Skessuhorn - 17.02.2016, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016 15
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Auglýsing um lýsingu deiliskipulags að
Laugum í Sælingsdal, Dalabyggð
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. desember að auglýsa lýsingu á
nýrri deiliskipulagstillögu skv. 40. gr . skipulagslaga nr. 123/2010.
Lýsing deiliskiplagstillögu felur í sér eftirfarandi:
Laugar í Sælingsdal er fornfrægur sögustaður sem hefur upp á að bjóða fjölbreytt nátturfar og lands-
lag til náttúruskoðunar og útivistar. Jarðhiti er nýttur á svæðinu til húshitunar og til heilsuræktar.
Helstu markmið með gerð deiliskipulags fyrir svæðið er að
efla Laugasvæðið sem almennan ferðamannastað, með því að skapa möguleika á aukinni
starfsemi og uppbyggingu á svæðinu
skapa möguleika á áhugaverðri frístundarbyggð sem fellur sem best að umhverfinu
valda sem allra minnstri röskun á náttúrulegu umhverfi
skapa sem besta aðstöðu til almennrar útivistar og náttúruskoðunar
auka fjölbreytileika á svæðinu, bæði í þjónustu og umhverfi
Skilgreint er á deiliskipulaginu allt að 16 frístundarlóðir sem geta verið allt að 1 ha að stærð og
einnig fleiri lóðir á Laugum utan um núverandi starfsemi, auk þess sem gert verður ráð fyrir aukinni
uppbyggingu á svæðinu, bæði ferðaþjónustu og íbúðarbyggingar.
Lýsingin er birt á heimasíðu Dalabyggðar (dalir.is), Skessuhorni og einnig á skrifstofu Dalabyggðar,
Miðbraut 11 í Búðardal. Upplýsingar eru einnig veittar hjá skipulagsfulltrúa Dalabyggðar á sama
stað.
Kynning á lýsingu deiliskipulagstillögunnar verður í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar, Miðbraut 11 í
Búðardal þriðjudaginn 23. febrúar nk. á milli kl. 10:00 og 14:00. Íbúar og hagsmunaðilar eru hvattir
til að mæta.
Ábendingum við lýsingu skal skila skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa, Miðbraut 11,
370 Búðardalur eða á netfangið bogi@dalir.is, eigi síðar en 10.mars 2016.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Dalabyggðar,
Bogi Kristinsson Magnusen
Fjölskyldufyrirtækið Snókur verk-
takar ehf. hefst á næstunni handa
við að byggja um þúsund fermetra
hús fyrir starfsemi sína á Grundar-
tangasvæðinu. Þar með festir Snók-
ur sig enn betur í sessi sem þjón-
ustu- og verktakafyrirtæki á iðnað-
ar- og hafnarsvæðinu við Hvalfjörð.
Snókur varð einnig hlutskarpastur
á dögunum í útboði Faxaflóahafna
um að sinna jarðvinnu við undir-
búning á u.þ.b. eins hektara lóð
sem Eimskip hefur fengið úthlutað
á Grundartanga. Áður hafði Snókur
einnig verði lægstur í útboði Faxa-
flóahafna um að gera klára lóðina
sem hafnirnar hafa úthlutað fyrir-
tækinu fyrir nýbyggingu þess.
Hafa sinnt marg-
breyttum verkefnum
Snókur verktakar ehf. var stofn-
að 2006 og er í eigu hjónanna Ein-
ars Péturs Harðarsonar og Rögnu
Bjargar Kristmundsdóttur sem
búa í Vogatungu í Hvalfjarðar-
sveit og sona þeirra Kristmundar
og Hrafns. Upphaflega byggir það
á starfsemi Einars. „Ég var um ára-
bil einyrki sem verktaki í jarðvinnu
og þess háttar auk þess sem ég rak
vörubíl og starfaði við Vörubíla-
stöðina á Akranesi. Þar hófst vinna
hjá mér við útskipun frá Járnblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga.
Síðan bættust við ýmsir flutningar
fyrir bændur svo sem áburðarflutn-
ingar, fóðurflutningar og flutning-
ar á fé til slátrunar á Laxá og síðar
á Selfossi. Með tímanum vatt þetta
svo upp á sig. Strákarnir byrjuðu
snemma að vinna með mér, Krist-
mundur sá um bókhaldið og Hrafn
var í akstrinum með mér og í við-
gerðum og því sem þurfti að leysa.
