Skessuhorn - 17.02.2016, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016 19
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
HD 10/25-4 S
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Stjórn Menningarsjóðs
Borgarbyggðar auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er
sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla
á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verk-
efnatengdir.
Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir
verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok þarf að afhenda
sjóðsstjórn stutta skýrslu um nýtingu styrksins.
Hægt er að sækja um rafrænt. Úthlutunarreglur og
umsóknareyðublað má finna á vef Borgarbyggðar,
www.borgarbyggd.is
Umsóknir skulu berast til Kristjáns Gíslasonar, Ráðhúsi
Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, í síðasta lagi föstudaginn
4. mars 2016.
Ef umsækjandi óskar eftir að fá gögn endursend skal
hann taka það sérstaklega fram.
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar.
um fjárhagserfiðleika og vissulega
hafa þeir verið til staðar síðustu árin.
Þau félagslið sem nú taka þátt í Evr-
ópukeppnunum fá vaxandi fjárupp-
hæðir í gegnum keppnirnar og það
skekkir nokkuð samkeppnisstöðu
gagnvart öðrum félögum. Það er
kaldhæðnislegt að þó enn sé Akra-
nesliðið leikjahæst íslenskra knatt-
spyrnuliða frá upphafi hefur það lít-
ið að segja í dag. Vonandi breytist
það fljótt og við gerum okkur gild-
andi á þessum vettvangi að nýju.
Framtíðin er björt
Síðustu árin hafa verið nokkuð
brokkgeng hvað árangur snert-
ir. Það tók karlaliðið þrjú keppn-
istímabil að komast í úrsvalsdeild-
ina að nýju eins og fyrr er nefnt og
sú viðdvöl tók tvö tímabil og þá var
liðið komið á ný í 1. deild. Eftir árs-
dvöl þar lék liðið að nýju í úrvals-
deildinni og hélt þá sæti sínu árið
2015. Kvennaliðið var líka nokkuð
brothætt. Það vann sig að nýju í úr-
valsdeildina 2014 og féll að nýju að
ári liðnu en hefur á ný endurheimt
sætið. Yngri flokkunum hefur flest-
ur gengið vel og bjartsýni ríkir nú á
þessum tímamótum.
Óhætt er að fullyrða að fram-
tíð knattspyrnustarfsins á Akra-
nesi sé björt, félagsstarfið er öflugt
og knattspyrnufólkið stendur sig
vel. Á margan hátt er hægt að líkja
starfseminni í dag við það sem var
að gerast við stofnun Knattspyrnu-
félags ÍA 1986. Nú alveg eins og þá
þarf að huga að mannvirkjagerð og
vaxandi kröfur í þeim efnum kalla á
frekari uppbyggingu. Lið í úrvals-
deild á Íslandi þarf að standast al-
þjóðlegar kröfur á margan hátt og
af slíku þarf að huga bæði varðandi
rekstur félagsins og mannvirki. Von-
andi tekst það með góðu samstarfi
við Akraneskaupstað. Efnileg knatt-
spyrnufólk er til staðar nú eins og
þá og ef rétt er á málum haldið trúi
ég því að í hönd fari nýtt gullald-
artímabil. Öllum félögum í Knatt-
spyrnufélagi ÍA óska ég til hamingju
á merkum tímamótum.
Jón Gunnlaugsson.
Uppgangur er í kvennaknattspyrnunni á Akranesi um þessar mundir. ÍA tryggði sér í sumar Íslandsmeistaratitil 1. deildar og
sæti í deild þeirra bestu á nýjan leik eftir að hafa farið upp og aftur niður árin þar á undan. Ljósm. Guðmundur Bjarki Hall-
dórsson.
Árið 2001 háði ÍA harða baráttu við ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn. Úrslitin réðust ekki fyrr en þessi lið mættust jöfn að
stigum í lokaleik sumarsins í Vestmannaeyjum. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og Skagamenn urðu Íslandsmeistarar á betri
markatölu. Mynd: Ljósmyndasafn Akraness.
Norðurálsmótið fyrir 7. flokk drengja er orðinn fastur liður í starfi knattspyrnufélagsins. Er mótið fjölmennasta drengjamót
þessa aldursflokks sem haldið er á landinu.
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 23. feb. 2016
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
„Reyndu á flugi frelsi þitt“
Um líf og ljóð borgfirsku skáldkonunnar
Júlíönu Jónsdóttur (1838–1917)
Helga Kress prófessor flytur
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Júlíana, sem var fyrst íslenskra
kvenna til að gefa út ljóðabók,
var fædd á Búrfelli í Hálsasveit.
Hún var alla tíð fátæk vinnu-
kona, fyrst víða á Vesturlandi
og síðar í Vesturheimi.