Skessuhorn - 17.02.2016, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 20166
Árshátíð GBF í
Brún
BORGARFJ: Miðvikudag-
inn 24. febrúar verður hald-
in árshátíð unglingadeild-
ar Grunnskóla Borgarfjarð-
ar, Kleppjárnsreykjadeild, í
félagsheimilinu Brún. Nem-
endur munu þar sýna frum-
samin spunaverk í leikstjórn
Ármanns Guðmundssonar.
Skemmtunin hefst kl. 20:00
og veitingar verða seldar í
hléi. Í fréttatilkynningu er
minnt á að það er enginn
posi, en allir velkomnir.
-mm
Stuck in snow
WEST: Erlendum ferða-
mönnum var komið til að-
stoðar í allmörgrum tilfell-
um í vikunni sem leið, að
sögn Lögreglunnar á Vest-
urlandi. Voru þeir að vill-
ast og festa sig, hér og þar
í umdæminu, líkt og und-
anfarnar vikur. Lögreglan
ræsti út einkaaðila til að að-
stoða fólkið en ekki kom til
þess að kalla þyrfti út björg-
unarsveitir, enda þær spar-
aðar til verðugri verkefna, í
þeim tilfellum þegar engin
er talin í bráðri hættu. Sem
dæmi um staði þar sem út-
lendingarnir voru í vandræð-
um má nefna; Laxárdalsveg í
Dölum, Uxahryggi í Borg-
arfirði, Jökulhálsleið á Snæ-
fellsnesi, við Staðaðarstað, í
Reykjadalsá, á Kvíabryggju-
vegi og í einu SMS sem barst
til lögreglunnar stóð einfald-
lega: „Stuck in snow at Arn-
arstapi“
-mm
Fara í
Háskólahermi
SNÆF: Von er á hátt í þrjú
hundruð framhaldsskóla-
nemum í Háskóla Íslands
dagana 18. og 19. febrú-
ar til þess að taka þátt í til-
raunaverkefni sem kall-
ast Háskólahermir. Verk-
efnið er nýtt af nálinni og
er liður í að efla enn frekar
samstarf HÍ við framhalds-
skóla landsins og gefa ungu
fólki tækifæri til að kynnast
starfsemi háskólans af eigin
raun. Í Háskólaherminum
taka nemendurnir virkan
þátt í háskólasamfélaginu og
kynnast námsframboði skól-
ans með lifandi og stund-
um óvæntum hætti. Meðal
þeirra framhaldsskóla sem
taka þátt er Fjölbrautaskóli
Snæfellinga. Dagana tvo
munu nemendur heimsækja
öll fimm fræðasvið Háskóla
Íslands, kynnast ólíkum
hliðum námsins og spreyta
sig á spennandi verkefn-
um sem tengjast tilteknum
þemum innan sviðanna.
–mm
Beltin bjarga
sem fyrr
VESTURLAND: Alls
urðu níu umferðaróhöpp í
umdæmi Lögreglunnar á
Vesturlandi í liðinni viku.
Þar af urðu fjórar bílveltur.
Meiðsli á fólki voru óveru-
leg og talið að notkun bíl-
belta hafi bjargað í þess-
um óhöppum. Töluverðar
skemmdir urðu á bílum og
margir þeirra alveg óökufær-
ir og voru þeir fluttir á brott
með kranabíl. Tveir öku-
menn voru teknir, grunað-
ir um akstur undir áhrifum
fíkniefna, í umdæmi LVL í
vikunni sem leið. Nokkrir
ökumenn voru sektaðir fyrir
rangstöðu og þá voru skrán-
ingarnúmer klippt af nokkr-
um bílum vegna skoðunar-
og trygginarmála.
–mm
Staðfesta vilja
til stofnunar
þróunarfélags
GRUNDARTANGI: Á
fundi byggðaráðs Borgar-
byggðar 4. febrúar sl. var
lagt fram erindi starfshóps
vegna stofnunar þróunar-
félagsins á stóriðjusvæðinu
á Grundartanga. Byggðar-
ráð samþykkti að taka þátt
í stofnun félagsins. Grund-
artangi Þróunarfélag ehf. er
félag sem ætlað er að vinna
að framfaramálum á Grund-
artanga í Hvalfjarðarsveit.
