Skessuhorn - 23.11.2005, Page 39
aAUsunuK.
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005
39
Útflutningur lítill á
unnu lambakjöti
A síðasta ári voru aðeins flutt út
609 kíló af fullunnu lambakjöti frá
Islandi að verðmæti rúmar 230
þúsund króna. Þetta kemur fram í
svari landbúnaðarráðherra á Al-
þingi við fyrirspurn Drífú Hjartar-
dóttur um útflutning dilkakjöts síð-
ustu fimm árin. Útflutningur á
fúllunnu lambakjöti hefur verið að
dragast saman því árið 2003 var út-
flutningurinn 1.558 kíló og árið
2002 var hann 1.738 kíló. Þá hefur
meðalverð farið lækkandi því árið
2002 var meðal FOBverð rúmar
638 krónur, árið 2003 var meðal
FOBverð tæpar 729 krónur en í
fyrra var verðið aðeins 378 krónur.
I fyrra var útflumingurinn nánast
til tveggja landa. Til Bretlands fóru
320 kíló og til Lúxemborgar fóru
275 kíló. Þá er ótalinn útflumingur
til Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna. Þangað fóru á síðasta ári
heil 14 kíló að verðmæti rúmar 44
þúsund krónur. Á árinu 2000 voru
hins vegar flutt út rúm 19 tonn af
fullunnu lambakjöti að verðmæti
rúmar 3 milljónir króna og meðal-
verðið því aðeins tæpar 162 krónur.
Mest var þá flutt út til Færeyja eða
rúm 17 tonn.
Þingmaðurinn spurði einnig um
útflutning á óunnu lambakjöti. A
árunum 2000-2004 voru flutt út
rúm 8.334 tonn að verðmæti rúm-
lega 2,5 milljarðar króna. Mesmr
var útflumingurinn á árinu 2003
eða 2.253 tonn. I fyrra var hann
hins vegar 1.732 tonn. Meðalverð á
hvert kíló var í íyrra tæpar 350
krónur. Mest var flutt út í fyrra til
Færeyja eða 353 tonn, til Bretlands
fóru 333 tonn og til Noregs 290
tonn. Gríðarlegur munur er hins
vegar á meðal FOBverði til ein-
stakra landa í fyrra. Má þar nefúa
að meðalverðið til Færeyja var tæp-
ar 323 krónur, til Bretlands var
meðalverðið 233 krónur, til Dan-
merkur 588 krónur og til Banda-
ríkjanna var meðalverðið 645 krón-
ur.
Það er athyglisvert að meðalverð
á hvert kíló af óunnu lambakjöti í
fyrra var aðeins litlu lægra en með-
alverðið á fullunnu lambakjöti.
Þá vildi þingmaðurinn einnig
vita um hvert skilaverð til bænda
hefði verið af útfluttu kjöti en í
svari ráðherra kemur fram að skil-
verð sé mál einstakra sláturleyfis-
hafa og því hafi ráðuneytið ekki að-
gang að þeim upplýsingum.
HJ
Folalda- og
tryppasýning á Stað
Hrossaræktarsamband Vesmr-
lands hélt folalda- og tryppasýn-
ingu í reiðhöllinni á Stað á sunnu-
dag. 17 ræktendur sýndu gripi sína,
þar af komu tveir úr Dölum. Flest
komu hrossin frá Svignaskarði og
Skáney. Um 200 manns mætm á
staðinn.
29 folöld og 9 trippi komu fram.
Folöldin voru undan 18 hesmm.
Aðall ffá Nýja Bæ er faðir 5 þeirra,
Sólon ffá Skáney 3ja, sex hestar
voru feður 2ja en 10 átm eitt af-
kvæmi. Tryppin vora undan 9 hest-
um. Þar af tveir sem einnig vora
feður af folöldum sem sýnd vora. A
þessu sést að Vestlendingar fara
víða með hryssur sínar undir hesta.