Þeir eru ólíkir bræðurnir og það
er að ég held þeirra stærsti kostur.
Hrafn er í verklegum viðfangsefn-
um á meðan Kristmundur sinnir
skrifstofunni. Við stofnuðum Snók
verktaka ehf. saman fyrir tíu árum
síðan og í dag erum við nær ein-
göngu í störfum á Grundartanga,“
segir Einar.
Hann er ættaður frá Lyngholti í
Leirársveit og keypti jörðina Voga-
tungu 1969 og titlar sig enn í dag
bónda. „Við erum enn í dag með
nokkrar kindur,“ segir hann. Að-
alstörfin í dag snúast hins vegar um
Snók verktaka þar sem Einar vinn-
ur með sonum sínum. Eftir að fjöl-
skyldan stofnaði Snók verktaka fyr-
ir tíu árum síðan beindist starfsem-
in að mestu að Grundartangasvæð-
inu enda stutt að fara frá Vogatungu
en jörðin er milli Laxár og Leir-
ár í gömlu Leirársveit. „Í grunninn
má segja að við höfum verið jarð-
verktakar en höfum þróast meira
í áttina að því að verða þjónustu-
fyrirtæki. Bæði er komið til okkar
og við beðnir um að leysa ákveð-
in verkefni en við höfum líka kom-
ið með tillögur til fyrirtækjanna um
að gera megi ákveðna hluti með
betri hætti. Síðan höfum við boð-
ið í nokkur verk svo sem í tengslum
við jarðvinnu og annað þar sem við
höfum tekið þátt í útboðum í sam-
keppni við aðra verktaka. Við höf-
um á þessum árum fyrst og fremst
unnið fyrir Elkem en einnig fyr-
ir Norðurál, Lífland og fleiri fyr-
irtæki á Grundartangasvæðinu.
Einnig höfum við starfað heilmikið
fyrir Faxaflóahafnir. Verkefnin eru
bæði föst en líka tilfallandi og fjöl-
breytt,“ segja þeir feðgar þar sem
við hittum þá í eldhúsinu heima í
Vogatungu.
Vinna við nýjar lóðir
Snókur hefur byggst upp jafnt
og þétt sem stoðgreinafyrirtæki á
Grundartangasvæðinu. Í dag eru 15
manns við störf í fyrirtækinu. „Við
gerum í dag út flota af vörubílum,
gröfur, hjólaskóflur, tæki til efnis-
vinnslu og fleira. Hluti af tækjaflot-
anum er á svæði Járnblendiverk-
smiðju Elkem en þar erum við með
þjónustusamning og sjáum um út-
skipun og aðra flutninga, snjó-
mokstur og fleira. Síðan erum við
með eigin verkstæði við Höfðasel
rétt innan við Akranes. Þar sinn-
um við nánast öllu viðhaldi á okk-
ar vélum. Við höfum rekið það síð-
an 2007. Lykillinn að því að svona
fyrirtæki gangi er að vera með gott
starfsfólk og við höfum verið afar
heppin með starfsmenn, bæði véla-
menn, bílstjóra og viðgerðamenn,“
segir Kristmundur Einarsson.
Hann hefur um árabil séð um rekst-
ur og fjármál fyrirtækisins en Hrafn
bróðir hans er menntaður vélvirki
og sinnir verklegum þáttum og er
viðhaldi í daglegum rekstri ásamt
föður þeirra bræðra.
