Skessuhorn - 18.03.2015, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Mikið hvassviðri fylgdi einni kröpp
ustu lægð ársins og síðustu ára sem
gekk yfir landið síðastliðinn laug
ardagsmorgun. Þegar mest gekk á
var vindhraði gríðarmikill. Þannig
mældust til dæmis 73 metrar á sek
úndu á Miðfitjahól á Skarðsheiði um
klukkan 9 um morguninn, en það
er með því hvassara sem mælst hef
ur. Bálhvasst var einnig á þekktum
vindastöðum á þjóðveginum, svo
sem við Hafnarfjall, í Staðarsveit og
á Bröttubrekku þar sem vindur fór
yfir 50 metra á sekúndu í hviðum.
Tjón af völdum veðurs varð mjög
víða um vestanvert landið. Yfir 50
bókanir bárust til Lögreglunnar
á Vesturlandi, um aðstoðarbeiðn
ir og tilkynningar vegna óveðurs
tjóns. Tilvikin voru stór og smá og
af ýmsum toga. Flestar björgunar
sveitir í umdæminu voru kallaðar út
til aðstoðar, ásamt iðnaðarmönn
um og starfsmönnum hjá mörgum
sveitarfélaganna tíu sem eru inn
an umdæmis LVL. Mikið var um
foktjón á gömlum húsum en einnig
fóru heilu þökin af þeim nýrri. Ekki
er vitað annað en að fólk hafi slopp
ið að mestu án mikilla meiðsla frá
þessum veðurhamförum.
Björgunarsveitir af öllu Vestur
landi höfðu í mörg horn að líta og
sinntu fjölda útkalla vegna óveð
ursins. Verkefnin voru af svipuð
um toga á öllum stöðum, þ.e. hefta
fok á lausamunum og húsum. Þak
plötur losnuðu víða á útihúsum og
dæmi eru um að heilu útihúsin og
sumarhúsin hafi splundrast. Einna
mest varð tjónin í Hvítanesi í Hval
fjarðarsveit þar sem hlaða og hluti
gamals fjóss jöfnuðust við jörðu.
Sagt er frá því í annarri frétt hér í
blaðinu. Á Akranesi varð foktjón er
yfirbyggðar svalir löskuðust, víða
fuku þakplötur af húsum og heilu
þökin losnuðu. Auglýsingaskilti
losnuðu og rúður brotnuðu víða.
Þá losnuðu bátar í smábátahöfn
inni og voru björgunarsveitarmenn
fengnir til að festa þá aftur.
Í Borgarbyggð fauk þak af hlöðu
á sveitabæ á Mýrum, þakplötur af
fjárhúsum í Hítardal, þakplötur og
svalahurðir fuku í Borgarnesi og þar
fór einnig kyrrstæður húsbíll á hlið
ina en honum hafði verið lagt í var
við verslunarhús en það dugði ekki
til. Einnig brotnuðu rúður í nokkr
um bílum við Brúartorg í Borgar
nesi. Lögreglumaður á vakt í Borg
arnesi sá hvar stór járnfleki, trúlega
hluti af veggklæðningu af skemmu,
kom fljúgandi og lenti við lögreglu
stöðina og fór þar utaní tvo bíla og
lenti síðan inni á túni við lögreglu
stöðina. Lögreglumaðurinn brást
skjótt við og náði hann að keyra
lögreglujeppann upp á járnklæðn
inguna áður en hún olli meira tjóni
en þá var hún nærri komin upp að
næsta húsi.
Á Snæfellsnesi fuku þakplötur
af húsum í Grundarfirði og klæð
ing rifnaði af húsi á Rifi. Þá brotn
uðu rúður á sveitabæ undir Eyr
arfjalli nærri Grundarfirði. Tvær
unglingsstúlkur hlutu minnihátt
ar meiðsli er glerbrotum rigndi
yfir þær. Björgunarsveit kom þeim
til aðstoðar og flutti á heilsugæslu
stöð. Skjólveggir brotnuðu við
íbúðarhús í Ólafsvík.
Lítil hús fuku og eyðilögðust
víða, m.a. á Hvanneyri, á Hval
fjarðarströnd og í Borgarhreppi.
Á Súlunesi í Melasveit fauk gamalt
sumarhús og hafnaði brak úr því á
klæðningu húss, að sögn lögreglu.
Algengt var að klæðningar og þak
plötur fykju og í nokkrum tilfell
um var brakið að skemma bíla og
önnur hús. Talsvert tjón var á Mó
fellsstöðum í Skorradal, Geirs
hlíð í Flókadal, Sólheimum í Döl
um, Fossatúni í Andakíl auk Hvíta
nesi eins og áður segir. Þak fauk af
gömlum sveitabæ nærri Búðardal.
Mikið af rúðum brotnaði í gróður
húsum á Kleppjárnsreykjum.
Þessi listi verður seint tæmandi
enda eru skemmdir af völdum veð
urs enn að koma fram. Upplýsing
ar hér að ofan eru samsuða úr yf
irliti lögreglunnar og ábendingum
sem Skessuhorni bárust beint. mm
Laugardagsóveður í kröppustu lægð vetrarins
Trönur á Breiðinni á Akranesi lögðust eins og spilaborg. Ljósm. jho.
Talsvert tjón af völdum óveðursins varð á Mófellsstöðum í Skorradal
þar sem þakplötur af hlöðu fuku og fjárhúsin skekktust. Aðfararnótt
mánudags varð síðan enn meira tjón þegar brak úr hlöðugafli fauk á
gamla íbúðarhúsið og skemmdi það. Ljósm. Pétur Davíðsson.
Plötur losnuðu af þaki þessa íbúðarhúss í Grundarfirði og
komu björgunarsveitarmenn til hjálpar. Ljósm. tfk
Í Geirshlíð í Flókadal varð tjón þegar þakplötur af fjósi og hlöðu losnuðu og fuku. Einhverjar þeirra skemmdu auk þess bíla.
Hér er hlöðuþakið fest en til aðstoðar komu björgunarsveitarmenn og nágrannar. Ljósm. hhs.
Rúður brotnuðu í gróðurhúsum á
Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Hér
er mynd af skemmdum á mæni húsa
í Sólbyrgi, en þar brotnuðu á þriðja
hundrað rúður. Ljósm. ep.
Uppsjávarflotinn gat ekki stundað loðnuveiðar vegna illviðris á laugardaginn.
Hér eru það Júpíter ÞH, Kap VE og Polar Amaroq frá Grænlandi sem liggja í vari
við Ólafsvík. Ljósm. af.
Hann var úfinn og ófrýnilegur sjórinn utan við Stykkishólm þegar veðrið gekk yfir.
Ljósm. sá.
Rafmagn fór af um tíma á laugardaginn í uppsveitum Borgarfjarðar. Brotnuðu
staurar víða. Þessi mynd var tekin skammt frá Hægindi í Reykholtsdal þar sem
tveir staurar brotnuðu. Gerð var bráðabirgðaviðgerð á þeim. Ljósm. bhs.
Listakonan Michelle Bird í Borgarnesi lenti í vandræðum í storminum á laugar-
daginn þegar þakið byrjaði að losna hjá henni. Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi
kom og hjálpaði henni að hefta fok. Í þakklætisskyni málaði hún þessa penu
mynd af þeim. Sagðist ekki getað þakkað fyrir sig öðruvísi.