Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Í fermingarblöðum undanfarinna ára hefur Skessuhorn birt nokk-
urs konar gátlista fyrir fermingarundirbúninginn. Það skal þó tekið
skýrt fram að hann er settur saman til gamans og einungis hugs-
aður til hliðsjónar fyrir þá sem eru að undirbúa fermingarveislur.
Útilokað væri að gera tæmandi lista fyrir slíkar athafnir, enda eru
aðstæður og áherslur fólks ansi misjafnar. Vonandi nýtist þessi listi
þó þeim sem eru óvanir að undirbúa stórveislur.
Leigja sal 1. - ef veislan á ekki að vera í heimahúsi. Oft eru margir um hit-
una en lítið framboð. Athuga að skoða þarf hvað fylgir með í leiguverði
salarins. Glös, diskar, bollar, hnífapör, kaffikönnur, kaffivélar og svo fram-
vegis. Einnig er misjafnt hvort þjónusta fylgir með þegar salur er leigður.
Boðskort. 2. Ef á að nota boðskort þarf að gefa sér tíma til að búa þau
til eða panta. Margir velja að hringja í þá sem bjóða skal til veislunnar.
Muna að gera það tímanlega. Þá eru einhverjir farnir að nota boðskorta-
kerfi Facebook til að bjóða í fermingarveislur. En þá þarf að athuga að
ekki eru allir skráðir á þeim samskiptamiðli.
Sálmabók3. . Ef á að gylla þarf lengri fyrirvara.
Myndataka.4. Athuga hvort ljósmyndari er á heimaslóðum og svo þarf
að panta tíma.
Hárgreiðsla.5. Muna að panta tímanlega. Finna skraut í hár, ef á að nota
það. Sumar stofur bjóða upp á hárskraut. Ekki gleyma að panta tíma í
klippingu fyrir aðra fjölskyldumeðlimi tímanlega fyrir ferminguna.
Fermingarfötin6. . Það hefur gerst að jakkaföt í minni stærðum hafa selst
upp. Sama gildir í verslunum sem selja stúlknaföt. Vert er að skoða þetta
í tíma.
Dúkar á borðin.7. Á að nota bréf- eða taudúka? Kannaðu verð, þau geta
verið mjög mismunandi. Oft er hægt að leigja taudúka í efnalaugum.
Fermingarkerti.8. Ekki nauðsynlegt að láta áletra. Ódýrar lausnir til eins
og krossar sem hægt er að festa á falleg kerti. Sama á við um merkingar
á kertin, drátthagur er oft til í fjölskyldunni. Þá er hægt að láta prenta út
mynd af fermingarbarninu á kertið og líma á með þar til gerðu kertalími
sem þolir hita.
Servíettur.9. Margir taka mislitar og láta þá ekki prenta á þær. Ef á að
prenta þarf að huga að því í tíma. Oft er löng bið ef margar fermingar
eru í gangi.
Skreytingar.10. Víða er hægt að fá hugmyndir að skemmtilegu skrauti
eða kaupa tilbúið. Um að gera að skoða og athuga síðan hvað til er
heima. Ef fermt er að vori eða sumri má vel líta í kringum sig í náttúrunni.
Skemmtilegar hugmyndir má finna á vefsíðum eins og Pinterest.
Gestabók.11. Sumir föndra gestabók, aðrir kaupa hana tilbúna og enn aðr-
ir láta gestina skrifa á striga sem hengja má upp til skrauts. Um að gera
að láta ímyndunaraflið njóta sín.
Veisluföng.12. Gott er að reyna að áætla hversu mikið þarf eftir fjölda
gesta. Í mörgum matreiðslubókum er hægt að sjá hvað reikna eigi með
miklu á mann, hvort sem um er að ræða kaffibrauð eða mat. Einnig er
hægt að fá upplýsingar hjá leiðbeiningarstöð heimilanna. Best er þó að
spyrja reynsluboltana ráða, fólkið í fjölskyldunni eða aðra vini.
Kökur.13. Hægt er að baka í kistuna og spara stress og stóran útgjalda-
pakka í einum bita. Það sama gildir um matinn. Um að gera að kaupa inn
smám saman og frysta. Það er ágætt að hafa það bak við eyrað að flestir
kaupa eða baka of mikið.
Fermingartertan.14. Á að panta eða baka sjálfur? Gott er að ákveða sig
tímanlega. Ýmislegt kemur til greina, svo sem kransakaka, rjómaterta,
sykurmassa- eða ísterta.
Drykkir.15. Ekki gleyma gosinu eða drykkjunum; kaffinu, mjólkinni og sykri
í kaffið.