Megin viðfangsefni fyrirtækisins
nú eru að sinna þjónustusamningn-
um við Járnblendiverksmiðju El-
kem auk þess að vinna við stór jarð-
vinnuverkefni fyrir Faxaflóahafnir
á Grundartanga. „Við sóttum um
lóð hjá Faxaflóahöfnum til að koma
fyrirtækinu nær kúnnunum okkar
og ætlum okkur að vaxa á Grund-
artanga. Jarðvinnan við hana var
boðin út og við vorum lægstir. Við
gerðum þá lóð klára nú í vetur. Síð-
an var boðið út verk við að ganga
frá lóð fyrir Eimskip og við feng-
um það verk. Við erum að undir-
búa okkur fyrir það og stefnum á
að byrja um mánaðamótin. Sú lóð
er um einn hektari að stærð og sú
fyrsta af þremur sem Eimskip fær
úthlutað hjá Faxaflóahöfnum. Hún
á að verða tilbúin í maí.“
Hafa mikla trú á framtíð
Grundartanga
Feðgarnir segja að í nógu verði að
snúast hjá Snóki verktökum á þessu
ári. „Við erum bjartsýn og höfum
fulla trú á framtíð Grundartanga-
svæðisins. Þetta svæði á eftir að
stækka mikið í framtíðinni og við
höfum fulla trú á því. Umræðan um
Grundartanga er oft og tíðum nei-
kvæð og þeir oftast háværastir sem
gagnrýna svæðið og starfsemina þar.
Það er synd því þarna er margt mjög
jákvætt að gerast,“ segir Kristmund-
ur.
Hrafn bróðir hans bætir við að
gerðar séu miklar kröfur til verktaka
sem vinna fyrir stóriðjufyrirtæki,
bæði hvað varðar öryggis-, heil-
brigðis- og umhverfismál, að notað-
ur sé réttur öryggisbúnaður og farið
eftir leikreglum á hverjum stað. „Við
höfum lagt mikla áherslu á þetta hjá
okkur og störfum eftir gæðakerfinu
ISO9001:2008 sem stefnt er á að
tekið verði út til vottunar á þessu ári.
Það er líka verið að gera margt gott
í umhverfismálum á svæðinu svo
sem í flokkun á úrgangi og endur-
vinnslu. Snókur er einnig í viðræð-
um við Kolvið um kolefnisjöfnun á
koltvísýringi vegna eldsneytisnotk-
unar allra bifreiða og vinnuvéla og
verða gróðursett tæplega 6.000 tré á
þessu ári,“ segir Hrafn.
Reisa nýjar aðalstöðvar
Samhliða því að sinna þjónustu-
samningi sem fyrirtækið hefur
við Elkem þá verður gengið frá
lóð Eimskipa auk þess sem hafist
verður handa við að reisa nýbygg-
ingu aðalstöðvar og þjónustumið-
stöðvar Snóks verktaka sem fyrr
var nefnd. Hún verður um þúsund
fermetra að gólffleti og að hluta til
á tveimur hæðum. Byggingu nýja
hússins á að ljúka fyrir næsta vet-
ur.
„Þarna ætlum við hafa góða að-
stöðu fyrir okkar starfsmenn en
það hefur okkur vantað lengi. Þeir
vinna jú að langstærstum hluta á
Grundartangasvæðinu eða í ná-
grenni þess. Þarna verður mötu-
neyti, búningsaðstaða, böð og ann-
að í samræmi við eðlilegar nútíma-
kröfur. Þarna verða líka skrifstofur
fyrirtækisins. Síðast en ekki síst
munum við flytja verkstæði okkar
frá Akranesi inn á Grundartanga.
Þar verður til að mynda hægt að fá
viðgerðir, olíuskipti, þvott og fleira
á bifreiðum, vélum og tækjum. Allt
mun þetta efla möguleika okkar til
að veita sem besta þjónustu fyr-
ir fyritækin á Grundartangasvæð-
inu,“ segja þeir feðgar.
mþh
Snókur verktakar ehf. styrkir grundvöll sinn á Grundartanga
Þeir feðgar Hrafn, Einar Pétur og Kristmundur heima í Vogatungu. Í bakgrunni má
greina tindinn Snók sem er hluti af Skarðsheiðarfjöllum og fyrirtæki þeirra heitir
eftir.
Lóðin þar sem Snókur verktakar ehf. hefst brátt handa við að reisa nýbyggingu
sína. Hún er við Leynisveg 6, á milli Elkem Ísland ehf. og Norðurál hf.
Eitt af þeim verkefnum sem Snókur sinnir á Grundartanga er
snjómokstur og hálkueyðing. Hér sést einn bíla Snóks.
Lóð Eimskipa verður á svæðinu næst á þessari mynd. Það er
vestast á hafnarsvæðinu þar sem gerður verður nýr viðlegu-
kantur fyrir skip. Fjær sést verksmiðja Líflands.