Skessuhorn - 25.03.2015, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Spölur hagnast
VESTURLAND: Á aðal-
fundi Spalar, rekstrarfélags
Hvalfjarðarganga, sem hald-
inn var síðastliðinn föstudag
kom fram að hagnaður af
rekstri félagsins á síðasta ári
nam 445 milljónum króna.
Tekjur félagsins voru 1.136
milljarðar króna. Rekstrar-
kostnaður var 335 milljónir.
Stjórn félagsins lagði til að
greiddur verði arður að fjár-
hæð 45 milljónir króna eða
0,52 á hlut. Meðal hluthafa
eru Faxaflóahafnir, Akranes-
kaupstaður, Íslenska járn-
blendifélagið, Hvalfjarðar-
sveit og Borgarbyggð. Þetta
var sautjánda af tuttugu rek-
starárum Spalar en gert er
ráð fyrir að félagið verði lagt
niður árið 2019. Starfsmenn
Spalar voru 17 á árinu sem
samsvarar 15 stöðugildum.
Fram kom í skýrslu stjórnar
að Íslendingar væru meira á
ferðinni en áður og svo hefði
umferð erlendra ferðamanna
aukist einnig og myndi
aukast enn í nánustu fram-
tíð. Um Hvalfjarðargöng
fóru tæplega tvær milljónir
ökutæki árið 2014 eða 5.312
ökutæki á sólarhring.
–þá
Fimmta Vestur-
landssýningin
BORGARNES: Laugar-
daginn 28. mars munu hesta-
mannafélögin á Vesturlandi
og Hrossaræktarsamband
Vesturlands efna til sýning-
ar í reiðhöllinni Faxaborg í
Borgarnesi. Þetta er fimmta
árlega Vesturlandssýning-
in sem þessi félög standa í
sameiningu að. Skipulag er í
höndum rekstrarfélags Faxa-
borgar og sjálfboðaliða frá
hestamannafélögunum. Í ár
verða fjölmörg atriðið á dag-
skrá. Þar ber helst að nefna
sýningar barna, unglinga og
ungmenna, gæðingafimi, A-
og B-flokk gæðinga, skeið,
kynbótahross, ræktunarbús-
sýningar og afkvæmasýning-
ar. Auk þess mætir gæðing-
urinn Loki frá Selfossi á sýn-
inguna og félag tamninga-
manna verður með atriði.
Dagskráin hefst kl. 20:00 og
er forsala miða í KB í Borg-
arnesi. Aðgangseyrir er þús-
und krónur fyrir 13 ára og
yngri en 2.500 krónur fyrir
14 ára og eldri.
–kgk
Árleg Vesturlandsýning hesta
manna félaga á Vesturlandi og Hrossa
ræktarsambandsins verður á laugar
daginn í reiðhöllinni Faxaborg í Borg
arnesi. Sjá nánar í Skessuhorni í dag.
Á fimmtudag og föstudag er spáð
suðvestan 815 m/sek, hvassast við
suðvesturströndina og víða él. Hiti
kringum frostmark að deginum. Á
laugardag er útlit fyrir norðaustan
1015 m/sek og snjókoma á Vest
fjörðum en annars hægari vestlæg
átt og dálítil él. Fremur svalt í veðri.
Á sunnudag og mánudag er spáð
norðvestan kalda og éljum norð
austan til en annars hægari og lítilli
úrkomu. Kólnandi veður.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu
horns: „Hyggur þú á utanlandsferð á
þessu ári?“ Margir virðast gera það.
„Já, örugglega“ sögðu 42% og „já, lík
lega“ 13,11%, eða samtals um 55%.
„Nei“ svöruðu 34,89% og 10% vissu
það ekki.
Í þessari viku er spurt:
Hvernig ætlarðu að verja
páskafríinu?