Aðstoðarfólk fyrir stóra daginn.16. Mikilvægt er að biðja um aðstoð í
undirbúningnum. Ekki er gaman að vera úrvinda úr þreytu og stressi
þegar stóri dagurinn rennur upp. Einnig er gott að vera búin að finna
einhvern til að aðstoða í fermingarveislunni. Nauðsynlegt svo allir geti
notið sín í veislunni sjálfri.
Myndir í veislunni. 17. Ekki gleyma að taka myndir í fermingarveislunni. Af
fermingarbarninu sjálfu með ættingjum, af gestunum og veisluborðinu.
Foreldrar ættu að fá einhvern til að smella af mynd af sér með barninu,
það vill gleymast.
Njótið dagsins! 18. Maður fermist bara einu sinni.
Gátlisti vegna
fermingarundirbúnings
Segir ungmenni vera á kafi í snjallheimi
Rætt um tilgang fermingarfræðslunnar og
breytingar á henni undanfarin ár
Séra Elínborg Sturludóttir
sóknarprestur í Stafholts-
prestakalli hefur verið prest-
ur frá 2003. Hún var fyrst
vígð til Grundarfjarðar og
starfaði þar í fimm ár. Tók svo
við Stafholtsprestakalli og
hefur verið þar í sex ár. Þegar
Elínborg er beðin um að lýsa
fermingarfræðslunni segir
hún: „Það eru miklar tilraunir
með fermingarfræðsluna.
Fermingarbörnin eru leitandi
og ég er endalaust að prófa
mig áfram til að mæta þeim
á þeim stað sem þau eru
á.“ Elínborg heldur áfram:
„Fermingarstarfið er mikil
áskorun, krakkarnir eru svo
klárir og eru mikið að pæla í
lífinu og tilverunni á þessum
árum. Það er mikil áskorun
að takast á við trúmálin með
unglingunum, en það er hollt
fyrir mig sem prest að vera
alltaf á tánum og í sífellri
endurskoðun.“
Kristin trú getur
gagnast í lífinu
Hún segir að markmiðið með ferm
ingarfræðslunni sé að fá unglingana
til að hugsa um trúmál út frá sér sjálf
um, að kristin trú geti verið gagnleg í
lífinu sjálfu. „Að færa þeim verkfæri í
hendurnar sem hjálpa þeim að takast
á við lífið og siðferðileg álitamál. Svo
er verið að kenna þeim að líta í eigin
barm, að setja sig í spor annarra og
öðlast færni í lífsleikni.“ Fermingar
fræðslan byrjar að hausti, eftir réttir
og er einu sinni í viku, í um það bil
tvo tíma í senn. Hún stendur til mars
loka. Þó er þetta breytilegt eftir ann
ríki prestsins. Svo er farið í ferming
arferðalag að Laugum í Sælingsdal og
einnig verja fermingarbörnin heilum
degi í Reykholti. Þarna eru öll ferm
ingarbörn í Borgarbyggð, Hvalfjarð
arsveit og frá Staðarstað á Snæfells
nesi samankomin. Þeim er skipt upp
í hópa og kynnast þannig hvert öðru
og öllum prestunum. Í hópavinnunni
eru svo tekin fyrir ákveðin þemu sem
fjallað um, svo sem kristið táknmál.
Margir heimar í gangi
Elínborg lýsir breyttu landslagi síð
an hún var vígð til prests. „Staðan í
dag er að krakkarnir eru á kafi í snjall
heimi. Það eru svo margir heimar í
gangi í nútímanum. Netheimar og
margmiðlunin, það er svo margt í
boði. Það þarf að hjálpa þeim að lifa
í þessum heimi og að vera ekki með
hugann á mörgum stöðum og ein
beita sér. Unglingar eru alltaf sjálf
um sér líkir og að kljást við að stíga
skrefið frá því að vera börn yfir í að
verða fullorðnir. En heimurinn hefur
breyst mjög mikið og möguleikarnir
eru jú fleiri en sömuleiðis hætturnar
til að týna sér í. Það er allt galopið, ef
ég segi þeim ekki að stinga niður sím
unum, þá væru þau alltaf í netheim
um. En þau eru opin og spyrja gagn
rýnna spurninga, fermingarstarfið
þarf því að taka mið af því og vera
lifandi,“ segir Elínborg. Hún notast
því við PowerPoint glærur og netið
í fermingarfræðslunni, ásamt spegl
aðri kennslu. Slík kennsla snýst um
að krakkarnir hali niður námsefni á
fyrirlestrarformi í gegnum „Podcast“
forrit og komi undirbúnir í ferming
arfræðsluna. Tímann með krökk
unum notar Elínborg til umræðna
um fyrirlestrarefni sem lagt var fyr
ir og markmiðið er að ná að vinna úr
efninu í hópavinnu og samtali með
prestinum. Það er Þjóðkirkjan sem
vinnur efnið og setur fram á sérstök
um fermingarvef kirkjunnar og er því
tæknin að ryðja sér til rúms á þess
um vettvangi sem öðrum. „Tækn
in kemur inn í fermingarfræðsluna í
kringum 2007 til 2008. Þá var farið
að nota skjávarpa en áður var tæknin
frekar miðuð við að horfa með þeim á
kvikmyndir. Það geri ég enn, enda til
ógrynni af kristilegu efni sem hjálpar
til að miðla sögum af Jesú til krakk
anna,“ útskýrir Elínborg.
