Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Í tíðum óveðrum vetrarins hef
ur mesti farartálminn um Vestur
landsveg gjarnan verið á Kjalar
nesi skammt sunnan Hvalfjarðar
ganga. Einnig hefur oft verið ansi
blint á Fiskilækjarmelum og Hafn
armelum. Eftir að glöggur vegfar
andi benti á að bæta mætti aksturs
skilyrði í þessum veðrum með því
að fjölga vegstikum á krítísku svæð
um, hafði Skessuhorn samband
við forsvarsmenn Vegagerðarinn
ar. Svanur G Bjarnason umdæm
isstjóri suðursvæðis hjá Vegagerð
inni, sem Kjalarnesið heyrir undir,
á von á því að stikum verði fjölgað
á svæðinu sunnan Hvalfjarðarganga
fyrir næsta vetur.
Magnús Valur Jóhannsson í
Borgarnesi, svæðisstjóri vestur
svæðis, segir að almenna reglan hjá
Vegagerðinni sé að á stofnvegum er
stikað beggja vegna með 50 metra
millibili. Í þjónustuleiðbeining
um Vegagerðarinnar er hins veg
ar tekið fram að á vegum þar sem
skyggni getur verið slæmt er heim
ilt að merkja allt að helmingi þétt
ar. Það sé einmitt víða gert á fjall
vegum þar sem skyggni er oft mjög
slæmt. „Þetta hefur almennt ekki
tíðkast á vegum á láglendi. Hjá
okkur á Vesturlandi hefur það ver
ið rætt að þétta stikur á ákveðnum
köflum á hringveginum, sérstak
lega á stöðum eins á Fiskilækjar
og Hafnarmelunum. Ekki hefur þó
orðið af því enn. Þessu fylgir tölu
verður aukinn kostnaður og þegar
fjárveitingar duga ekki til að kosta
þá vetrarþjónustu sem við þó veit
um þá er erfitt að bæta í. Þetta er
hins vegar réttmæt ábending og
mundi bæta aðstæður á vegunum
eins og tíðarfarið er búið að vera að
undanförnu,“ segir Magnús Valur
Jóhannsson. þá
Nýtt deiliskipulag gamla miðbæj
arins í Borgarnesi var kynnt á íbúa
fundi í Borgarnesi í liðinni viku.
Sigursteinn Sigurðsson arkitekt
kynnti tillögur sínar um skipulag
neðri bæjarins. Deiliskipulagið er
nú í umsagnarferli og frestur til að
skila inn athugasemdum rennur út
23. mars. „Breytingarnar snúa helst
að því að minnka byggingamagn
ið á reitnum,“ segir Sigursteinn
í samtali við Skessuhorn og vís
ar þar til svæðisins við Brákarsund
sem nú er autt. „Fyrra deiliskipu
lag gerði ráð fyrir fimm fjölbýlis
húsum á reitnum en vegna mikill
ar andstöðu við þau áform var deili
skipulagið fellt úr gildi. Ég hef svo
verið í samstarfi við þverpólitískan
samstarfshóp og unnið að því að ná
sátt um þetta svæði. Ég vinn mikið
í samstarfi við fólk og hef gengið á
milli hagsmunaaðila. Haldnir voru
nokkrir íbúafundir og kallað eftir
áliti íbúa og fyrirtækja á svæðinu.
Mín þekking í hönnun á skipulagi
og arkitektúr kemur svo þar ofan á
og niðurstaðan er reitur með mjög
minnkuðu byggingamagni og gert
ráð fyrir torgi. Ég held að það sé að
skapast sátt um svæðið. Fólk hefur
séð að reynt er að skapa stemningu
á svæðinu og fegra bæinn okkar.“
Hagræði af því að nýta
uppgröftinn
Jökull Helgason, forstöðumaður
umhverfis og skipulagssviðs Borg
arbyggðar, tók næstur til máls og
kynnti tillögur að nýjum leikvelli
við Arnarklett í Bjargslandi. For
saga málsins er sú að fjölmörg börn
úr Bjargslandinu sendu sveitarstjórn
bréf í júlí 2014 með áskorun um að
finna svæði þar sem þau gætu spil
að fótbolta. Jökull sagði ekki mik
ið svigrúm á fjárhagsáætlun 2015 en
þó var ákveðið að nýta tækifærið og
nýta uppgröftinn frá framkvæmd
unum hinum megin við götuna þar
sem verið er að byggja nýtt fjöl
býlishús. „Uppgröfturinn sem fell
ur til þar verður fluttur yfir götuna
og nýttur til að fylla lóðina á móti
þar sem gert er ráð fyrir leikvelli.
