfun á sinni tíð.
Ný klukka hefur verið steypt
handa kirkjunni. Er hún stærst og
hluti gjafar Roeds. Klukkunum
verður hringt í turninum í fyrsta
skipti við upphaf aðvenmtónleika
Tónlistarfélags Borgarfjarðar,
Borgarfjarðarprófastsdæmis og
Reykholtskirkju sem haldnir verða
laugardaginn 26. nóvember og
hefjast klukkan 16.00 Þá syngur
Óperukór Hafnarfjarðar undir
stjórn Elínar Óskar Óskarsdóttur.
Kórinn er skipaður tæplega 70
söngvumm og undirleikarar verða
þau Peter Maté og Lenka Mateova.
Messað verður í Reykholti fyrsta
sunnudag í aðventu 27. nóvember
kl. 14.00. Vonast er til að Jan Pett-
er Roed verði viðstaddur ásamt
konu sinni.
Fjáröflun vegna
steindra glugga
Á Reykholtshátíð á liðnu sumri
greindi sóknarprestur frá áformum
um að koma fyrir steindum glugg-
um í hliðarstúkum kirkjunnar fyrir
næstu Reykholtshátíð, þegar fagnað
verður tíu ára vígsluafmæli kirkj-
unnar, sunnudaginn 31. júlí 2006. Á
árinu 2003 gaf frú Margrét Garð-
arsdóttir steinda glugga í stafnþil
kirkjunnar í minningu
eiginmanns síns, Halldórs
H. Jónssonar, arkitekts en
Garðar Halldórsson, arki-
tekt kirkjunnar er sonur
þeirra hjóna. Gluggarnir
em verk Valgerðar Bergs-
dóttur en hún vann á sín-
um tíma samkeppni um
gerð steindra glugga í
kirkjuna. Gluggarnir em
gerðir í Þýskalandi hjá
Glerverkstæði Dr. Oidt-
mann í Linnich. Myndir
af stafingluggunum má sjá
á heimasíðu staðarins
www.reykholt.is. Kort
með myndum af gluggun-
um era til sölu í Reykholti
en Sparisjóður Mýrarsýslu
styrkir verkefnið með því
að kosta útgáfu þeirra.
Allur ágóði af sölu kort-
anna rennur tdl listskreyt-
ingar Reykholtskirkju.
Velunnurum kirkju og
staðar sem vilja leggja
málinu lið er bent á reikn-
ing kirkjunnar í Sparisjóði Mýra-
sýslu; 1103 26 4248. Allur stuðn-
ingur er vel þeginn. Frekari upplýs-
ingar gefur móttökustjóri Snorra-
stofu, Dagný Emilsdóttir.
Að lokum skal geta þess að
fimmtudaginn 8. desember býður
Sparisjóður Mýrasýslu til aðventu-
tónleika ýmissa kóra í héraði í
Reykholtskirkju.
MM
Ung listakona á Akranesi
jólasveinakortin. „Eg vil ekki festa
mig í einhverju einu, vil ekki að
myndirnar mínar verði einhæfar, vil
hafa fjölbreytni í þeim áffam.“
Silvía með Sindra Leví t.v. ogjúlían Ómar.
Einhverjir kannast við bláu jóla-
kortin með myndum af jólasveinum
víðsvegar um Akranes sem seldust
vel fyrir síðustu jól. Það er ung Hsta-
kona af Akranesi, Sylvía Dröfn
Björgvinsdóttir, sem er höfundur
þessara skemmtilegu mynda. Þessi
jólakort em langt frá því að vera
einu verk Sylvíu. Hún hefur málað
og teiknað í mörg ár og hægt er að
finna verk eftír hana inná mörgum
heimilum, þó lítið hafi farið fyrir
henni, enda einkar hógvær og róleg
manneskja. Blaðamaður Skessu-
homs leit við hjá þessari efrúlegu
Hstakonu sem steftiir á að halda sína
fyrstu sýningu á Þorvaldsensbar í
Reykjavík 4. mars á næsta ári.
Sylvía býr ásamt unnusta sínum,
Inga Magnúsi Omarssyni og tveim-
ur sonum, þeim Sindra Leví Inga-
syni 5 ára og Júlían Omari Ingasyni
3 ára á Akranesi. Hún segir að sér
hafi alla tíð þótt gaman að mála og
teikna en ekki byrjað fyrir alvöm
fyrr en 13 ára. Þá gerði hún jólakort
til að senda ættingjum og vinum.
