Skessuhorn - 18.03.2015, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Þótt Stykkishólmur sé frægur körfu
boltabær vill til að þaðan koma einn
ig góðir fótboltamenn annað slagið.
Núna síðustu árin hefur vakið athygli
ungur og efnilegur knattspyrnu
maður í liði Víkings frá Ólafsvík.
Það er Alfreð Már Hjaltalín og hann
er frá Stykkishólmi. Einkum var það
sumarið 2013 þegar Víkingur lék í
Pepsídeildinni sem Alfreð Már vakti
athygli. Þá var hann mjög skæður á
hægri kantinum og var markahæsti
leikmaður Víkingsliðsins það sum
ar með fjögur mörk, en markaskor
unin dreifðist mjög meðal Víking
anna. Margir héldu að Alfreð myndi
feta á nýjar slóðir eftir það sumar og
freista þess að spila áfram með liði í
efstu deild. „Nei ég sjálfur var ekk
ert að spá í það. Ég vildi frekar vera
áfram undir stjórn Ejub og bæta mig
sem fótboltamaður. Ég hafði líka trú
á því að ég fengi heilmikil tækifæri í
liði Víkings í fyrstu deildinni og við
myndum kannski vinna okkur upp
fljótlega aftur,“ sagði Alfreð Már í
spjalli við Skessuhorn.
Æfði og spilaði með
KR í þriðja flokki
Alfreð Már segir að þrátt fyrir að
körfuboltinn sé aðalíþróttin í Stykk
ishólmi þá hafi áhuginn strax beinst
að fótboltanum hjá honum. „Ég byrj
aði að æfa fótbolta fimm ára gamall
eða ári fyrr en krakkar byrjuðu á fót
boltaæfingum. Það voru fótboltaæf
ingar hérna að sumrinu og hinir og
þessir að þjálfa. Minnisstæðastur er
þjálfari sem hét Björgvin en hann
flutti svo í burtu. Til lengdar fannst
mér svolítið tilbreytingarlaust að æfa
heima í Hólminum og keppa nánast
ekkert. Það varð til þess að móðir
mín nýtti sér einhver sambönd sem
hún hafði við KR. Þetta var þegar
ég var á eldra árinu í þriðja flokki.
Sveinbjörn Þorsteinsson var þjálfari
og Rúnar Kristinsson á þeim tíma
yfirmaður knattspyrnumála hjá KR.
Hann vildi gjarnan fá mig til æfinga
og að spila með. Veturinn eftir hafði
svo Ejub samband og vildi fá mig á
æfingar hjá Víkingi. Ég spilaði síðan
með Víkingi sumarið 2010 þegar við
fórum í gegnum deildina án þess að
tapa leik. Það sumar spilaði ég fimm
leiki með Víkingi. Ég spilaði síðan
mun fleiri leiki, eða fimmtán, með
Víkingsliðinu í fyrstu deildinni 2011
þegar við urðum í fjórða sæti. Svo
spilaði ég líka mjög mikið sumarið
ævintýralega þegar við fórum upp í
Pepsídeildina 2012.“
Kann vel við sig
í Ólafsvík
Alfreð er við nám í vetur í Fjöl
brautaskólanum í Breiðholti þar
sem hann er á íþróttabraut. „Ég hef
mikinn áhuga á því að læra eitthvað
í kringum íþróttir, íþróttaþjálfun
eða íþróttafræði og kannski er svo
hægt að bæta við sig út frá því,“ seg
ir Alfreð. Hann er síðan í Ólafsvík
á sumrin og þaðan er líka kærastan
hans Alma Rún Kristmannsdóttir.
„Fólkið mitt er í Hólminum en ég
kann mjög vel við mig í Ólafsvík og
þekki þar orðið marga. Stemning
in í kringum fótboltann er þar mik
il. Mikið spáð og spekúlerað í sam
bandi við síðasta leik og þann næsta.
Fólk er þegar farið að mæta ágæt
lega á leikina okkar í Lengjubik
arnum og þetta er býsna stór hóp
ur sem mætir og styður liðið. Sum
arið sem við vorum í Pepsídeildinni
voru stuðningsmenn Víkings valdir
þeir bestu.“
Víkingur verður í
toppbaráttunni
Víkingi hefur ekki gengið vel í
Lengjubikarnum til þessa er aðeins
kominn með eitt stig eftir þrjá leiki.
„Liðið er að pústlast saman, það hafa
verið svo miklar breytingar núna að
undanförnu á leikmannahópnum.
Ég hef ekki áhyggjur af því. Við
erum með flottan hóp og þegar við
verðum búnir að spila okkur saman
förum við að vinna leiki. Víkingur
verður meðal margrar liða sem ætlar
að verði í toppbaráttunni. Svei mér
þá ef deildin í sumar verður ekki
sterkari en oft áður, mörg góð lið,“
segir Alfreð Már. Meðal þeirra sem
bæst hafa í leikmannahópinn hjá
Víkingi að undanförnu eru nokkr
ir leikmenn sem leikið hafa með
KR. Þar á meðal er Ingólfur Sig
urðsson sem lék með Alfreð Má í
þriðja flokki KR á sínum tíma, Guð
mundur Reynir Gunnarsson sem á
að baki mörg góð ár með Vesturbæ
ingunum, einnig Egill Jónsson og
Torfi Karl Ólafsson. „Það er fullt
af flottum leikmönnum hjá Víkingi
og við verðum til alls líklegir í deild
inni þegar til alvörunnar kemur með
góðan stuðningshóp á bak við okk
ur,“ segir Alfreð Már Hjaltalín.
