Skessuhorn - 17.02.2016, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 201612
Ung hjón á Akranesi hafa höfðað
mál fyrir Héraðsdómi Vesturlands
gegn fyrri eigendum fasteignar sem
þau keyptu undir lok árs 2014. Um
er að ræða fasteign sem stendur við
Vesturgötu og er í nágrenni fisk-
þurrkunarverksmiðjunnar Lauga-
fisks. Ellen Óttarsdóttir og Pétur
Eyþórsson telja leyndan galla hafa
verið á fasteigninni vegna skorts á
upplýsingum um mikla ólykt sem
stafar frá Laugafiski, þegar kaup-
in fóru fram. „Við erum ekki sátt
við að hafa ekkert fengið að vita
hvers eðlis þetta er, þetta er það
stór galli að við hefðum átt að fá
að vita af þessu. Okkur finnst þetta
vera forsendubrestur, við hefðum
ekki gert kauptilboð ef við hefð-
um vitað af þessu,“ segir Ellen í
samtali við Skessuhorn. Hún seg-
ir lyktina óbærilega í ríkjandi vind-
átt. „Þetta er eitthvað sem við vilj-
um ekki sætta okkur við og okkur
langar ekki að venjast þessari lykt.“
Hún segir þau hafa reynt að komast
að samkomulagi við fyrri eigend-
ur fasteignarinnar en án árangurs.
„Við komumst ekki upp með ann-
að en að fara dómstólaleiðina. Þetta
er eini kosturinn í stöðunni að okk-
ar mati.“
Ekki vongóð um að
lyktin minnki
Laugafiskur er í eigu HB Granda
sem hefur hug á því að stækka fisk-
þurrkunarverksmiðjuna á næstu
misserum. Akraneskaupstaður
auglýsti nýverið breytingu á deili-
skipulagi vegna stækkunarinnar.
Ef af stækkuninni verður gerir HB
Grandi ráð fyrir því að afköst fisk-
þurrkunarinnar fari úr 170 tonn-
um á viku í 250 - 300 tonn eftir
byggingu fyrsta áfanga en áform-
að er að verksmiðjan verði stækk-
uð í tveimur áföngum. Við bygg-
ingu annars áfanga muni afköstin
aukast um 300 - 350 tonn á viku.
Tillögunni fylgir umhverfisskýrsla
þar sem gerð er grein fyrir áhrif-
um starfseminnar, aðgerðum til að
lágmarka neikvæð áhrif á nágrenn-
ið og hvernig áhrifin verði mæld.
Þá er samantekin niðurstaða skýrsl-
unnar að bætt húsnæði og búnað-
ur muni draga verulega úr lyktar-
mengun í nærumhverfi starfsem-
innar þrátt fyrir aukna afkastagetu.
Fram kemur í deiliskipulagstillög-
unni að óheimilt sé að veita bygg-
ingarleyfi fyrir öðrum áfanga nema
tekist hafi að tryggja að umhverf-
isáhrif vegna fyrsta áfanga verði
fullnægjandi. Að sögn Ellenar eru
þau Pétur ekki vongóð um að lykt-
in lagist ef af stækkun verksmiðj-
unnar verður. „Ég hef enga trú
á því, ekki miðað við hvernig fór
með fiskþurrkunina í Þorlákshöfn.
Ég hef ekki trú á því að Lýsi sé að
flytja sína verksmiðju í Þorlákshöfn
út fyrir íbúðabyggð ef það er til
mengunarbúnaður sem virkar fyrir
þetta. Þeir hafa nú þegar eytt tug-
um milljóna í hreinsibúnað og ekki
hefur gengið að losna við lyktina,“
segir Ellen alvarleg.
Geta ekki opnað glugga
Hjónin eiga þrjú börn á grunn-
skólaaldri og segir Ellen börnin
ekki vilja leika sér úti þegar lykt-
in er sem verst. Þá sé ekki hægt að
opna glugga, hengja út þvott eða
njóta útiveru. „Við eyddum sum-
arfríinu okkar í að flýja heimilið
okkar, að flýja lyktina,“ segir Ell-
en. Fjölskyldan er að öðru leyti
ánægð á Akranesi og hún segir þau
í raun ekki langa til að flytja úr bæj-
arfélaginu. „Við erum ánægð með
allt annað hérna. Við erum ánægð
með skólann og ánægð með hús-
ið sem slíkt. En þetta er það stór
galli að við erum ekki tilbúin að
sætta okkur við hann.“ Hjónin vilja
því láta rifta kaupsamningnum um
húsið. Dómskvaddur matsmaður
mun meta áhrif ólyktarinnar í mál-
inu. „Meðal þess sem liggur fyrir
er skýrsla VSÓ ráðgjafar um lykt-
armengunina á svæðinu og íbúa-
greinar sem birst hafa í blöðum.
