Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2015, Qupperneq 52

Skessuhorn - 18.03.2015, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Vörur og þjónusta PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.iswww.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Skattframtöl / bókhald Öll almenn bókhaldsþjónusta og skattframtöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Lilja Halldórsdóttir - Viðurkenndur bókari LH bókhald ehf LHbokhald@gmail.com Finndu okkur á facebook Upplýsingar í síma 571-7787 / 897-5144 SK ES SU H O R N 2 01 5 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3 Pennagrein Pennagrein Varnaðarorð varðandi sólmyrkvann Það hefur varla farið fram hjá nein­ um að tækifæri gefst til að horfa á sólmyrkva í vikulokin ef veður leyf­ ir. Að mínu viti hefur ekki verið lögð nærri nógu mikil áhersla á hættuna sem er því samfara að horfa á sól­ myrkva án sérstakra sólmyrkvagler­ augna. Að vísu hafa öll grunnskóla­ börn fengið afhent slík gleraugu og öðrum gefst kostur á að kaupa þau á völdum stöðum. Viss hætta hlýtur samt að vera á því að einhverjir sem ekki hafa náð að útvega sér gler­ augun í tæka tíð freistist til að kíkja aðeins á þetta margumrædda fyrir­ bæri og hvað með leikskólabörnin sem ef til vill eru úti að leik á með­ an á sólmyrkvanum stendur? Flestir kannast við að hægt er að valda bruna með því að beina sól­ argeislum í gegnum stækkunargler. Hið sama getur gerst í auganu þeg­ ar augasteinninn brýtur sólargeisl­ ana og beinir þeim í brennipunkt á sjónhimnu augans. Þar sem augað horfir beint í sólina getur því mynd­ ast brunagat á versta stað, það er að segja í miðgróf sjónhimnunnar og veldur það blindum bletti í miðju sjónsviðsins með tilheyrandi sjón­ skerðingu. Til eru vægari útgáfur af augnbotnaskemmdum sem eru að vissu marki afturkræfar en oft verður þessi blindi blettur varan­ legur og getur verið misstór, allt frá því að einn og einn stafur detti út úr orðum upp í algjört tap á lestrar­ sjón og skarpri sjón augans. Undirrituð hefur starfað sem augnlæknir á Vesturlandi í tæpa þrjá áratugi og á þeim tíma hafa sést nokkrir sólmyrkvar á Íslandi, misstórir. Eftir hvern sólmyrkva sem sést hefur á þessu svæði hef ég séð minnst einn einstakling með varanlega sjónskerðingu eftir að hafa horft á sólmyrkvann án hlífð­ arbúnaðar og hlýtur að mega gera ráð fyrir að þó nokkrir einstakling­ ar hafi hlotið augnskaða á landinu öllu. Ég vil því vara alla við að horfa á sólmyrkvann án tilskilins hlífð­ arbúnaðar. Það skal tekið fram að venjuleg sólgleraugu veita enga vörn í þessu tilfelli og því síður þrí­ víddargleraugu. Leikskólakennur­ um vil ég ráðleggja að halda börn­ unum inni á meðan á sólmyrkvan­ um stendur og sérstaklega vil ég beina því til þeirra sem verða með stóra hópa barna að horfa á myrkv­ ann að brýna fyrir þeim að horfa allan tímann í gegnum gleraug­ un. Það þarf ekki að horfa á sólina í langan tíma til að valda óbætanleg­ um skaða. Guðrún Guðmundsdóttir, augnlæknir Ekki hefur nú tíð­ in verið góð undan­ farna mánuði. Fólk orðið graut­ fúlt yfir veðrinu og er nú ekki á bætandi í þrasi og rausi þjóðarinn­ ar. En það er nú ýmislegt til ráða eins og að fara í leikhús, myndlista­ sýningu eða þá á tónleika. Þar er nefnilega ekkert þras og raus, held­ ur sköpunarkraftur sem aldrei lenti í hruni, þrasi eða rausi. Listamenn halda bara alltaf áfram að gefa af sér hvernig sem viðrar eða kaupin ger­ ast á eyrinni. Það var hlýja í Norðurljósasal Hörpu föstudagskvöldið 27. síðasta mánaðar. Kór Akraneskirkju var með mjög fallega tónleika ásamt einsöngvurum, píanóleikara, fiðlu­ leikara og jasstríói. Fallegur söngur einkenndi alla tónleikana. Á fyrri hluta tón­ leikanna voru m.a. verk eftir How­ ard Goodall og útsetningar eftir John Rutter sem kórinn söng mjög fallega. Eftir hlé var uppistaðan svo lög eftir Tómas R. Einarsson, Manna­ börn sem er nafn á diski og bók sem gefin hafa verið út. Tónlist Tómasar er frábærlega skemmtileg, þ.e. glaðleg, frum­ leg og glettin. Kór og einsöngvari fluttu lögin afar val. Auður Guð­ johnsen fór á músíkölskum kost­ um. Það var nefnilega hlýja sem ég fékk frá fallegum kórsöng, ein­ söngvurum, hljóðfæraleikurum og síðast en ekki síst innilegri og í senn látlausri stjórn Sveins Arnar Sæ­ mundssonar, organista þetta föstu­ dagskvöld. Takk. Helgi Bragason Höf. er kórstjóri og tónlistarkennari. Að koma inn í hlýjuna Stórfelldur samdráttur hefur orð­ ið í útgáfu og sölu mynddiska og myndbanda frá síðustu aldamótum að telja. Sala leigumynda frá útgef­ endum til myndaleiga hefur dreg­ ist saman um 98% á þessum tíma. Semsagt algjört hrun. Samsvarandi samdráttar hefur einnig gætt í út­ leigu frá myndaleigum. Verulegur samdráttur hefur einnig orðið í sölu sölumynda á undanförnum árum. Sala slíkra mynda frá útgefendum til smásala hefur dregist saman um meira en helming á undanförnum árum. „Engum vafa er undirorp­ ið að samdráttar á leigu­ og sölu­ myndamarkaði er að rekja til stór­ aukins framboðs sjónvarpsefnis og nýrra miðlunarleiða á myndefni yfir Netið,“ segir í tilkynningu frá Hagstofunni sem heldur utan um þessa tölfræði. Á síðasta ári var gefinn út 571 titill leigu­ og sölumynda á veg­ um stærstu útgefenda mynddiska. Þar af voru sölumyndir 434 talsins og leigumyndir 137. Fjöldi útgef­ inna sölumynda hefur dregist sam­ an um þriðjung frá því að útgáfan var mest árið 2011. Útgáfa leigu­ mynda hefur dregist saman nær samfellt frá árinu 2004, eða um 84%. mm Algjört hrun mynddiskamarkaðarins

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.