þá
Knattspyrnumaðurinn frá Stykkishólmi
Spjallað við Alfreð Má Hjaltalín leikmann Víkings
Alfreð ásamt kærustunni sinni Ölmu
Rún Kristmannsdóttur frá Ólafsvík um
síðustu áramót.
Alfreð Már Hjaltalín í leik á móti Skagamönnum. Ljósmynd Alfons Finnsson.
Menningarlegum margbreytileika fagnað í Borgarnesi
Á síðustu tveimur árum hefur fyr
irtækið Loftmyndir ehf. endurnýj
að loftmyndir í safni sínu af stórum
hálendissvæðum. Eldri myndir fyr
irtækisins voru frá árunum í kring
um aldamót og sýna nýju myndirnar
miklar landbreytingar. Gróður hef
ur styrkst og ár breytt um farvegi en
stærstu sýnilegu breytingarnar eru
við jökuljaðrana. Þessar myndir er
hægt að skoða á vefnum map.is. Ekki
er óalgengt að sjá hop jökla upp á
mörg hundruð metra og sumsstaðar
má mæla breytingarnar í kílómetr
um eins og meðfylgjandi kort sýnir.
Sem dæmi um hversu hröð þróunin
er benda Loftmyndir á að Hofsjök
ull er nú 12% minni en opinberar
tölur frá árinu 2006, en þær byggja
á Spot gervitunglamyndum. Þá má
benda á að fyrir tveimur áratugum
var húsið Jaki sett niður þétt við jök
ulrönd Langjökuls að vestanverðu.
Nú er hins vegar á annan kílómetra
frá húsinu og upp að jökulrönd þar
sem oftast er ekið upp á jökulinn.
„Til til að uppfæra þessar gömlu
stærðir ákváðu starfsmenn Loft
mynda að mæla upp nýja heildar
jöklaþekju af Íslandi og reikna nýj
ar flatarmálstölur. Nýja jöklaþekj
an miðast við stöðuna sumarið 2014
og byggir á nýlegum loftmyndum
fyrirtækisins og til stuðnings voru
einnig notaðar gervitunglamyndir
frá Landsat8 gervitunglinu. Niður
staða þessarra mælinga er að heild
ar flatarmál jökla á Íslandi sumarið
2014 var 10.462 km2 sem er 10%
af heildarflatarmáli landsins.“ Þær
opinberu tölur sem stuðst hefur ver
ið við segja að jöklarnir þeki milli 11
og 12% flatarmálsins.
mm
Íslensku jöklarnir komnir niður í
tíu prósent af flatarmáli landsins
Jaðar Breiðamerkurjökuls, mynd frá ágúst 2012. Blá línan sýnir jaðar jökulsins
árið 2001. Ljósm. LM.
Þessi mynd er tekin á veginum áleiðis upp á Langjökul. Þjónustuhúsið Jaki sem
sést á myndinni var sett á sinn stað fyrir tveimur áratugum, þétt upp við jökulinn.
Nú er á annan kílómetra frá húsinu að jökulröndinni. Ljósm. mm.
Árshátíð Grunnskólans í Borgarnesi
var haldin í Hjálmakletti 12. mars síð
astliðinn. Þemað í ár var fjölmenn
ing og áhersla lögð á menningarlegan
margbreytileika. Fullt var út úr dyr
um á báðar sýningar grunnskólanem
anna, sem stóðu sig einkar vel í fjöl
breyttum og bráðskemmtilegum at
riðum. Signý Óskarsdóttir bauð gesti
velkomna og vitnaði í orð Jóns Gnarr
sem sagði: „Fólk er eins og snjallsím
ar. Þeir eru ólíkir og með allskonar
möguleika. Það er ekki útlitið eða lit
urinn sem skiptir aðalmáli heldur hug
búnaðurinn.“
Yngsti bekkurinn söng lag um dýr
in í Afríku. Svo tók annar bekkur við
og flutti nokkrar útgáfur af afmælis
söngnum, meðal annars á sænsku og
kínversku. Þriðji bekkur söng um síld
ina sem kemur og fer.
Miðstigið gerði sitt besta til að kalla
sólina fram með gjörningadansi og
taktföstum búkslætti. Allt má reyna
til að ná sólinni fram og vonandi ræt
ist úr. Einnig sýndi miðstigið örleik
rit um Bakkabræður í nútímalegum
búningi. Það var svo sýningaratriði í
bardagaíþróttum sem fékk salinn til að
dilla sér.
Efsta skólastigið flutti stiklur úr
Ávaxtakörfunni og nýtti vinsæl dæg
urlög til að túlka einelti Mæju jarða
bers og Geddu gulrótar. Komu þau
með ferskum hætti boðskap Ávaxta
körfunnar til skila. eha
Signý Óskarsdóttir flutti stutt erindi og
bauð gesti velkomna. Fyrsti bekkur söng um dýrin í Afríku. Miðstigið reyndi að kalla fram sólina og vorið með taktföstum dansi.
Efsta skólastigið lék stiklur úr Ávaxtakörfunni og nýtti vinsæl dægurlög til að
koma boðskap verksins á framfæri.