Dómskvaddur matsmaður mun
svara spurningum varðandi það
hvaða áhrif þetta hefur á verðmæti
fasteignarinnar. Ákvörðum bæjar-
ráðs hefur engin áhrif á það.“ Hún
segir þau upphaflega hafa hugsað
sér að flytja ofar í bæinn, þar sem
lyktarinnar gætir ekki. „En það er
sama hvort við vinnum eða töp-
um þessu máli, ef þessi verksmiðja
verður að veruleika þá erum við
farin héðan.“
grþ
Höfða mál gegn
fyrri eigendum húss
Umrædd fasteign er fallegt einbýlishús sem stendur við Vesturgötu á Akranesi.
Ellen Óttarsdóttir.
Á morgun, fimmtudaginn 18.
febrúar, verður mikið um dýrð-
ir í Frystiklefanum í Rifi á Snæ-
fellsnesi. Þá verður Eyrarrósin
2016 afhent þar vinningshöfum úr
höndum Dorritar Moussaieff for-
setafrúr. Þrjú verkefni hafa hlotið
tilefningar í ár en það eru Menn-
ingar- og fræðslusetrið Eldheimar
í Vestmannaeyjum, alþjóðlega
listahátíðin Ferskir vindar sem
fram fer í Garði og Verksmiðj-
an á Hjalteyri, sem er listamið-
stöð með sýningarsali og gesta-
vinnustofur í gamalli síldarverk-
smiðju Kveldúlfs við Eyjafjörð. Að
auki eru svo sjö önnur menning-
arverkefni á lista Eyrarrósarinnar.
Meðal þeirra eru kvikmyndahátíð-
in Northern Wave sem haldin er
árlega í Grundarfirði. Í fyrra var
það Frystiklefinn í Rifi sem hlaut
þessi eftirsóttu verðlaun og því fer
afhending verðlaunanna í ár fram
einmitt þar.
„Forsetahjónin hafa boðað
komu sína og það verður mikill
heiður að fá þau í heimsókn. Þau
hafa ekki komið hingað fyrr. Dor-
rit afhendir verðlaunin við hátíð-
lega athöfn sem hefst klukkan 13
þar sem verða viðstaddir fullrú-
ar allra þeirra menningarverkefna
sem eru tilnefnd. Annars mun ég
kynna starfsemi Frystiklefans fyr-
ir öllum þeim sem koma hingað
þennan dag,“ segir Kári Viðars-
son leikari og eigandi Frystiklef-
ans í Rifi.
Þessa dagana er unnið að endur-
bótum á Frystiklefanum sem auk
þess að vera leikhús og listasmiðja
er einnig gistiheimili fyrir ferða-
menn. Þessa dagana er Mekk-
ín McPower listakona að mála og
myndskreyta öll herbergin að inn-
an. „Það væri gaman að fá hana til
að mála mynd af forsetahjónunum
á vegg hérna inni og fá þau síðan
til að árita hana,“ segir Kári sposk-
ur á svip.
Annasamt leikár
framundan
Þegar blaðamaður Skessuhorns hitti
Kára í liðinni viku var hann að búa
sig undir heimsókn þýskra ferða-
blaðamanna sem voru á ferð að
kynna sér Vesturland sem ferða-
þjónustusvæði. „Við verðum með
dagskrá fyrir þau og eitthvað grín.
Annars er allt að fara af stað með
hækkandi sól. Það verða nokkr-
ir viðburðir hjá okkur núna reglu-
lega fram að sumri. Þann 25. febrú-
ar verður Björn Thoroddsen gítar-
leikari hér með tónleika. Svo kem-
ur hljómsveitin Valdimar hingað.
Við erum síðan að skoða að gera
eitthvað sniðugt um páskana,“ seg-
ir Kári. Sumarið verður síðan ann-
asamt í Frystiklefanum. „Við verð-
um með fimm leiksýningar í gangi
yfir 12 vikna tímabili. Þannig verð-
ur 2016 mikið leikár hjá okkur. Hér
verða fjórir leikarar á samning, þetta
verður næstum eins og hjá stofn-
analeikhúsunum í Reykjavík. Með-
al annars ætlum við að sýna leik-
ritið Mar sem fékk feikigóðar við-
tökur á síðasta ári, en í þetta sinn á
ensku. Freydís Bjarnadóttir lék í því
á móti mér en vegna anna hjá henni
þá verður önnur leikkona í hennar
stað í þessari uppfærslu. Svo er ég
að skrifa tvö verk sem verða sýnd.