Síðan verður jafnað og sáð eða tyrft.
Stefnan er svo að koma upp mörk
um til að krakkarnir geti spilað fót
bolta á þessu svæði. Með því að gera
þetta svona verður hagræði því ann
ars hefði þurft að flytja uppgröft
inn lengri leið í burt og ánægjulegt
að geta í leiðinni komið til móts við
óskir krakkanna,“ segir Jökull í sam
tali við Skessuhorn.
Miðbæjarreiturinn
veldur ólgu
Eftir að Sigursteinn og Jökull höfðu
haft framsögu var opnað á umræð
ur og spurningar. Umræðan beind
ist helst að öðrum reit en kynntur
hafði verið á fundinum, miðbæj
arreitnum. Honum var nýlega út
hlutað til Snorra Hjaltasonar bygg
ingaverktaka og greinilegt að fólki
var heitt í hamsi. „Ég á í viðræðum
við verktakann um að teikna þær
byggingar sem munu rísa á mið
bæjarreitnum,“ sagði Sigursteinn
arkitekt; „en viðræðurnar eru enn
það stutt á veg komnar að það væri
ekki tímabært að ræða það frekar.“
Fundargestir lýstu mikilli ánægju
með að Sigursteinn tæki að sér
verkið og ynni með sambærilegum
hætti og við skipulagsmál, en þau
hafa verið unnin í sátt við íbúa, eins
og að framan greinir. Jökull Helga
son ítrekaði þó að á þeim reit væri
í gildi samþykkt skipulag og mætti
verktakinn reisa fimm hæða fjöl
býlishús á miðbæjarreitnum.
Anna Ólafsdóttir, einn fundar
gesta, lýsti mikil óánægju með svik
in kosningaloforð allra flokka sem
höfðu lofað að taka upp deiliskipu
lag á miðbæjarreitnum í aðdraganda
kosninga. Helgi Haukur Hauksson,
Framsóknarflokki, svaraði Önnu:
„Þessi framkvæmd er gríðarlega
mikilvæg á þessum tímapunkti fyr
ir byggingariðnaðinn í Borgar
byggð.“ Finnbogi Leifsson, flokks
bróðir Helga, tók upp þráðinn og
sagði mikilvægt að grípa tækifæri
til uppbyggingar þegar byðist og
vísaði í óánægju á sínum tíma með
byggingu Menntaskólans og spurði
fundargesti: „Mynduð þið vilja hafa
tjaldsvæðið áfram þar sem Hjálm
aklettur er nú risinn? Það var mik
ilvægt að stökkva á tækifærið þegar
Snorri Hjaltason sýndi því áhuga að
standa að uppbyggingu á reitnum,“
sagði Finnbogi á fundinum. eha
Eyjólfur M. Eyjólfsson á Akranesi
hefur stundað skútusiglingar um
áratugaskeið. Hann hefur ásamt
fleirum áhuga á að settur verði á fót
siglingaklúbbur á Akranesi. Slíkur
klúbbur gæti þá staðið fyrir nám
skeiðum í skútusiglingum fyrir
fólk. Aðstaðan fyrir seglskútur gæti
um margt verið mjög góð í Akra
neshöfn. Þó lýsir Eyjólfur eftir úr
bótum í aðstöðu til að setja niður
minni báta og taka þá upp aftur.
„Ég er sannfærður um að sigl
ingaklúbbur gæti átt góða framtíð
fyrir sér á Akranesi. Hér fyrir utan
hafnarmynnið er Krossvíkin með
Langasandi þar sem eru mjög góð
skilyrði til kennslu í seglskútusigl
ingum, fyrir keppnir og þess háttar.