Aðilar að félaginu eru Akra-
neskaupstaður, Borgar-
byggð, Faxaflóahafnir sf,
Hvalfjarðarsveit, Reykjavík-
urborg og Skorradalshrepp-
ur. Félagið verður vettvang-
ur fyrir þessa aðila til sam-
ráðs með það að markmiði
að stuðla að uppbyggingu á
atvinnustarfsemi á Grund-
artanga og í aðildarsveitar-
félögum.
-mm
Á fundi sveitarstjórnar Borgar-
byggðar síðastliðinn fimmtudag
voru meðal annars til afgreiðslu
fundargerðir umhverfis- og skipu-
lagsnefndar. Meðal atriða var um-
sókn eiganda Egilsgötu 11 í Borg-
arnesi, nú fjölbýlishús og hótelstarf-
semi en áður verslunarhús KBB; þar
sem farið var fram á að skipulagi
verði breytt þannig að leyfilegt verði
að byggja hæð ofan á húsið. Sveitar-
stjórn samþykkti samhljóða að verða
við erindinu. Næsta skref verður því
að unnin verður tillaga að breytingu
á skipulagi gamla bæjarins í Borgar-
nesi í samræmi við beiðni eigenda
Egilsgötu 11. mm
Í undirbúningi að byggja ofan á Egilsgötu 11
Komum skemmtiferðaskipa til
Stykkishólms fjölgar í sumar sam-
anborið við síðasta ár. Þróunin hef-
ur verið nánast ævinýri líkust frá
því fyrsta skipið af þessari gerð kom
í Stykkishólmshöfn 26. maí 2014.
„Það var norska skipið Fram sem
braut þar ísinn og sýndi fram að það
væri alveg hægt að sigla svona skip-
um inn í höfnina. Í fyrra kom Fram
svo aftur einu sinni. Síðan bætt-
ist við skemmtiferðaskipið Ocean
Diamond sem kom alloft hingað
en það skip stundaði reglubundnar
siglingar fyrsta sinni í fyrrasumar
umhverfis Íslands og milli Íslands
og Grænlands,“ segir Hrannar Pét-
ursson hafnarvörður í Stykkishólmi
í samtali við Skessuhorn.
„Fram kemur svo þriðja sumar-
ið í röð nú í ár. Skipið kemur fyrst
23. maí. Oceand Diamond held-
ur siglingum sínum umhverf-
is landið áfram í sumar og kemur
í fyrsta sinni 25. maí. Skipið kemur
svo hingað á níu daga fresti í júní,
júlí og september. Það kemur ekki
í ágúst en þá grunar mig að þeir
ætli að vera í Grænlandssiglingum.
Fram kemur svo aftur tvisvar í sept-
embermánuði en Ocean Diamond
þrisvar,“ segir Hrannar. Það er því
ljós að þessar siglingar teygjast að-
eins inn í haustið. Hrannar segir að
skipin stoppi við í Stykkishólmi og
farþegar fari í land og njóti ýmsrar
afþreyingar.
„Fólkið fer í skoðunarferðir með
rútum um Snæfellsnes, skoðar
Stykkishólm og svo framvegis. Við
hér í Stykkishólmi höfum verið að
markaðssetja okkur í þessu. Stykk-
ishólmshöfn er gengin í samtök-
in Cruise Iceland sem eru samtök
aðila sem vilja koma Íslandi á kort-
ið sem áfangastað fyrir skemmti-
ferðaskip. Þetta er markaðssetning
sem tekur ákveðinn tíma því ferðir
þessara skipa eru skipulagðar með
löngum fyrirvara,“ segir Hrann-
ar og er sáttur við þróunina í kom-
um skemmiferðaskipa í Hólminn.
„Þetta lítur allt bara vel út,“ segir
hann. mþh
Skemmtiferðaskip fjölga komum
til Stykkishólms
Hrannar Pétursson hafnarvörður í Stykkishólmi er búinn að bóka margar komur
skemmtiferðaskipanna Ocean Diamond og Fram í Hólminn í sumar.