Skessuhorn - 18.03.2015, Side 53
53MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Smiður á verkstæði á Akranesi
Óskum eftir því að ráða smið
eða mann vanan tölvustýrðum
trésmíðavélum. Þarf að hafa
brennandi áhuga á framleiðslu
innréttinga. Um framtíðarstarf er að
ræða. Algjört skilyrði að tala íslensku.
Upplýsingar veitir Elli í síma 660-2470
eða á elli@verktaki.is.
Palomino Colt
Til sölu Palomino Colt fellihýsi árg.
200.1 Fortjald, eggjabakkadýnur,
nýlegur geymir. Gott fellihýsi á góðu
verði. 600.000 staðgreitt. Alltaf geymt
inni á veturna. Er í Ólafsvík. hjalmar@
isam.is.
27 ára einstæður faðir óska eftir
íbúð
Ég er 27 ára einstæður faðir sem
vantar íbúð sem fyrst á Akranesi. Er
með 10 mánaða gamlan strák. Íbúðin
þarf helst að vera þriggja herbergja
en tveggja eða fjögurra herbergja
koma líka alveg til greina. Er í 100%
starfi með öruggar greiðslur. Góð
meðmæli, snyrtilegur og reyklaus!
Endilega hafið samband í síma
774-7123 ef þið vitið eitthvað. Get
flutt strax núna í mars.
Leiguhúsnæði óskast
Fjögurra manna fjölskylda óskar
eftir fjögurra herbergja húsnæði í
Borgarnesi frá og með júní eða júlí
næstkomandi. Reglusöm og reyklaus.
Upplýsingar í síma 868-4278, Sævar.
Leiguhúsnæði óskast
Erum að leita eftir þriggja til
fjögurra herbergja íbúð á Akranesi
eða í Borgarnesi frá og með 1.júlí.
Reglusemi, snyrtimennsku og
skilvísum greiðslum heitið. Eydís,
8470-744.
Íbúð óskast
Óska eftir eins til þriggja herbergja
íbúð á leigu á Akranesi. Er 35 ára,
rólegur, reglusamur og með góða
greiðslugetu. Sími 659-9375.
Fjögurra manna fjölskylda óskar
eftir íbúð
Par með tvö börn og labradorhund
óskar eftir íbúð til leigu frá maí/
júní. Erum reglusöm og skilvísum
greiðslum er heitið. Hafdís, s:
862-0645.
Leiguhúsnæði óskast
Erum að leita að þriggja til fjögurra
herbergja íbúð á Akranesi eða
í Borgarnesi frá og með 1.júlí.
Reglusemi, snyrtimennsku og
skilvísum greiðslum heitið. Eydís,
8470-744.
Leiguhúsnæði
Vantar tveggja til þriggja herbergja
íbúð til langtímaleigu. Upplýsingar á
spalmadottir1@gmail.com og í síma
867-2971, Sigrún.
Fjögurra manna fjölskylda óskar
eftir íbúð til leigu í Borgarnesi
Par með tvö börn, 5 ára og 14 ára,
óskar eftir íbúð til leigu í Borgarnesi.
Erum reyklaus og reglusöm.
Langtímaleiga væri kostur en erum
til í að skoða allt. Skilvísum greiðslum
heitið. Sími 691-4269.
Óska eftir stól með setu ofna úr
snæri
Er að leita að stól, dönskum. Setan
er ofin með úr snæri, sjá mynd.
Upplýsingar í síma 696-2334 eða á
ispostur@yahoo.com.
Mynd af Búðakirkju eftir
Gunnlaug Blöndal
Falleg vatnslitamynd eftir Gunnlaug
Blöndal til sölu. Myndin er af
Búðakirkju og Snæfellsjökli. Myndin
er 53 x 72 sm. Með rammanum er
hún 95 x 77 sm. Grétar, sími 6985115
eða gretarsigurdss@gmail.com.
Spádómar - Draumaráðningar
Spái í gegnum síma alla daga eftir
hádegi. Sími 555-2927/847-7596,
Hanna.