Haraldur Benediktsson bóndi og al
þingismaður hefur stýrt vinnuhópi
sem skilað hefur skýrslu til innanrík
isráðherra með tillögum um hvernig
ljósleiðaravæða megi 99,9% byggð
ar hér á landi. Haraldur hefur talað
fyrir mikilvægi þess að landsmenn
allir komist í afburða gott fjarskipta
samband, jafnvel á heimsvísu, ef far
ið verður að tillögum starfshópsins.
Haraldur er Vestlendingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Verkfræðistofan VSÓ vinnur nú
að skýrslu fyrir Akraneskaupstað
þar sem lagt er mat á beiðni HB
Granda um að stækka fiskþurrkun-
arverksmiðju Laugafisks á Breið-
inni á Akranesi. Með þeim fram-
kvæmdum er áætlað að vera með
bæði forþurrkun og eftirþurrkun
á fiskhausum og hryggjum undir
einu og sama þaki. „Í þessari skýrslu
eiga sérfræðingar VSÓ að koma
með upplýsingar frá HB Granda
um hvernig hreinsibúnað fyrirtæk-
ið hyggst nota við fiskþurrkunina,
leggja fram upplýsingar um bestu
mögulegu tækni við slíka hreins-
un og síðan leggja mat á stöðuna
eins og hún er í dag,“ segir Reg-
ína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akra-
ness. Þegar skýrslan verður tilbúin
ætla bæjaryfirvöld að boða til opins
íbúafundar um málið.
Áform um að stækka fiskþurrk-
Bæjaryfirvöld boða íbúafund um fiskþurrkun
un Laugafisks eru umdeild á Akra-
nesi. Skipulags- og umhverfisráð
hefur ekki fjallað efnislega um um-
sókn HB Granda um stækkun. Það
verður ekki gert fyrr en nægar upp-
lýsingar liggja fyrir, meðal annars
í formi skýrslunnar frá VSÓ. Þeg-
ar hún verður tilbúin mun verða
boðað til opins íbúafundar um mál-
ið. Á honum verður gerð grein fyr-
ir niðurstöðu VSÓ auk þess sem
HB Grandi kynnir fyrirætlanir sín-
ar. „Ég á von á að af þessum fundi
geti orðið í seinnihluta aprílmánað-
ar,“ segir Regína.
Andstæðingar þess að Laugafisk-
ur hafi starfsemi sína á Breiðinni á
Akranesi hafa ítrekað kvartað yfir
lyktarmengun frá vinnslunni. „Íbú-
ar á Akranesi sem hafa heyrt af fyr-
irhuguðum íbúafundi hafa sett sig í
samband við bæjaryfirvöld og óskað
eftir því að fá að vera með innlegg á
þessum íbúafundi. Við tökum vel í
það,“ segir Regína.
Þessu til viðbótar má geta þess
að í Skessuhorni í dag er áskorun
á fjórða hundrað íbúa á Akranesi
þar sem spurt er hvort fólki sé sama
um hvort; „stærsta fiskhausaþurrk-
un í heimi sé í hverfinu þínu, með
tilheyrandi ólykt sem sannarlega
skerðir lífsgæði fólki,“ svo vitnað sé
orðrétt í áskorunina.
Hyggja á ferð norður
Í síðustu viku hélt skipulags- og
umhverfisráð Akraneskaupstað-
ar vinnufund með sérfræðingum
VSÓ. Á þann fund var allri bæj-
arstjórn boðið ásamt fulltrúum í
starfshópi Akranesbæjar um Breið-
ina sem og embættismönnum Akra-
neskaupstaðar. Fyrir liggur boð um
að skipulags- og umhverfisráð og
bæjarstjórn Akraness fari í kynnis-
ferð til Sauðárkróks. Þar er FISK
Seafood að setja upp nýja og full-
komna fiskþurrkunarverksmiðju
við Skarðseyri, skammt frá hafn-
arsvæðinu og í norðanverðum út-
jaðri bæjarfélagsins. Þessi nýja verk-
smiðja á að búa yfir mjög fullkomn-
um hreinsibúnaði. Ferðinni hef-
ur verið frestað framyfir páska þar
sem dregist hefur að koma þessari
verksmiðju í gagnið. „Það er verið
að leggja lokahönd á uppsetningu
búnaðarins þarna. Það er ekki tíma-
bært að skoða þessa verksmiðju fyrr
en vinnsla í henni er hafin,“ seg-
ir Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
Akraness. mþh
Húsakynni Laugafisks, dótturfyrirtækis HB Granda á Akranesi. Fremst á myndinni
er svæðið þar sem HB Grandi hefur óskað eftir að reisa nýbyggingu svo öll fisk-
þurrkun geti farið fram undir einu og sama þaki við nýjustu aðstæður og nýjum
búnaði.