Það var svo 2003 sem hún bjó til
fyrstu jólaveinakortín sem nú em
orðin 9 og 3 ný koma út fyrir þessi
jól. Aðspurð um viðtökur fólks við
þessum kortum segir Sylvía: „Við-
tökumar hafa verið góðar, betri en
ég bjóst við. Þessi 3 nýju í ár em ffá
Reykjavík, smá pása af Akranesi,
kan^nski affur héðan á næsta ári.“
Næg verkefni
Sylvía er að vinna að hinum ýmsu
verkum þessa dagana. „Núna er ég
að leika mér aðeins að mála á spýtur.
Við fómm nokkrar skvísur; tengda-
mamma mín, mágkona og fleiri í
sumarbústaðaferð yfir helgi þar sem
við sátum og máluðum allan daginn,
algjörir draumadagar.“ Sylvía segist í
dag mála mest olíumyndir á striga,
þá allskonar myndir. Þegar hún er
spurð hvað það sé sem mest veití
henni innblástur í verk sín svarar
hún skjótt; „allt, ég fæ hugmyndir
allstaðar, þegar ég er að fara að sofa,
í vinnunni, í labbitúr eða hvenær
sem er.“ Sylvía segir fjallkonumynd-
imar í miklu uppáhaldi hjá sér, en
önnur þema em t.d. hólamyndir eða
Jólasveinakortin.
Listaljölskylda
Á meðan blaðamaður spjallaði við
Sylvíu sátu Sindri og Júlían hjá og
léku sér. Júlían lék að stómm bruna-
bíl en Sindri sat og teiknaði í bók. „-
Sindri teiknar mikið og litar, honum
finnst það mjög gaman. Sá það
einmitt í blaðinu um daginn að
mynd efrir hann var valin sem gjöf
frá Teigaseli (leikskóli Sindra) til
Gísla Gíslasonar bæjarstjóra þegar
hann hættí.“ Aðspurð um aðra lista-
menn í fjölskyldunni segir hún;
„einu sinni sá ég mynd eftir pabba,
bara þá á svona línustrikuðu blaði og
var sú mynd mjög flott, en fleiri
myndir hef ég ekki séð efrir hann.
Sysmr mínar báðar teikna og mála
og em mjög flínkar,“ útskýrir Sylvía
svo greinilegt er að listahæfileildnn
liggur í ættinni.
Sylvía hefur ekki sótt neitt list-
tengt nám, er eingöngu sjálffnennt-
uð. „Eg stefni á það mjög fljótega að
fara í skóla, þá Listaháskólann, mál-
arabraut. Einn daginn langar mig að
mála eingöngu. I dag hef ég lítinn
tíma til að mála því ég er með strák-
ana og vinn úti. Næ þá aðallega að
mála um helgar eða á nóttunni, þá
held ég mér vakandi ffam undir
morgun og er svo auðvitað þreytt
daginn eftir,“ segir Sylvía og hlær.
Fróðlegt verður að fylgjst rneð verk-
um þessarar efnilegu listakonu í
framtíðinni.
BG
Falleg og stíl-
hrein aðventu-
skreyting frá
Blómabúð Dóm.
Höfundur:
Brynja Aðalsteins-
dóttir.
Efni:
Pottur
Oasis
Kramarhtís
Gervigreni
Hreindýramosi og
skraut að vild
Borði
Gullgrein
Oasis er sett í
pottinn. Kramar-
húsunum komið
örugglega fyrir í
oasisnum. Yfirborð
oasis er svo þakið
með hrein-
dýramosa. Þá er gervigreni og fest með vír. Gullgrein smngið í
skrauti smngið í gegnum mosann. með skrautinu til að fullkomna
Slaufa er mynduð úr borðanum og skrautið.
Aðventuskreytingfrá
Blómabúð Dóru
Góð aðsókn á tónleika
Vökudagar á Akranesi hafa svo
sannarlega vakið mikla lukku þetta
árið. Það ætti ekki að fara ffamhjá
neinum að Akranes er nú sannkall-
aður tónlistarbær ekki síður en fót-
boltabær. Á síðusm þremur vikum
hafa nánast eingöngu verið haldir
tónleikar í Bíóhöllinni á Akranesi
og hafa þeir allir fengið mikla at-
hygli þannig að húsfyllir hefur ver-
ið. Þann 10. nóvember vom haldn-
ir tónleikar með Þjóðlagasveit
Akraness, Stefáni Hilmarssyni og
Eyjólfi Kristjánssyni. Miðamir á
þessa glæsilegu tónleika seldust
upp á innan við 10 mínútum enda
frábært hæfileikafólk á ferðinni.
Þjóðlagasveit Akraness stóð sig
með miklum sóma og fékk tón-
leikagesti svo sannarlega til að
ljóma. Stefán Hilmarsson og
Eyjóflur Kristjánsson hafa ávallt
verið góðir saman enda eiga þeir
báðir fjöldann allan af lögum sem
lifa í hjörtum Islendinga.
LI