Þetta fer allt í gang í júní. Það
verður nóg að gera,“ segir Kári.
mþh
Forsetahjónin heimsækja Frystiklefann í Rifi
Kári Viðarsson í vetrarumhverfi við Frystiklefann í síðustu viku.
Gistiherbergin í Frystiklefanum hafa verið tekin í gegn í vetur og myndskreytt
skemmtilega af lisatkonunni Mekkín McPower. Hér sést eitt þeirra sem málað er í
litum ljósaskiptanna.
Að óbreyttu er útlit fyrir að ekki
verði tekið við neinni loðnu til
vinnslu á Akranesi á þessari vertíð.
Miðað við vertíðina í fyrra tapast
þannig um 15 heilsársstörf. Loðnu-
leit hefur litlu skilað og er kvóti ís-
lensku skipanna einungis um 100
þúsund tonn á vertíðinni. Af þeim
kvóta eru veiðiheimildir skipa HB
Granda 18 þúsund tonn og verður
öllum þeim afla að óbreyttu landað
á Vopnafirði. Vilhjálmur Vilhjálms-
son forstjóri HB Granda segist í
samtali við Skessuhorn ekki vera
bjartsýnn á að kvótinn verði auk-
inn verulega. Hann kveðst þó enn
lifa í voninni, eða á meðan skip
Hafrannsóknastofnunar eru enn
við loðnuleit. „Við vonuðumst í
fyrstu eftir að geta hafið loðnuveið-
ar í byrjun janúar en ungloðnumæl-
ingar höfðu vakið von um svo gæti
orðið. Mælingar í haust og það sem
af er þessu ári hafa hins vegar oll-
ið miklum vonbrigðum og er ljóst
að ekki verður um loðnuvertíð sem
stendur undir nafni úr þessu,“ segir
Vilhjálmur.
Hann segir að loðnuvertíðin
nú hefjist því á mjög litlum kvóta.
Þá bæti ekki stöðuna að rússnesk-
ur markaður fyrir heilfrysta loðnu
og loðnuhrogn er lokaður. „Sala á
loðnuafurðum til Rússlands hefur
lyft verðmætum á loðnuvertíðinni
mjög á undanförnum árum. Verð
á fiskimjöli og lýsi er hins vegar
hátt nú um stundir. Það gæti veg-
ið upp tapið en er líklega skamm-
góður vermir því loðnukvótinn er
svo lítill.“
Á síðustu loðnuvertíð var tek-
ið á móti um 27 þúsund tonnum
af loðnu á Akranesi og unnin úr
þeim um 3.000 tonn af hrognum.
Hrognafrysting hófst 24. febrú-
ar og stóð í einn mánuð. Þá komu
hátt í tvö hundruð manns að vinnsl-
unni þennan mánuð en það sam-
svarar um 15 ársstörfum eða stöðu
ígildum. Um helmingur vinnunn-
ar var unninn í verktöku aðallega af
bændum í Dölum sem fengið hafa
vinnu við loðnufrystingu og um
verulega búbót að ræða fyrir þá sem
og alla aðra sem að vertíðinni hafa
komið. Bændur og fleiri hafa mætt
til vinnslunnar ár eftir ár og veru-
lega hefur munað um þær tekjur
sem þessi uppgrip hafa gefið.
Vilhjálmur Vilhjálmsson seg-
ir að um 65 fastráðnir starfsmenn
séu í uppjávarvinnslunni á Vopna-
firði. Síðast var þar unnið úr síld í
nóvember og vofði mikið atvinnu-
leysi yfir á þeim slóðum yrði ekkert
að gert. Stjórn HB Granda ákvað
því á fundi nýverið að byggja upp
bolfisksvinnslu á Vopnafirði sem
tæki til starfa strax í haust. „Komi
ekki til frysting á loðnu á Vopna-
firði verður næsta verkefni vænt-
anlega vinnsla úr síld og makríl í
júlí. Útgefinn loðnukvóti stendur
ekki undir vinnslu á tveimur stöð-
um, þ.e. á Akranesi og Vopnafirði.
Við stefnum á að frysta lámarks-
magn af loðnu fyrir viðskiptavini
okkar í Kasakstan, Japan, Úkraínu
og Hvíta Rússlandi,“ segir Vil-
hjálmur.
mm
Líklega engin loðnuvinnsla
á Akranesi á þessari vertíð
Frysting á loðnu á Akranesi. Ljósm. úr safni.