Í nóvember á síðasta ári var fram-
kvæmd spurningakönnun með-
al stjórnenda fyrirtækja, einyrkja,
smábátasjómanna og bænda á
Vesturlandi. Þátttakendur voru
spurðir hvers kyns menntun væri
helst skortur á inn í fyrirtækin. Í
ljós kom að iðn- og tæknimennt-
un var oftast nefnd. Næst á eftir
var starfsfólk með kennaramennt-
un og þar á eftir kom menntun í
ferðaþjónustufræðum og almenn
háskólamenntun. Einnig mæld-
ist skortur á starfsfólki með heil-
brigðismenntun, búfræðimenntun
og menntun í viðskipta- og tölvu-
fræðum og markaðsmálum. Þá
nefndu þátttakendur þörf á starfs-
fólki með menntun í raungrein-
um auk þess sem nokkrir nefndu
vöntun á starfsfólki með annars-
konar menntun en talin hefur ver-
ið upp hér að ofan. Þessi spurn-
ingakönnun var hluti af svokall-
aðri Fyrirtækjakönnun sem unnin
var af Einari Þorvaldi Eyjólfssyni
hjá SSV. Hún var vefkönnun og
send út til 1.011 fyrirtækja á Vest-
urlandi. mþh
Skortur á iðn-
og tækni-
menntuðum
Þrátt fyrir umfangsmiklar truflanir
og útleysingar í raforkukerfi Lands-
nets í óveðrinu sem gekk yfir landið
laugardaginn 14. mars síðastliðinn
varð tjón á mannvirkjum minna en
útlit var fyrir. Á annan tug staura-
stæða brotnuðu í flutningskerfi
landsnes, þar af ellefu í Ísafjarð-
arlínu efst í Tungudal. Stjórnstöð
Landsnets hafði í mörg horn að líta
þegar óveðrið skall á snemma þenn-
an óveðursdag, en gríðarlega mik-
ið var um truflanir og útleysing-
ar á sama tíma víðsvegar um land-
ið vegna samsláttar. Staðan versn-
aði enn frekar þegar byggðalínan,
sem er tiltölulega veik og yfirlest-
uð í hefðbundnum rekstri, gaf sig
nokkru fyrir hádegi þegar staura-
stæða brotnaði í Hrútatungulínu
rétt ofan við Vatnshamra í Andakíl.
Þegar byggðalínhringurinn gefur
sig stóreykst hættan á truflunum í
flutningskerfinu. Straumlaust varð
á Snæfellsnesi og víða á Vestfjörð-
um og litlu munaði að rafmagns-
laust yrði á höfuðborgarsvæðinu.
Gripið var til skerðingar á raforku
til fyrirtækja víða um land með-
an byggðalínuhringurinn var úti
en viðgerð lauk rétt um miðnætti
þetta kvöld.
„Veðrið þessa helgi vekur enn
á ný upp spurningar um ástand
byggðalínunnar. Samkvæmt áliti
veðurfræðinga var óveðrið 14. mars
ekkert einsdæmi og vert að hefj-
ast handa við að styrkja þessa mik-
ilvægu flutningslínu raforku sem
þjónað hefur landsmönnum í þrjá
áratugi en er fyrir löngu fulllest-
uð,“ segir í tilkynningu sem Lands-
net sendi frá sér. mm
Brotin stæða í Hrútatungulínu 1, skammt ofan við Vatnshamra. Ljósm. Landsnet.
Byggðalínan er veikbyggð