Skessuhorn - 17.02.2016, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 20162
verður vindálag skoðað við hönnun
bygginga og lóða, trjágróður verð-
ur aukinn til að bæta ásýnd svæðis-
ins, opnað fyrir gerð bílastæðahúss
undir hluta bygginga og lóðarstærð
Borgarbrautar 55 verði leiðrétt.
Talsverðar umræður spunnust
um skipulagstillöguna á fundi sveit-
arstjórnar en almennt lýstu bæjar-
fulltrúar ánægju sinni með skipu-
lagsbreytingar fyrir svæðið. At-
kvæðagreiðsla fór þannig að átta
bæjarfulltrúar reyndust henni sam-
mála en Ragnar Frank Kristjánsson
(VG) sat hjá. Sveitarstjórn sam-
þykkti því breytt deiliskipulag fyr-
ir Borgarbraut 55, 57 og 59 með
þeim breytingum sem fram koma
á uppdrætti og í bókun umhverfis-,
skipulags- og landbúnaðarnefndar.
Nú liggur fyrir að eftir að Skipu-
lagsstofnun hefur samþykkt ný-
afgreitt skipulag sveitarstjórn-
ar Borgarbyggðar munu lóðar-
hafar fyrir Borgarbraut 57 og 59,
þeir Snorri Hjaltason og Jóhannes
Freyr Stefánsson, hefjast handa við
endanlega hönnun svæðisins. Gera
má ráð fyrir að framkvæmdir hefjist
fyrir eða um mitt þetta ár. Gert er
ráð fyrir blöndu íbúða- og atvinnu-
starfsemi.
mm
Konudagurinn, fyrsti dagur forna mánað-
arins Góu, er á sunnudaginn. Það er dagur
húsfreyjunnar og í seinni tíð hefur sá sið-
ur breiðst út að karlmenn færi eiginkonum
sínum blóm eða eitthvað annað fallegt á
konudaginn. En það þarf auðvitað ekki að
minna þá á það!
Fremur hæg breytileg átt og talsvert frost
verður á morgun, fimmtudag. Snjómugga
á annesjum norðanlands en bjart annars
staðar á landinu. Vaxandi suðaustanátt síð-
degis. Suðaustan 8-15 m/s og snjókoma
sunnan- og vestanlands um kvöldið og
heldur hlýnandi veður. Suðvestan 8-15 m/s
og éljagangur en hvassari suðaustanátt og
slydda austan til á landinu fram eftir degi.
Frost 0-10 stig, mildast á Austurlandi. Á laug-
ardag spáir norðaustan hvassviðri og snjó-
komu um norðvestanvert landið en ann-
ars hægari breytilegri átt. Léttskýjað og kalt
í veðri.
Ákveðin norðanátt með snjókomu eða élj-
um en úrkomulitlu sunnanlands á sunnu-
dag og mánudag. Vægt frost.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hversu marga kaffibolla drekkur þú á dag?“
Flestir, eða 34,05% sögðu „3-5 bolla“,18,78%
sögðu „1-2 bolla“ og „6-8 bolla“ sögðu
17,03%. 8,78% drekka „9-11 bolla“ og 6,08%
„12 bolla eða fleiri“. Sláandi 15,27% þeirra
sem tóku afstöðu kváðust ekki drekka kaffi.
Í næstu viku er spurt:
Er spilling í þjóðfélaginu að
aukast eða minnka?
Snæfell varð á laugardag bikarmeistari í
körfuknattleik kvenna eftir sigur á Grindavík
í spennandi leik. Er það í fyrsta sinn sem lið-
ið hampar þeim titli. Snæfellskonur eru Vest-
lendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Innansveitar
skotmótaröð
BORGARNES: Mótanefnd
Skotfélags Vesturlands ætl-
ar að standa fyrir innanfé-
lags-kvöldmótaröð í Silhou-
ett-skotfimi og fer það fram í
inniaðstöðu félagsins í Brák-
arey. Notaðir verða 22 cal
rifflar, skotið standandi á 25
metra færi og sjónaukar eru
leyfðir. Sigurvegari á móta-
röðinni verður sá sem flest stig
hlýtur samanlagt og eru þá tal-
in fjögur bestu mót hjá hverj-
um og einum. Verðlaun verða
veitt fyrir þrjú fyrstu sætin að
loknu síðasta móti. Fyrsta um-
ferð verður fimmtudaginn 18.