Átt þú þorsknetahringi?
Leita dyrum og dyngjum að
dúsíni af marglitum netahringjum
(plasthringir úr þorskanetum, um
það bil 20 sm. í þvermál). Ef einhver
á slíkt og gæti hugsað sér að sjá af
þvíværi það afar vel þegið. Á að nota
til leikja. Sími 777-2656.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 18. mars
Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi standa fyrir
kynningarfundi á Sóknaráætlun
Vesturlands í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði kl.
16:30.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 18. mars
Söngnemendur Hólmfríðar
halda tónfund í Tónlistarskóla
Stykkishólms kl. 18. Allir velkomnir.
Borgarbyggð -
miðvikudagur 18. mars.
Fræðslukvöld um ferðamennsku
í fundarsal Hvanneyrargötu 3 á
Hvanneyri kl. 20. Rætt verður um
undirbúning, klæðnað, skóbúnað,
rötun og GPS. Einnig rætt um
vetrarferðarmennsku. Kaffigjald
er kr. 500.
Akranes - föstudagur 20. mars
Listahátíð í Tónlistarskóla
Akraness hefst með
súputónleikum kl. 12 á hádegi.
Margar skemmtilegar uppákomur
yfir daginn, tónleikar, myndlist
og fleira. Um kvöldið munu
tónlistarkennarar slá léttar nótur.
Borgarbyggð -
föstudagur 20. mars.
Tónleikar Trio NOR í
Landnámssetrinu í Borgarnesi
kl. 20.30. Tríóið skipa þeir Ómar
Einarsson, Jakob Hagedon-Olsen
og Jón Rafnsson. Þeir leika klassísk
amerísk djasslög með suðrænu
ívafi.
Stykkishólmur -
laugardagur 21. mars
Snæfell mætir Keflavík í
úrvaldeild kvenna í körfubolta í
íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi
kl. 15.
Akranes - sunnudagur 22. mars
Síðasti sýningardagur
ljósmyndasýningar Árna
G. Aðalsteinssonar, Útnes -
undir jökli, í Guðnýjarstofu á
Safnasvæðinu á Akranesi.
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands Nýfæddir Vestlendingar
ÝMISLEGT
11. mars. Stúlka. Þyngd 3.405 gr.
Lengd 52 sm. Foreldrar: Anna Margrét
Ólafsdóttir og Árni Ásgeirsson,
Stykkishólmi. Ljósmóðir: Valgerður
Ólafsdóttir.
ÓSKAST KEYPT
TIL SÖLU
BÍLAR/VAGNAR/KERRUR
12. mars. Stúlka. Þyngd 4.130
gr. Lengd 53 sm. Móðir: Kristín
Markúsdóttir, Garðabæ. Ljósmæður:
Helga Höskuldsdóttir/Jóhanna Rut
Hafsteinsdóttir.
Getir þú barn þá
birtist það hér,
þ.e.a.s. barnið!
www.skessuhorn.is
ATVINNA Í BOÐI
LEIGUMARKAÐUR
Tónlistarskólinn á Akranesi
og Tónberg kynna !
Litla listahátíðin föstudaginn 20.mars 2015
Dagskrá.
12.10 Súputónleikar í anddyri skólans. Kvennakórinn Ymur framreiðir
magnaða súpu og nemendur leika nokkur lög. Verð á súpu kr.1000
13.00 Opið hús – leiðsögn um skólann.
14.00 Litla lúðrasveitin með opna æfingu og hljóðfærakynningu. *
15.00 Teiknimyndin Fantasía eftir Walt Disney sýnd í Tónbergi. *
15:00 Meðlimir úr Skagaleikflokknum eiga sviðið.
