Morgunblaðið - 20.05.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. MAÍ 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is
STIMPILPRESSUR
Loftpressur af öllum
stærðum og gerðum
Mikið úrval af aukahlutum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Við ákváðum að gera eitthvað sam-
eiginlega og það mæltist mjög vel fyr-
ir,“ segir Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis,
um Alþingisdag-
inn sem haldinn
var sl. föstudag, en
þar var fundað
með bæði þing-
mönnum og starfs-
fólki þingsins og
farið yfir ýmis mál
sem snerta þingið
sem sameigin-
legan vinnustað.
Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem dagur af þessu tagi er
haldinn í þinginu þar sem bæði þing-
menn og starfsmenn koma saman, ut-
an jólahlaðborða, og segir Stein-
grímur að það sé ekki ólíklegt að
dagurinn verði haldinn aftur. „Bæði
þingmenn og starfsmenn sem ég
heyrði í voru mjög ánægðir, og þetta
undirstrikar það að við erum einn
vinnustaður og eitt samfélag. Við
vinnum í miklu návígi og erum hvert
öðru háð í þeim skilningi að starfsemi
Alþingis væri ekki beysin nema fyrir
okkar starfsfólk,“ segir Steingrímur.
Útboð hefjist á næstunni
Á Alþingisdeginum var meðal ann-
ars farið yfir stöðuna á fyrirhuguðum
nýbyggingum þingsins í Vonarstræti,
en Steingrímur segir þau áform vera
vel á veg komin og að útboð hefjist
fljótlega. Fyrst verði boðin út vinna
við steinklæðningu hússins og svo
jarðvegsframkvæmdir á þessu ári, og
sjálfar byggingarframkvæmdirnar á
næsta ári. Steingrímur segir að líklegt
sé að byggingin verði tekin í notkun á
árinu 2023, en að vonandi verði mestu
framkvæmdirnar afstaðnar ári fyrr.
Auk nýbyggingarinnar hlaut þing-
ið einnig viðurkenningu Umhverfis-
stofnunar fyrir að hafa stigið annað
Græna skrefið í umhverfismálum, og
tók Steingrímur við þeirri viðurkenn-
ingu fyrir hönd þingsins. Þá var einn-
ig farið yfir nýjar reglur um hags-
munaskráningu og að lokum var farið
yfir fyrirhugaða könnun á starfsum-
hverfi og líðan meðal fyrrverandi og
núverandi þingmanna og starfs-
manna. Segir Steingrímur að m.a.
verði spurt um kynferðislega áreitni á
vinnustaðnum, og þeim hluta háttað
þannig að hægt sé að bera niðurstöð-
urnar saman við nýlega könnun al-
þjóðaþingmannasamtakanna. „En
þetta verður líka könnun um almenna
líðan fólks og samskipti á vinnustaðn-
um,“ segir Steingrímur og segir að
m.a. hafi verið tekið mið af könnun
sem sænska þingið lét gera árið 2016,
en gert er ráð fyrir að könnunin hefj-
ist í haust.
Nýbyggingin kynnt þingmönnum
Þingmenn og starfsfólk þingsins héldu sameiginlegan fund um málefni vinnustaðarins Nýbygg-
ing í Vonarstræti vonandi tekin í notkun árið 2023 Líðan þingmanna og starfsfólks könnuð í haust
Ljósmynd/Alþingi
Nýbyggingin Farið var m.a. yfir byggingaráform þingsins á Alþingisdeg-
inum, en vonir standa til að byggingin verði tekin í notkun árið 2023.
Steingrímur J.
Sigfússon
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, var einn af þeim
sem héldu erindi á opnu húsi
Brakkasamtakanna í gær.
Þar sagði hann meðal annars að
stökkbreyting í BRCA-geni, sem
eykur til muna líkurnar á krabba-
meini, væri það gjald sem nokkrir
einstaklingar þyrftu að greiða fyrir
þróun mannkynsins enda stökk-
breytingar forsenda þess að maður-
inn geti haldið áfram að þróast.
„Þið sem berið þessa stökkbreyt-
ingu eruð svo sannarlega að borga
prís fyrir okkur hin svo okkur hinum
ber skylda til þess að hlúa að ykkur,
takast á við þessa stökkbreytingu og
sjá til þess að sá prís sem þið borgið
fyrir hana sé eins lítill og mögulegt
er.“
Opna húsið var haldið í tilefni opn-
unar á heimasíðu Brakkasamtak-
anna. Þar eru nú aðgengilegar mun
meiri upplýsingar en áður fyrir þau
sem greinst hafa með stökkbreyt-
inguna. ragnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
BRCA Þeir sem bera stökkbreytinguna eru allir í mikilli hættu, sagði Kári.
Arfberar greiða
fyrir þróun manna