Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 41
41MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir eftir áhugasömum
aðilum til rekstrar á félags- og veitingaaðstöðunni í gömlu
hestaréttinni (stundum nefnt Kollubar) frá og með 1. júní
2015. Megin markmið rekstrarins er að veita samfélagi
nemenda og staðarbúa félagsaðstöðu með fjölbreyttri
dagskrá sem unnin er í samstarfi við nemendafélagið og
fellur vel að skólasamfélaginu.
Rekstrinum gætu einnig tengst möguleikar í ferðaþjónustu,
menningartengdri starfsemi eða nýsköpunarstarfi.
Til greina kemur að víkka út starfsemina til fleiri bygginga
gamla Hvanneyrarstaðar (Skólastjórahús og Gamli Skóli,
Gamla bútæknihúsið, hvert hús ýmist í heild eða að hluta
til) ef fram koma raunhæfar hugmyndir um bætta nýtingu
þeirra sem jafnframt sköpuðu skólanum grunn til öflunar
leigutekna. Nánari upplýsingar veitir Björn Þorsteinsson
rektor s. 433 5000.
Áhugasamir um reksturinn sendi inn umsóknir seinast
10. apríl til Kristínar Siemsen (kristin@lbhi.is) ásamt
greinargerð með hugmyndum um leiguupphæðir, þróun
starfseminnar og mögulega útvíkkun með almenna eflingu
gamla Hvanneyrarstaðarins í huga.
Umsóknir verða metnar með tilvísun til þess hve vel þær
falla að hagsmunum skólans, samfélagi nemenda og
staðarins í heild.
Rekstur félags- og
veitingaaðstöðu á
Hvanneyri
Aðalfundur Kaupfélags Borgfirðinga verður
haldinn að Hótel Borgarnesi fimmtudaginn
19. mars 2015 og hefst kl. 20:30
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum 1.
félagsins.
Önnur mál.2.
Skv. 14. gr. samþykkta KB þá hafa allir félagsmenn aðgang
að fulltrúafundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Borgarnesi, 6. mars 2015
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga.
Aðalfundur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
FISKELDISSTÖÐ TIL SÖLU
Fiskeldisstöðin Laxeyri í Borgarfirði er til sölu. Húsnæði
stöðvarinnar er um 1.600 m².
Í stöðinni hafa verið framleidd laxaseiði. Stöðin gæti einnig
hentað fyrir framleiðslu á blei ju.
Frekari upplýsingar veitir Þor ils Torfi Jónsson, framkvæ da-
stjóri í síma 669 1100 og torfi@siron.is SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
5
Það er að verða vorlegt um að litast í
gróðurhúsunum hjá ylræktarbænd
unum Einari Pálssyni og Kristjönu
Jónsdóttur í Sólbyrgi í Borgarfirði.
Þessa dagana eru þau að byrja að
tína jarðarber úr klösunum og áætl
að er að þau verði komin í verslanir
í næstu viku. Bændur í Sólbyrgi hafa
verið að þróa ræktun við raflýsingu
síðustu þrjú árin og síðasta haust var
ráðist í mikla fjárfestingu. Raflýsing
til ræktunar er nú að mestu kom
in í stærsta húsið sem er um 3000
fermetrar. Einar í Sólbyrgi segir
að markmiðið sé að koma með um
fimm tonn af jarðarberjum á mark
aðinn í hverjum mánuði langt fram á
haustið. „Við viljum helst verða með
ný jarðarber fyrir næstu jól,“ sagði
Einar í samtali við Skessuhorn.
Það er að langmestu leyti jarð
arber sem ræktuð eru yfir vetrar
tímann í Sólbyrgi og hefur vor
uppskeran verið að færast fram um
mánuð síðustu árin, reyndar um
meira en mánuð þetta árið. Ein
ar segir að í jarðarberjaræktuninni
séu þau í grimmri samkeppni við
innflutninginn. „Við teljum okk
ur hafa vinninginn í gæðum, fersk
leika og hreinleika ræktunarinn
ar,“ segir Einar. Hann segir að
enn sé þó ræktun jarðarberjanna
við raflýsingu á tilraunastigi, þar
sem þessi aðferð sé óhefðbundin.
„Markmiðið er að vera með gæða
ber utan hefðbundins ræktunar
tíma á Íslandi,“ segir Einar í Sól
byrgi.
þá
Þokkalegur handfæraafli er nú við
Akranes. Þorskurinn er víða þar
sem hann hefur elt loðnuna upp að
ströndinni. „Ég var búinn að vera á
línu fyrr í vetur. Þetta er annar róð
urinn minn eftir að ég skipti yfir á
handfærin. Ég var hérna við Suð
urflös í grennd við Akranes. Afla
brögðin voru í þokkalegu lagi, ég
var með um eitt tonn á fjórar rúll
ur og var úti í eina átta tíma,“ sagði
Gísli Páll Guðjónsson útgerðar
maður á Blíðfara AK 88 þar sem
hann landaði afla sínum á bryggj
unni á Akranesi á sunnudaginn.
Hann hafði skotist út um morg
uninn þegar lægði eftir storminn
mikla sem geisaði á laugardag.
„Þetta er ágætur þorskur sem
fæst núna hér við Akranes. Fiskur
inn er að éta loðnu. Hún er kom
in hér innyfir. Það er mjög miklar
lóðningar að sjá. Ég hugsa að loðn
an sé hér alls staðar við landið og
sennilega komin hérna inn á Kross
víkina rétt utan við hafnarkjaft
inn. Það er ódýrt að sækja þorsk
inn núna en lítið upp úr þessu að
hafa. Ég er á leigukvóta og lítið sem
fellur í minn hlut af þessu,“ sagði
Gísli.
Afla Blíðfara var ekið í hús Fisk
markaðar Íslands á Akranesi. Í síð
ustu viku bárust fregnir af því að nú
er hætta á að markaðinum á Akra
nesi verði lokað vegna þess að lít
ill fiskafli berst á land á Akranesi.
„Mér líst illa á þessi tíðindi. Þetta
mun hafa slæmar afleiðingar fyr
ir smábátaútgerð á Akranesi ef af
verður. Sennilega markar þetta
endalok hennar hérna í bænum.“
Þegar Gísli var að landa í sunnan
rokinu komu fjórir erlendir ferða
menn, tveir karlar og tvær kon
ur, aðvífandi á bílaleigubíl. Þeim
þótti það mikil firn að sjá ferskan
þorsk á bryggjunni og ekta íslensk
an sjómann sem var að landa. Þau
sögðust vera frá Malasíu og fengu
að mynda hvert annað með þorsk í
höndunum. Gísli Páll sagði þeim að
þau mættu eiga fiskinn. Malasísku
ferðalangarnir urðu himinlifandi
enda sjávarmeti hátt skrifað hjá As
íubúum. „Við ætlum að elda hann
þegar við komum aftur til baka á
hótelið,“ sögðu þau. Gísli brosti í
kampinn. „Þetta er góð landkynn
ing að gefa þeim soðningu,“ sagði
hann.
mþh
Ferðafólkið frá Malasíu fékk skemmtilega upplifun og góðar minningar frá Ís-
landsheimsókninni þegar þau hittu gjafmi lda trillukarlinn á Skaganum. Margar
myndir voru teknar.
Ferðamenn fengu í soðið á Akranesi
Gísli Páll Guðjónsson landar afla sínum í Akraneshöfn á sunnudaginn.
Borgfirsk jarðarber í búðir í næstu viku