Svo er það sjálfur Faxaflóinn sem
blasir við. Akraneshöfn býður einn
ig upp á góða aðstöðu að mörgu
leyti. Hér eru margar flotbryggjur
og ágætis pláss,“ segir Eyjólfur.
Hann hefur verið í sambandi við
Siglingasamband Íslands um stofn
un slíks klúbbs. Eyjólfur segir að
slíkur klúbbur gæti orðið deild inn
an Íþróttabandalags Akraness væri
vilji fyrir slíku. „Í Reykjavík er sigl
ingaklúbburinn Brokey þar sem
fólk býr yfir mikilli reynslu, meðal
annars í að halda siglinganámskeið
á kænum fyrir fólk á öllum aldri.
Við gætum fengið aðstoð þaðan og
frá Siglingasambandi Íslands.“
Lýsir eftir betri aðstöðu
Eyjólfur hefur sjálfur stundað sigl
ingar á seglskútu um margra ára
skeið. Nú í vetur festi hann kaup á
nýjum kappsiglingabáti sem hann
hyggst sigla frá Akraneshöfn. Bát
urinn er þeirrar gerðar að það verð
ur að taka hann á land milli þess sem
hann er í notkun. Eyjólfur bendir á
að þótt aðstaðan í Akraneshöfn sé
um margt ágæt þá megi gera end
urbætur. „Það er renna í höfninni
þar sem hægt er að koma niður bát
um sem eru á kerrum. Þetta gildir
um marga minni seglbáta og kæn
ur sem notaðar eru meðal ann
ars við námskeiðahald. Gallinn er
hins vegar að aðstaðan í rennunni
er ekki nógu góð. Það þyrfti að
vera lítil flotbryggja við hlið renn
unnar sem fólk gæti notað á með
an bátarnir eru gerðir klárir til sigl
ingar eða upptöku að lokinni sigl
ingu. Ef þessi aðstaða yrði bætt þá
yrði það tvímælalaust mikilvæg for
senda þess að hægt yrði að koma á
fót öflugu félagsstarfi í skútusigl
ingum á Akranesi. Í því gætu falist
ýmis skemmtileg sóknarfæri,“ seg
ir Eyjólfur.
Ný flotbryggja við
Faxabryggju
Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa
flóahafna sér tormerki á því að
hægt verði að setja flotbryggju við
hlið smábátarennunnar í Akranes
höfn. „Tæknilega séð þá er þetta
ekki valkostur því að þarna er allt
of grunnt fyrir flotbryggju á fjöru.
Það er þó verið að bæta aðstöðu
fyrir frístundasiglingar í Akranes
höfn. Nú á vordögum verður kom
ið fyrir nýrri flotbryggju við svo
nefnda Faxabryggju þar sem Akra
borgin lagðist upp að hér fyrrum.
Hún á að auðvelda aðgengi fólks í
og úr bátum sem legðust þar að,“
segir Gísli Gíslason. mþh
Færeysk seglskúta á siglingu við Akranes. Ljósm. fh.
Vill stofna siglingaklúbb
á Akranesi
Eyjólfur M. Eyjólfsson telur mikla möguleika felast í því að efla skútusiglingar
við Akranes. Fyrir aftan hann er rennan í Akraneshöfn sem í dag er notuð til að
sjósetja smábáta og taka þá upp. Þá aðstöðu vill Eyjólfur gjarnan sjá bætta.
Nýr sparkvöllur í Bjargslandi og
Brákartorgsreiturinn kynntur á íbúafundi
Þrívíddarteikning Sigursteins Sigurðssonar af svæðinu við Brákarsund.
Ljósm. Gjafi.
Skýringarmynd af Arnarkletti þar sem sjá má að gert er ráð fyrir sparkvellinum.
Þannig hefur skyggnið oft verið á krít-
ískum svæðum, svo sem Kjalarnesinu, í
óveðrum vetrarins.
Komið til tals að þétta vegstikur
á erfiðum svæðum