Fara í pílagrímagöngu
Upplifun unglinganna af fermingar
fræðslunni skiptir Elínborgu miklu
máli og hún situr til borðs með krökk
unum í hverri fermingarfræðslu. „Það
að sitja saman til borðs og eiga sam
félag við borðið er mjög mikilvægt.
Ég geri einnig fleira með krökkun
um. Við förum til dæmis í pílagríma
göngu á Stafholtsfjall og í menning
arferð til Reykjavíkur ásamt foreldr
um krakkanna. Þar skoðum við hlut
verk kirkjunnar á ólíkum tímum.“
Hún segir að með því að skoða ólík
ar kirkjur svo sem gömlu torfkirkjuna
frá Silfrastöðum í Skagafirði sem er
nú á Árbæjarsafni, og svo Hallgríms
kirkju, Dómkirkjuna og Alþingi Ís
lendinga, fái krakkarnir að upplifa og
fá tilfinningu fyrir breytilegu hlut
verki kirkjunnar í samfélaginu.
Flestir fermast
Aðspurð út í neikvæða umfjöllun um
Þjóðkirkjuna á undanförnum árum
segir Elínborg: „Mín upplifun er að
þetta sé mjög þröngur hópur sem
hefur mjög hátt en almennt séð sé
fólk frekar jákvætt gagnvart kirkjunni.
Það endurspeglast í fjölda þeirra sem
eru skráðir í kirkjuna og kristin sam
félög. Það er einn og einn unglingur
sem ekki kemur í fermingarfræðsluna
en langflestir eru með. Það er mjög
mikið miðað við neikvæða umræðu
um Þjóðkirkjuna. En það er engin
skylda að fermast þótt þau taki þátt í
fermingarfræðslunni. Hún er hugsuð
til að kenna unglingunum lífsleikni
og gildi kirkjunnar og er skylda Þjóð
kirkjunnar að veita þessa þjónustu.
Þjóðkirkjan tekur hlutverk sitt sem
kirkja þjóðarinnar alvarlega og sinnir
sínum skyldum.“
Öfgar varhugaverðar
Elínborg heldur áfram og segist
þekkja til og hafa búið í Frakklandi,
þar sem tekin hafa verið skref til að
útrýma öllum trúmálum úr opin
berum skólum og stofnunum. „Hef
ur það ekki verið gæfuspor. Gyðinga
hatur sem og múslímahatur er mikið
í Frakklandi og alið er á ofstæki, öfg
um og fordómum í frönsku samfé
lagi,“ segir Elínborg og er mikið niðri
fyrir. „Fræðsla um ólíka menningar
heima og ólík trúarbrögð er lykillinn
að umburðalyndi og fordómaleysi.“
Hún er þeirrar skoðunar að hennar
hlutverk sem prests í Þjóðkirkjunni
sé að boða umburðarlyndi gagnvart
öðrum trúarbrögðum. „Sem betur fer
er trúfrelsi í okkar landi og við þurf
um að styðja það að allir geti dýrkað
sinn guð. En allar öfgar eru varhuga
verðar og því miður eru vantrúaröf
gar að verða áberandi hér á landi. Við
þurfum að gæta okkar á ofsa í okk
ar samfélagi og fjalla um fordóma al
mennt. Það er mjög áleitið umræðu
efni í okkar samtíma.“ Elínborg seg
ir fordóma alltaf hafa fylgt mannin
um og nauðsynlegt sé að taka þennan
punkt í samtali við krakkana í ferm
ingarfræðslunni. „Það þarf að hvetja
þau til að hafa hugrekki til að skoða
sinn eigin hug og líta í eigin barm
því þegar fólk telur sér trú um að það
sé fordómalaust þá getur það ver
ið hættuspil og ansi margt grasserað
undir niðri,“ segir Elínborg Sturlu
dóttir að endingu. eha
Séra Elínborg Sturludóttir er sóknarprestur í Stafholti. Hún segir að fermingar-
fræðslunni sé ætlað að fá unglingana til að hugsa um trúmál út frá þeim sjálfum.
Sr. Elínborg í kirkjunni á æskulýðsdeginum 2011, þar sem hún hafði sér til full-
tingis vaskan hóp aðstoðarfólks.