Skessuhorn - 17.02.2016, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016 23
Skipulagsmál í Borgarbyggð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Lýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi
Borgarbyggðar 2010-2022
Svæði fyrir motocross í þéttbýli Borgarness.
Sveitarstjórn samþykkti 11. febrúar 2016 að auglýsa lýsingu
vegna breytingar á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 - 2022.
Tillagan er sett fram í greinargerð með uppdrætti dags.
28. janúar 2016 og felur breytingin í sér breytta landnotkun
4,8 ha svæðis úr athafnasvæði (A3) í íþróttasvæði (íþ2) og opið
svæði (o26).
Lýsingin verður auglýst frá 18. febrúar til og með
29. febrúar 2015, skv. 36. gr. skipulagslaga 123/2010.
Kynningarfundur verður haldin 24. febrúar 2016 í
Hjálmakletti í Borgarnesi kl. 20.00.
Nálgast má gögnin á heimasíðu Borgarbyggðar
www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, Borgarnesi frá og með 18. febrúar 2015.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila annað hvort í
Ráðhúsi Borgarbyggðar eða á netfangið lulu@borgarbyggd.is
ekki seinna en 29. febrúar 2016 og skulu þær vera skriflegar.
Dag ur í lífi...
Dagur í lífi veðurfræðings
Nafn: Theodór Freyr Hervars-
son.
Fjölskylduhagir/búseta: Gift-
ur Kristrúnu, eigum fjögur
börn, búum á Akranesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands.
Áhugamál: Flest allar íþróttir,
þá sérstaklega fótbolti og golf.
Tónlist í þyngri kantinum.
Föstudagurinn 12. febrúar
2016
Klukkan hvað vaknaðirðu
og hvað var það fyrsta sem
þú gerðir? Vaknaði kl. 05:55,
snögg sturta og annað nauðsyn-
legt til að koma manni í gang.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Kellogs morgunkorn.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Lagði af stað kl. 06:20,
40 mínútna akstur á vinnustað
sem er Veðurstofa Íslands á Bú-
staðavegi í Reykjavík. Vaktin
hófst kl. 07:00.
Fyrstu verk í vinnunni: Sam-
ráð flugvaktar (sem ég var að
sinna þennan daginn), dagvakt-
ar og næturvaktar. Hvað er að
gerast í veðrinu, eitthvað sem
þarf að huga sérstaklega að þeg-
ar líður á daginn? Þarf að gefa
út viðvaranir og/eða fréttatil-
kynningar? Engin þörf á slíku
þennan daginn, frekar rólegt í
kortunum.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Klukkan tíu var ég að skrifa
TAF (Terminal Aerodrome
Forecast) spár fyrir flugvell-
ina á Ísafirði, Bíldudal, Húsa-
vík, Höfn í Hornafirði og Vest-
mannaeyjar. Þegar því var lok-
ið tóku við samskonar spár fyrir
Keflavíkurflugvöll, Reykjavík-
urflugvöll, Akureyrarflugvöll og
Egilsstaðaflugvöll. Frekar ró-
legur dagur.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Skrapp í hádegismat á Rikki
Chan á Stjörnutorginu í Kringl-
unni ásamt vinnufélaga.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Gaf út REG QNH spá, sem
er lofthæðarmælir fyrir Ísland
og er notaður til útdeilingar á
flughæð fyrir vélar á ferð innan-
lands. Kemur í veg fyrir að þær
fljúgi of lágt og nægilegur að-
skilnaður sé á milli þeirra. Þegar
því er lokið þurfti að gera nýjar
TAF spár fyrir sömu flugvelli og
voru nefndir hér að ofan.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
Vaktinni lauk kl. 16:30 með
samráði við dagvaktina sem
heldur áfram til kl. 19:15. Farið
yfir hvort það væri eitthvað sem
dagvaktin þyrfti að fylgjast með
varðandi flugið.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Ók heim á leið, með góða tón-
list í tækinu.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Á föstudögum er nánast
undantekningarlaust heimagerð
pizza. Samvinnuverkefni mín og
konunnar að þessu sinni. Klass-
ísk með pepperoni, lauk, svepp-
um og osti.
Hvernig var kvöldið? Kvöldið
var frekar rólegt, flakkað á milli
sjónvarpsstöðva þar til svefninn
sótti að.
Hvenær fórstu að sofa? Um
eða upp úr miðnætti.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Tékkaði á tölvupóstin-
um og Facebook.
