Skessuhorn - 17.02.2016, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 20168
Klakabunkar og íshröng stífl-
aði Grímsá á móts við Oddsstaði
í Lundarreykjadal á laugardaginn.
Litlu mátti muna að flæddi yfir
veginn við brúna, en vatnselgurinn
breiddi sig út um engi og tún og
náði upp undir bæjarhús á Odds-
stöðum. Í gær var heldur farið að
sjatna í lóninu. Að sögn Sigurðar
Odds Ragnarssonar bónda á Odds-
stöðum gerist þetta alltaf af og til
að áin stíflist við brúna. Grímsá er
lindá sem rennur úr Reyðarvatni og
gerist þetta einkum þegar frost er
í veðri, ekki í leysingum eins og í
mörgum öðrum ám. Íshröng hleðst
þá upp frá brú og upp að Jötnabrú-
arfossi, sem er neðstur í fossaröð-
inni. Sigurður Oddur segir að eink-
um sé hætta að tún kali ef flóð sem
þessi verða fyrir áramót, þá liggi
klakinn stundum lengi á túnunum.
Hann rifjar jafnframt upp að vet-
urinn 1989 hafi klakastíflan verið
óvenjumikil og áin brotið sér leið
í gegnum veginn og runnið þar í
þrjár vikur, eða allt þar til grafa var
fengin til að hreinsa árfarveginn
undir brúnni.
mm/ Ljósm. gó.
Hótar að henda
Sögu Akraness
AKRANES: Sveinn Andri
Sveinsson lögfræðingur er
skiptastjóri fyrir þrotabú bókaút-
gáfunnar Uppheima. Meðal rita
sem útgáfan hafði á sinni könnu
var Saga Akraness I og II. RUV
greindi frá því í gær að um 250
til 300 bindi af Sögu Akraness
séu meðal eigna í þrotabúinu og
var Akraneskaupstað boðið upp-
lagið til kaups fyrir eina milljón
króna. Bæjarráð Akraneskaup-
staðar ákvað að bjóða þrotabúinu
500 þúsund krónur fyrir bækurn-
ar. Þeirri upphæð vill skiptastjóri
ekki una og samkvæmt ummæl-
um á RUV.is kveðst hann frekar
aka með upplagið á haugana, en
selja Akraneskaupstað það fyrir
hálfa milljón. Í fréttinni er jafn-
framt haft eftir Ólafi Adolfssyni
formanni bæjarráðs að bæjar-
félagið ætli ekki að bjóða betur.
Hann telji hins vegar undarlegt
ef skiptastjóri ætli að setja þessi
bindi á haugana þegar honum
standi til boða að fá hálfa millj-
ón fyrir þau. „Akraneskaupstað-
ur hefur engin sérstök not fyrir
þetta. Þetta er veglegt ritverk og
sómi á hverju heimili en Akra-
neskaupstaður er ekki í ábyrgð,“
sagði Ólafur við RUV.is
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
6. - 12. febrúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 4 bátar.
Heildarlöndun: 34.859 kg.
Mestur afli: Akraberg ÓF:
17.238 kg í þremur löndunum.
Arnarstapi 5 bátar.
Heildarlöndun: 127.293 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 71.011
kg í átta löndunum.
Grundarfjörður 9 bátar.
Heildarlöndun: 240.964 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.024 kg í einum róðri.
Ólafsvík 18 bátar.
Heildarlöndun: 682.298 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
112.709 kg í fimm löndunum.
Rif 18 bátar.
Heildarlöndun: 868.230 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
130.328 kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur 7 bátar.
Heildarlöndun: 162.501 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
105.498 kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Örvar SH - RIF:
88.026 kg. 10. febrúar.
2. Tjaldur SH - RIF:
81.394 kg. 11. febrúar
3. Hringur SH - GRU:
66.024 kg. 9. febrúar.
4. Rifsnes SH - RIF:
60.083 kg. 9. febrúar.
5. Tjaldur SH - RIF:
48.934 kg. 6. febrúar.
Verslunar- og
þjónustusvæði
skipulagt
ARNARSTAPI: Bæjarstjórn
Snæfellsbæjar samþykkti ný-
verið á fundi að auglýsa deili-
skipulagstillögu fyrir verslun-
ar- og þjónustusvæði á Arn-
arstapa. Tillagan felur í sér
að ganga frá deiliskipulagi
sex verslunar- og þjónustu-
lóða. Annars vegar er um að
ræða þrjár litlar lóðir austar-
lega á deiliskipulagssvæðinu,
sem hugsaðar eru fyrir veit-
ingasölu og verslun, en hins
vegar þrjár enn minni lóð-
ir vestast á svæðinu þar sem
koma má fyrir söluvögn-
um á stöðuleyfi yfir sumar-
mánuðina. „Það er ásókn í
að vera með lausa söluvagna
til að selja vörur og þjónustu
en eins hafa komið upp fyrir-
spurnir um hvort hægt sé að
setja upp litla veitingastaði.