16.00 Opnun myndlistarsýningar nokkurra kvenna í anddyri. *
16:30 Ljóðalestur í anddyri. *
17.00 Samspilstónleikar í Tónbergi. Meðal atriða er brot úr söngleiknum
Grease. *
20.00 Tónleikar í Tónbergi þar sem kennarar
skólans fara í tónleikahaminn ásamt
góðum gestum. *
* Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Tónlistarskólinn á Akranesi
Tónlistarskólinn á Akranesi
Frá því ég hóf störf mín í bæjarstjórn
Akraneskaupstaðar hef ég barist fyr
ir því að fundargerðir bæjarstjórn
ar, ráða og nefnda á vegum bæjarins,
væru eins upplýsandi og hægt væri
þannig að bæjarbúar og aðrir sem
vilja fylgjast með bæjarmálum geti
það á auðveldan hátt.
Þegar ég var fyrst að bjóða mig fram
til starfa fyrir kaupstaðinn var ég oft í
stökustu vandræðum með að koma
mér inn í málefni sem tekin voru fyr
ir á fundum ráða og nefnda þar sem
oftar en ekki var bókað: “Lagt fram”
og svo ekkert meira um það. Hvern
ig í ósköpunum á hinn almenni bæj
arbúi að geta sett sig inn í mál með
slíka bókun?
Á fundi bæjarstjórnar haustið 2010
hafði ég frumkvæðið að bókun sem
ég lagði fram ásamt nokkrum öðr
um bæjarfulltrúum þáverandi meiri
hluta en hún hljóðaði svo: ,,Bæjar
stjórn Akraness samþykkir á fundi
sínum þann 28. september 2010 að
hér eftir verði fundargerðir bæjar
ins ítarlegri og meira upplýsandi fyr
ir þá sem lesa þær. Einnig skulu þau
fundargögn sem lögð eru fram sem
fylgiskjöl funda, og ekki eru trúnað
armál, verða aðgengileg á heimasíðu
bæjarins. Þetta verði gert til að upp
lýsa bæjarbúa enn frekar um þau mál
efni sem tekin eru fyrir á vegum ráða,
nefnda og bæjarstjórnar Akraness.“
Þessi litla barátta hefur tekið sinn
tíma, þó svo ég telji að vilji allra hafi
verið til staðar þá hafa smáatriði ver
ið að trufla eins og tæknileg atriði og
þvíumlíkt.
Það gladdi því mitt litla hjarta afar
mikið um daginn þegar fyrsta fundar
gerð bæjarstjórnar birtist loksins á vef
Akraneskaupstaðar með fylgiskjölum.
Fyrst um sinn verða það bæjarstjórn
og bæjarráð sem munu birta fylgi
skjöl með sínum fundargerðum en
svo munu hin ráðin fylgja í kjölfarið.
Nú er Akraneskaupstaður einn
fárra kaupstaða á landinu sem birt
ir fundargerðir sín
ar með fylgiskjölum
og er það vel. Ég tel
þetta skref vera afar mikilvægt í þeirri
vegferð að gera stjórnsýsluna opnari
og gagnsærri gagnvart þeim sem vilja
fylgast með.
Í tengslum við gagnsæja stjórn
sýslu er einnig mikilvægt að hafa uppi
á borðum upplýsingar um viðskipti
Akraneskaupstaðar við kjörna full
trúa og starfsmenn. En þær voru að
gengilegar á heimsíðu bæjarins á síð
asta kjörtímabili í kjölfar þess að ég
lagði það til á fundi bæjarráðs. Ég
hvet nýjan meirihluta að gera slíkt
hið sama.
Ég vil að lokum hvetja alla þá sem
vilja fylgjast með að kynna sér nýjar
og bættar fundargerðir bæjarins og
taka þannig þátt í málefnum bæjar
ins.
Ingibjörg Valdimarsdóttir
Höf. er bæjarfulltrúi Samfylkingar-
innar á Akranesi
Opin og gagnsæ stjórnsýsla
Pennagrein
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
Innnesvegi 1 • Akranesi • Sími 431 1985 • reynir@bilver.is
Bílver ehf.
Óskum eftir að ráða
bifvélavirkja eða mann
vanan bílaviðgerðum.
Upplýsingar hjá Reynir í
síma 899 7330/431-1985
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5