febrúar klukkan 20 og önnur
umferð fimmtudaginn 3. mars
klukkan 20. Hinar verða 7. og
28. apríl og síðastustu umferð-
ir verða 12. og 26. maí. Móts-
gjald er 2.500 kr fyrir móta-
röðina og greiðist við mæt-
ingu. Félagsmenn, jafnt konur
sem karlar, eru hér með hvatt-
ir til að taka þátt. Síðasti dagur
til skráningar er miðvikudag-
inn 17. febrúar á motanefnd-
skotvest@gmail.com.
–fréttatilk.
Ráðinn
byggingafulltrúi
AKRANES: Stefán Þór
Steindórsson hefur verið ráð-
inn byggingafulltrúi hjá Akra-
neskaupstað og tekur við sem
slíkur síðari hluta marsmánað-
ar. Á vef Akranesbæjar segir að
Stefán muni sinna lögbundn-
um verkefnum byggingafull-
trúa, þ.e. byggingaeftirliti, af-
greiðslu byggingaumsókna og
úttektum ásamt öðrum verk-
efnum sem sviðsstjóri felur
honum þ.m.t. skipulagsverk-
efni. Sviðstjóri mun hins vegar,
í ljósi samþykktar bæjarstjórn-
ar frá 26. janúar síðastliðnum
sinna lögbundnum verkefnum
er varða skipulagsmál. Þetta er
breyting frá því sem áður var
þegar eitt starfsheiti var yfir
skipulags- og byggingafulltrúa
hjá bæjarfélaginu. Stefán er
með BSc gráðu sem bygginga-
fræðingur frá Københavns Er-
hvervs Akademi. Hann hefur
síðastliðin þrjú ár starfað sem
byggingafræðingur í sölu- og
tæknideild Gluggasmiðjunn-
ar. Þar áður starfaði hann í
þrjú ár hjá Gler og Brautum
ehf. sem byggingafræðingur í
tæknideild og hjá Arkitektur.is
sem byggingafræðingur 2007
til 2009. Eiginkona Stefáns er
Þórhildur Rafns Jónsdóttir og
eiga þau tvö börn.
–mm
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Snörp pólitísk átök hófust bak við
tjöldin í Borgarbyggð snemma í
síðustu viku sem enduðu á þann veg
síðdegis á fimmtudaginn að meiri-
hlutasamstarfi Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks var slitið. Það
var formlega gert í kjölfar fundar í
sveitarstjórn sem fram fór síðdegis
þann dag. Á fundinum voru reynd-
ar ýmis mál afgreidd úr sveitar-
stjórn, svo sem breytt skipulag fyr-
ir Borgarbraut 55-59 í Borgarnesi.
Var í raun ótrúlegt að verða vitni að
því hvernig sveitarstjórnarfulltrú-
ar „héldu andlitinu“ út fundinn í
ljósi vitneskju um að þetta yrði síð-
asti andardráttur þessa meirihluta-
samstarfs. Úrslitaþáttur þess að upp
úr samstarfi flokkanna slitnaði var
ágreiningur um lyktir grunnskóla-
málsins á Hvanneyri sem óneitan-
lega hefur verið þyngsta mál sveit-
arstjórnar á kjörtímabilinu og vald-
ið deilum sem rist hafa djúpt.