Við ákváðum þá til að hafa
eitthvað skipulag á þessu öllu
saman að leyfa slíka starfsemi
meðfram Arnarbraut. Þann-
ig að ef fyrirspurn verður, þá
getum við vísað á þetta svæði
og veitt leyfi fyrir litlum sölu-
vögnum og veitingahúsum,“
segir Kristinn Jónasson bæj-
arstjóri í Snæfellsbæ í sam-
tali við Skessuhorn. Ferða-
mönnum hefur fjölgað um-
talsvert á undanförnum mán-
uðum á Snæfellsnesi og seg-
ir Kristinn að nú sé komin
upp þörf fyrir aukið framboð
verslunar og þjónustu á svæð-
inu. „Nú þegar er ferðaþjón-
usta á Arnarstapa yfir sumar-
tímann en þetta er svo mikill
fjöldi fólks sem kemur hing-
að á hverju ári að það vant-
ar meiri þjónustu á svæðið og
við höfum orðið vör við það
að fyrirspurnum hefur fjölg-
að. Fólk er að athuga hvar og
hvort það geti sett upp þjón-
ustu líkt og þessa litlu sölu-
vagna,“ segir hann. Krist-
inn segir lóðirnar allar vera
litlar og eingöngu duga fyrir
lítil hús. „Þetta er eingöngu
hugsað fyrir litla veitinga-
staði eða litlar verslanir. Við
hugsum þetta sem þyrpingu
sem myndi falla vel inn í um-
hverfið og spilli ekki upplif-
un þeirra sem koma á Arnar-
stapa. Það skiptir miklu máli,“
segir Kristinn að endingu.
-grþ
Samfylkingin
boðar til lands-
fundar í vor
LANDIÐ: Framkvæmda-
stjórn Samfylkingarinnar
samþykkti í síðustu viku ein-
róma að boða til landsfund-
ar 4. júní næstkomandi. Í
tengslum við fundinn fer fram
allsherjaratkvæðagreiðsla um
embætti formanns meðal
allra flokksmanna, komi fram
ósk um það í samræmi við lög
flokksins, en Samfylkingin
er eini stjórnmálaflokkurinn
á Íslandi sem velur formann
með beinni þátttöku allra
félaga. Framkvæmdastjórn
ákvað einnig að næsti reglu-
legi landsfundur yrði haldinn
10.-11. mars 2017, 6 vikum
fyrir alþingiskosningar.
–mm
Dagana 10. og 11. febrúar stóðu
yfir svokallaðir Sólardagar í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga. Þá var
hefðbundið skólastarf brotið upp
og gafst nemendum kostur á að
sækja óhefðbundin námskeið þessa
tvo daga. Meðal annars komu tveir
þjálfarar frá Mjölni og kenndu
nemendum grunnatriði í MMA
bardagalistum. Þá gafst þeim kost-
ur á að stunda svokallað Pole fitness
og vakti það mikla athygli. Einnig
var Sævar Helgi Bragason formað-
ur Stjörnuskoðunarfélags Seltjarn-
arness með áhugaverðan fyrirlestur
um himingeiminn. Þá gafst nem-
endum kostur á pönnukökubakstri,
ljósmyndanámskeiði, póker, tölvu-
leikjaiðkun, yoga og mörgu fleira.
Sólardögum lauk svo með árshá-
tíð Nemendafélags Fjölbrautaskóla
Snæfellinga sem haldin var í Klifi
í Ólafsvík fimmtudagskvöldið 11.
febrúar.
tfk
Sólardagar
í FSN
Klakastífla í Grímsá á móts við Oddsstaði
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Reyk-
hólahrepps var fjallað um þann nið-
urskurð á póstdreifingu sem boðað-
ur hefur verið 1. mars næstkomandi
og var samþykkt að senda ráðherra
póstmála bréf þar sem gerð væri
grein fyrir sérstöðu Reykhólahrepps
hvað varðar fjarlægð frá pósthúsi.
Í bréfinu segir meðal annars að nú
verði pósti dreift annan hvern virkan
dag, sem er m.a.s. afturför frá árinu
2003 þegar póstdreifing var aðeins
þrjá virka daga í viku. Í frétt á vef
Reykhólahrepps segir að eftir um-
kvartanir við ráðuneytið, Póst- og
fjarskiptastofnun og Íslandspóst hafi
sveitarstjórn fengið svar frá forstjóra
Íslandspósts sem m.a sagði að eftir
sem áður muni Pósturinn halda uppi
daglegum flutningum um allt land
og því verði áfram hægt að afhenda
og nálgast sendingar alla virka daga
á næsta póstafgreiðslustað.
Reykhólahreppur er meðal þeirra
sveitarfélaga þar sem búið er að
loka póstafgreiðslu og verða íbúar
að fara í Búðardal til að sækja póst
á næsta afgreiðslustað. Frá þéttbýl-
inu á Reykhólum til Búðardals eru
75 kílómetrar og um fjallveg að fara.
„Ef þetta er borið saman við aðra
þéttbýlisstaði með 100 íbúa og fleiri
þar sem þessi þjónustuskerðing hef-
ur verið ákveðin, þá er vegalengd-
in sem íbúar þéttbýlisins á Reykhól-
um þurfa fara meira en þrefalt lengri
en meðaltalið er hjá hinum og nærri
80% lengri en hjá íbúum þess þétt-
býliskjarna af þeirri stærð þar sem
næstlengstan veg þarf að fara,“ seg-
ir í bréfi sveitarstjórnar til ráðherra.
Í því er skorað á ráðherra að endur-
skoða ákvörðun sína í þessu máli,
„en koma ella á fót sértækri póst-
þjónustu sem myndi gera íbúum og
fyrirtækjum kleift að hafast hér við
án þess að vera mismunað vegna
fjarlægðar“.
mm
Ráðherra ritað bréf vegna
skerðingar á póstþjónustu