MM/BH
Úrslit urðu eftirfarandi:
Folöld:
1. Snarpur frá Eyri, jarpur
2. Ottar frá Svignaskarði, brún-
blesóttur
3. Þyturfrá Skáney, rmiður
Tryppi:
1. Hnjúkurfrá Hesti, l.v. móálótt-
ur
2. Furstifrá Skáney, l.v. svartur
3. Krafturfrá Lýsuhóli, l.v.jarpur
Ottómótíð 2005 í skák
Stórmót í skák til minningar um
Ottó Arnason var haldið í Olafsvík
um helgina og var þetta fjórða árið
í röð sem mótið er haldið. Á því
vora tefldar 8 umferðir og fyrri
hlutinn vora 7 mínúma hraðskákir
og seinni hlutinn 20 mínútna
skákir. Urslit urðu þau að Helgi
Ass Grétarsson, Sigurður Daði
Sigfússon og Stefán Kristjánsson
vora jafúir í efsta sæti með 6,5
vinninga af 8 mögulegum. Stefán
vann síðan eftir bráðabana, Helgi
varð annar og Sigurður Daði
þriðji.
í kvennaflokki vora Guðffíður
Lilja Grétarsdóttir og Harpa Ing-
ólfsdóttir jafíiar með 5v. Harpa
vann síðan í bráðabana. Sigríður
Helgadóttir varð í þriðja sæti.
I bamaflokki vann Paul Friggi,
Ingvar Ásbjömsson varð í öðra sæti
og Eiríkur Om Brynjarsson í þriðja
sæti.
Efstir stigalausra skákmanna
urðu Björgvih Hauksson og Rafú
Guðlaugsson. Björgvin vann
bráðabanann og í þriðja sæti varð
Sæmundur Kjartansson.
MM/ Ijósm: snb. is
Félagsmenn Verkalýðsfélags
Akraness athugið!
Samkvæmt þeim kjarasamningum sem Verkalýðsfélag Akraness er aðili að ber að greiða
launafólki sem er í fúllu starfi allt árið í sama fyrirtæki og er við störf í síðustu viku í nóvember
eða fyrstu viku í desember desemberuppbót. Þessa uppbót ber að greiða fyrir 15. desember.
Desemberuppbótin er eftirfarandi:
Starfsfólk sveitarfélaganna - Kjarasamningur SGS og LN kr. 57.989
Starfsfólk hjá ríkinu - Kjarasamningur SGS við fjármálaráðh. kr. 39.700
Verkafólk á alm. markaði. - Kjarasamningur SGS og SA kr. 39.700
Iðnaðarmenn - Kjarasamningur Samiðnar og SA kr. 39.700
Norðurál, íslenska jámblendifélagið, Klafi og Fang kr. 96.704
Sementsverksmiðjan kr. 78.000
Einnig vill Verkalýðsfélag Akraness vekja sérstaka athygli á því að starfsmaður, sem lætur
af störfúm á árinu vegna aldurs eða eftir 12 vikna samfellt starf hjá sama vinnuveitanda, skal
við starfslok fá greidda desembemppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall.
Eingreiðsla!
Forsendunefnd ASÍ og SA vegna endurskoðunar á kjarasamningum, komust að samkomulagi
15. nóvember sl. um sérstaka eingreiðslu til launamanna.
Eingreiðslan er kr. 26.000,- mv. fúllt starf allt árið og skal greiðast eigi síðar en 15. desember
2005. Starfsfólk í hlutastarfi skal fá greitt hlutfallslega.
Þeir sem em í starfí síðustu vikuna í nóvember eða fyrstu vikuna í desember eiga rétt á
eingreiðslu.
Þeir sem unnið hafa hluta úr ári, og uppfylla skilyrðið um að vera í starfi síðustu vikuna í
nóvember eða fyrstu vikuna í desember, eiga rétt á hlutfallslegri greiðslu mv. starfstíma á
almanaksárinu. Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 vinnuvikur, (1.800 dv. st.) eða meira,
fyrir utan orlof. Eingreiðslan skal þó aldrei vera lægri en kr. 4.500,- mv. fullt starf.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins eða í síma 430-9900.
w w w . v I f a .
f -