Skessuhorn - 17.02.2016, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016 11
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Kjósarveitna ehf.
Ásgarði í Kjós, kl. 11.00 þriðjudaginn 8. mars 2016.
Sími 453-5050, netfang thorvaldur@stodehf.is
Útboð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Kjósarveitur ehf. óska eftir tilboðum í vinnu við hitaveitulagnir
sem leggja á frá borholum við Möðruvelli að bæjum og
frístundahúsasvæðum í Kjós á árunum 2016 og 2017
Úboðið nefnist:
Kjósarveitur hitaveita 2016-2017 - Vinnuútboð
Útboðið skiptist í þrjá sjálfstæða verkhluta og er heimilt að skila inn tilboði í einn eða
fleiri hluta þess.
Lögn stofnlagna úr stáli frá borholum við Möðruvelli
Stálpípur DN 25 – DN 50 5,2 km
Stálpípur DN 65 – DN 80 12,4 km
Stálpípur DN 100 – DN 125 17,0 km
Stálpípur DN 150 – DN 200 7,7 km
Ídráttarrör gagnaveitu 45 km
Lögn dreifikerfa á frístundahúsasvæðum
Stálpípur DN 40 – DN 65 2,1 km
PEX 20/77 – 32/77 21,7 km
PEX 40/90 2,0 km
PEX 50/110 3,6 km
PEX 63/125 2,7 km
Ídráttarrör gagnaveitu 135 km
Lögn dreifikerfis utan frístundahúsasvæða
PEX 20/77 – 32/77 28,9 km
PEX 40/110 7,1 km
PEX 50/125 4,5 km
PEX 63/140 2,7 km
Ídráttarrör gagnaveitu 88 km
Öllum verkhlutum skal að fullu lokið fyrir 1. desember 2017.
Útboðsgögn verða seld á kr. 10.000 hjá Stoð ehf. verkfræðistofu Aðalgötu 21 Sauðárkróki
frá og með miðvikudeginum 17. febrúar 2016.
Kjósarveitur ehf.
Húsnæði útibús Lyfju í Hyrnutorgi
í Borgarnesi hefur verið endurinn-
réttað og fengið gagngera andlits-
lyftingu. Það hafði verið óbreytt
allt frá aldamótum þegar Hyrnu-
torg var opnað. Húsnæðið hefur
nú verið málað, endurskipulagt og
endurnýjaðar allar innréttingar. Þá
voru filmur fjarlægðar úr gluggum
þannig að nú er mun bjartara yfir.
Starfsfólkið var að vonum ánægt
með breytingarnar þegar blaða-
maður leit við í síðustu viku. Í til-
efni þessa voru ýmis tilboð á vörum
í apótekinu.
mm
Nýjar innréttingar og
birtir yfir í Lyfju
Í Lyfju í Borgarnesi. F.v. Ingibjörg Marteinsdóttir, Smári Björgvinsson og Elsa Þor-
grímsdóttir.
Freyjukórinn í Borgarfirði hvetur
allar syngjandi konur á Vesturlandi
og víðar til að taka þátt í söngbúð-
um sem fyrirhugaðar eru. „Öllum
syngjandi konum á Vesturlandi og
víðar stendur til boða að taka þátt í
söngbúðum með djasssöngkonunni
Kristjönu Stefánsdóttur. Söngbúð-
irnar verða haldnar í Hjálmakletti í
Borgarnesi helgina 12. til 13. mars
næstkomandi og stendur skrán-
ing nú yfir,“ segir í tilkynningu frá
kórnum. Þátttakendur munu læra
og æfa söng undir stjórn Krist-
jönu Stefánsdóttur og Zsuzsönu
Budai kórstjórnanda Freyjukórs-
ins. „Undirbúningur er í hámarki
en stjórn Syngjandi kvenna annast
undirbúning. Freyjukórinn stofn-
aði fyrst til þessa atburðar í mars
árið 2012. Strax á fyrsta ári var
þátttaka mjög góð og konur úr öll-
um áttum streymdu að. Allt bend-
ir til þess að þátttaka verði einnig
mjög góð í ár.“
Markmiðið með söngbúðun-
um er að efla sönggleði, þjálfa og
hvetja konur til þátttöku í söng-
starfi. Söngbúðirnar eru opnar öll-
um konum; ungum og öldnum,
sem áhuga hafa á söng. Það er ekki
skilyrði að hafa tekið þátt í kóra-
starfi. Meðal laga sem æfð verða að
þessu sinni eru: Perfect – Fairgro-
und Attraction, The tide is high,
Stairway to heaven, Boy from New
York City, Rolling in the deep, Ir-
ish blessing, Líttu sérhvert sólar-
lag, Eitthvað undarlegt, Hudson
bay, Umvafinn englum og fleiri.
„Mikil samstaða og gleði hef-
ur skapast milli þátttakenda og
krafturinn engu líkur. Hvetjum
við konur til að taka þátt og skrá
sig sem fyrst á vefnum: vefurinn.
is/freyjur. Einnig er hægt að senda
beiðni um frekari upplýsingar í
netfangið syngjandikonur@gma-
il.com. Söngbúðirnar enda með
tónleikum í Hjálmakletti í Borgar-
nesi. Þær konur sem geta fara síð-
an á flakk með hópnum og syngja í
Grundarfirði miðvikudagskvöldið
16. mars og til Hólmavíkur laug-
ardaginn 19. mars.
mm
Krafturinn engu
líkur í söngbúðum
syngjandi kvenna
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Ryk- og
gasgrímur
Hjá Dynjanda færðu ryk- og gasgrímur
sem uppfylla ströngustu kröfur.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Hafðu samband.