Það var að frumkvæði fulltrúa
sjálfstæðismanna í sveitarstjórn,
þeirra Björns Bjarka Þorsteinsson-
ar, Hulda Hrannar Sigurðardótt-
ur og Jónínu Ernu Arnardóttur að
leggja fram tillögu á fundi sveitar-
stjórnar á fimmtudaginn þess efn-
is að sveitarstjórn bakkaði með fyrri
ákvarðanir sínar um lokun Anda-
kílsskóla í haust og færslu þriggja
bekkjadeilda grunnskólans inn í
leikskólann Andabæ. Tillagan var
auk þeirra studd með atkvæðum
Ragnars Frank Kristjánssonar full-
trúa VG og Geirlaugar Jóhanns-
dóttur og Magnúsar Smára Snorra-
sonar frá Samfylkingu. Fulltrúar
Framsóknarflokks sátu hjá við af-
greiðsluna. Áður hafði sveitarstjórn
hafnað tillögu Finnboga Leifsson-
ar (B) um að vísa tillögu sjálfstæðis-
manna til byggðarráðs.
Strax hafist handa við
meirihlutamyndun
Þreifingar um myndun nýs meiri-
hluta voru hafnar fyrir fund sveit-
arstjórnar síðastliðinn fimmtudag.
Þá var Framsóknarflokkur búinn
að bjóða sveitarstjórnarfulltrúum
Samfylkingar „upp í dans.“ Sam-
fylking er í oddaaðstöðu með tvo
fulltrúa í sveitarstjórn og gat haf-
ið samstarf við hvorn sem var af
fráfarandi meirihlutaflokkum.
Þessu boði framsóknarfólks höfn-
uðu sveitarstjórnarfulltrúar Sam-
fylkingar sem þótti vænlegra í ljósi
málefna sem steytti á að hefja fyrst
viðræður við Sjálfstæðisflokkinn.
Viðræður S-flokkanna hófust strax
á fimmtudagskvöldið. Föstudag-
urinn var einnig nýttur frá morgni
til kvölds. Rætt var við starfsfólk í
ráðhúsi, starfsfólk leik- og grunn-
skóla á Hvanneyri og fjölmarga
fleiri. Nú liggur fyrir að ef viðræð-
ur flokkanna leiða til myndunar
nýs meirihluta verði starf sveitar-
stjóra auglýst. Kolfinna Jóhannes-
dóttir sveitarstjóri dró sig í hlé frá
störfum í hádeginu á föstudaginn
og við tók Eiríkur Ólafsson sem er
staðgengill sveitarstjóra samkvæmt
skipuriti.
Þess er vænst að strax nú um
miðja vikuna verði komið í ljós
hvort viðræður Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks leiða til myndunar
nýs meirihluta í Borgarbyggð, eða
hvort leita verði annarra leiða við
myndun meirihluta. Fundur flokk-
anna var ráðgerður síðdegis í gær,
eftir að Skessuhorn var sent í prent-
un.
mm
Meirihlutinn féll í Borgarbyggð
og strax hafin myndun nýs
Frá fundi sveitarstjórnar síðastliðinn fimmtudag, þeim síðasta undir meirihluta-
stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var myndaður skömmu eftir
kosningar í júníbyrjun 2014. Þá hafði verið ákveðið að Kolfinna Jóhannesdóttir
tæki við starfi sveitarstjóra. Þessi mynd var tekin í Skallagrímsgarði þegar meiri-
hlutasamstarfið var kynnt.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum á fimmtudag-
inn með átta atkvæðum nýtt skipu-
lag fyrir lóðirnar Borgarbraut 55, 57
og 59. Á fundinum voru teknar fyr-
ir fundargerðir umhverfis,- skipu-
lags- og landbúnaðarnefndar þar
sem meðal annars skipulagið hefur
verið til vinnslu. Sveitarstjórn sam-
þykkti að auglýsa tillögu að breyt-
ingu á deiliskipulagi 10. desember
2015. Sex athugasemdir bárust við
skipulagsbreytingunni og meðal
annars mótmæli 188 íbúa sem telja
m.a. byggingamagn of mikið, gert
sé ráð fyrir háreistum byggingum
sem geti orsakað hættulega vind-
sveipi og að bílastæði verði ekki
nægjanleg. Jónína Erna Arnardótt-
ir formaður nefndarinnar sagði frá
athugasemdum sem bárust og við-
brögðum við þeim. Meðal annars
Lóðirnar sem um ræðir eru Borgarbraut 55, 57 og 59.
Sveitarstjórn staðfesti nýtt skipulag
miðbæjarreits í Borgarnesi