Skessuhorn - 17.02.2016, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 201614
Eins og Skessuhorn hefur áður
greint frá munu tökur á amerísku
stórmyndinni Fast 8, sem er fram-
hald af Fast and the Furious mynd-
unum, að stórum hluta fara fram
á Akranesi á vormánuðum. Um-
gjörðin er Sementsreiturinn og
byggingar aflagðrar verksmiðjunn-
ar, bryggjusvæði Akraneshafnar og
nágrenni Krókalóns.
Akstur hvers kyns sportbíla er
fyrirferðarmikill þáttur mynd-
anna, eins og aðdáendur þeirra
þekkja og búast má við að um 80
bílar verði fluttir til landsins fyr-
ir tökur á myndinni. Meðfylgjandi
myndir tók Ben Van Devetner ná-
lægt svæði Eimskipafélagsins í al-
þjóðahöfninni í Portland í Maine-
fylki í Bandaríkjunum í gær. Á þeim
má sjá sportbíla sem hann fullyrðir
að séu á leið til Íslands þar sem þeir
verði notaðir við tökur á Fast 8.
Ekki er vitað hvenær bílarnir eru
væntanlegir til landsins en þeir eiga
fyrir höndum um 3.800 km ferða-
lag yfir Atlantshafið áður en þeim
verður hægt að aka um götur Akra-
nesbæjar.
kgk
Fast and the Furious
bílarnir að leggja úr höfn
Bílarnir eru af öllum stærðum og gerðum.
Þrír eins trukkar. Ætli einn eða fleiri verði sprengdir í loft upp við tökur á myndinni á Akranesi í vor? Lamborghini bíður þess að sækja Akranesbæ heim.
Sundfélag Akraness í samvinnu við
ÍA stendur fyrir svokölluðu Sam-
floti öll miðvikudagskvöld í Bjarna-
laug á Akranesi. Flotið er hugsað
til að upplifa vellíðan í vatni, losa
um streitu og eiga nærandi stund í
kyrrð. Sérhannaður búnaður sem
kallast „Float“ eftir Unni Valdísi
Kristjánsdóttur veitir líkamanum
flotstuðning í vatninu en flotbúnað-
urinn var að hluta til verkefni henn-
ar við Listaháskóla Íslands. Hildur
Karen Aðalsteinsdóttir kennari og
sundþjálfari er sú sem heldur utan
um Samflotið á Akranesi ásamt þeim
Ingibjörgu Finnbogadóttur og Ernu
Haraldsdóttur. Hildur Karen segist
upphaflega hafa séð búnaðinn á net-
inu og í framhaldinu setti hún sig í
samband við Unni Valdísi síðastlið-
ið haust. „Hún kom svo til okkar í
janúar og hélt kynningu. Í millitíð-
inni höfðu bæði Ingibjörg og Erna
haft samband við Unni og hún benti
þeim á að heyra í mér. Þær gerðu
það og við ákváðum í framhaldinu
að fara að vinna í þessu saman,“ seg-
ir Hildur Karen.
Allir geta tekið þátt
Þó að samflotið sé að stíga sín fyrstu
skref á Akranesi er það ekki alveg
nýtt af nálinni í Reykjavík. „Þetta er
þriðja árið sem boðið er upp á þetta
í nokkrum laugum í bænum og hef-
ur verið að breiðast út á landsbyggð-
inni, til dæmis á Flúðum, Akur-
eyri og á Kleppjárnsreykjum,“ seg-
ir Hildur Karen. Hún segir búnað-
inn upphaflega hafa verið hugsað-
an til notkunar fyrir einstaklinga en
fljótlega hafi þetta þróast út í að fólk
færi saman og því hafi verið efnt til
hópatíma í floti. „Það kom í ljós að
það var ekki nóg að græjurnar væru
til heldur þurfti að skapa vettvang
fyrir fólk til að koma saman og njóta
fljótandi slökunar. Við erum svo
miklar félagsverur. Þess vegna fór
hönnuðurinn í samstarf við sund-
laugar um að halda þessa reglulegu
vatnsslökunartíma, eins og Sam-
flot, þar sem fólk getur komið sam-
an í kyrrð og á afmörkuðu svæði til
að fljóta.“ Hún segir alla geta tek-
ið þátt, óháð aldri og kyni. Ekki þarf
að eiga flotsett til að geta verið með.
„ÍA ákvað að styrkja verkefnið með
kaupum á tíu settum svo við gætum
byrjað og við getum lánað þau. En
við erum einnig að selja settin ef fólk
vill eignast sín eigin. Þau eru einmitt
á kynningarverði hjá okkur út febrú-
ar,“ segir Hildur Karen.
Róandi tónlist
og kertaljós
Búnaðurinn sjálfur er hannaður fyr-
ir þá sem sækja í nærandi slökun og
ró í þyngdarleysi vatnsins. Samflotið
er því hugsað sem kyrrðarstund og
andrúmsloftið í lauginni er eftir því.
Kyrrð er í sundlauginni, kertaljós og
róandi tónlist. Hildur Karen segir
fólk ná góðri slökun í hlýju vatninu.
„Það er eitthvað sem gerist ofan í
lauginni, vatnið hefur róandi og góð
áhrif á mann. Það er eins og mað-
ur sé þyngdarlaus, í „lausu lofti“ og
álag á hrygginn er alveg í lágmarki.
Það er eins og að vera okkar í vatn-
inu dragi úr streitu,“ útskýrir Hildur
Karen. Hún segir móttökurnar við
Samflotinu hafa farið fram úr björt-
ustu vonum. „Við ætluðum upphaf-
lega að vera með þetta annan hvern
miðvikudag en móttökurnar voru
alveg frábærar. Við bættum því við
tímum og erum núna alla miðviku-
daga og erum með aukatíma á föstu-
dögum ef áhugi og þátttaka er fyrir
hendi. Hver tími kostar 500 krónur
og er 60 mínútna langur en fólk nýt-
ir um 30 - 50 mínútur í að fljóta.“
Takmörkuðum fjölda er hleypt ofan
í laugina í hverjum tíma svo að allir
fái gott pláss í lauginni. Hægt er að
skrá sig í tímana með viku fyrirvara.
Nánari upplýsingar um Samflot-
ið má finna á Facebook undir Sam-
flot Akranes eða með því að hafa
samband við Hildi Karen í síma
867-5602 eða með tölvupósti: hild-
urkaren@sundfelag.com.
grþ
Losa um streitu með því að láta sig fljóta í vatni
Hér má sjá hvernig Float búnaðurinn virkar. Hægt er að nota búnaðinn jafnt inni
sem úti.