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Sennilega ekki einn af eft-
irminnilegustu dögum lífs míns,
en góður samt í alla staði.
Eitthvað að lokum? Nei, sátt-
ur við lífið og tilveruna.
Árið 2014 fékk Grunnskólinn í
Borgarnesi styrk frá Erasmus+ til
að taka þátt í samstarfsverkefninu
„Water around us“ ásamt sex öðr-
um skólum frá fimm Evrópulönd-
um. Skólarnir eru í Portúgal, Spáni,
Þýskalandi, Lettlandi og Finnlandi
og líkt og nafnið gefur til kynna
fjallar verkefnið um vatn. Nú er í
gangi annað ár verkefnisins og eru
tvær nemendaheimsóknir á hverju
ári þar sem þrír nemendur frá hverju
landi hittast ásamt kennurum sín-
um. Nemendur úr Grunnskólan-
um í Borgarnesi hafa því farið í þrjár
slíkar heimsóknir. Í fyrra fóru þeir
til Finnlands og Lettlands og í janú-
ar síðastliðnum var farið í vikuferð
til Portúgal. Við birtum hér ferða-
sögu þeirra, ásamt myndum.
Ferðasagan
„Við undirrituð fórum til Portúgal
um miðjan janúar og dvöldum þar í
viku. Ferðin hófst á Keflavíkurflug-
vell þaðan sem flogið var til Lond-
on. Tíminn var naumur því stutt
var í næsta flug en allt fór þetta vel
og við vorum senn á leið til Porto í
Portúgal. Það var nú ekki beint sól
sem tók á móti okkur heldur rigning
en við erum henni vön svo við kippt-
um okkur ekki mikið upp við veðrið
sem var reyndar mun hlýrra en við
eigum að venjast á þessum árstíma.
Fjölskyldurnar sem við áttum að
dvelja hjá tóku á móti okkur á flug-
vellinum. Við kvöddum því kennar-
ana okkar og fórum með „nýju“ fjöl-
skyldum okkar heim.
Það sem okkur fannst skemmti-
legast var að kynnast krökkum frá
ólíkum löndum. Mest vorum við
með krökkunum frá Finnlandi og
Þýskalandi svo og auðvitað gest-
gjöfunum okkar. Misjafnt er hvað
nemendur eru færir að tala ensk-
una þannig að ekki var eins auðvelt
að spjalla við þá sem voru lakari í
ensku. Við skoðuðum tvo skóla í Va-
longo. Annar var unglingaskóli og
hinn var yngri barna skóli. Portú-
galskir krakkar eru í skólanum þar
til þau verða 18 ára gömul, þá tek-
ur háskóli við eða aðrir skólar. Ung-
lingaskólinn var alls ekki eins snyrti-
legur og við eigum að venjast, t.d.
voru allir inni á skónum. Maturinn
fannst okkur líka mjög ólíkur okk-
ar venjum og ekkert sérlega góð-
ur. Yngri barna skólinn var nýleg-
ur og mjög flottur. Krakkarnir voru
öll í eins vestum úti í frímínútum.
Þau virtust vera ótrúlega klár, t.d.
var 2. bekkur að læra margföldunar-
töfluna og kunni að margfalda stór-
ar tölur. Það sem vakti athygli okk-
ar líka var að karlkennarar kenndu
yngstu bekkjunum. Við reyndum að
kenna litlu krökkunum nokkur orð
í íslensku og þau gáfu okkur hendi
sem þau höfðu teiknað.
Verkefni okkar fyrir þessa ferð var
að útbúa kynningu á ensku um vatn-
ið í nærumhverfinu okkar fyrir nem-
endur og kennara frá hinum skólun-
um. Hún gekk mjög vel og við slóg-
um eiginlega í gegn, töluðum hátt,
skýrt og hægt svo allir skildu. Að
sjálfsögðu vorum við með flottar
myndir af Vesturlandi m.a. myndir
úr íshellinum í Langjökli sem slógu
algerlega í gegn.
Meðan á dvöl okkar stóð fórum
við í nokkrar skoðunarferðir. M.a.
skoðuðum við landkönnuðasafnið
þeirra en eins og allir vita áttu Portú-
galar flesta þekktu landkönnuði sög-
unnar. Skoðunarferðin sem stóð upp
úr var daginn sem við fengum leigða
tveggja hæða opna rútu fyrir hóp-
inn og keyrðum um Portó og ná-
grenni. Alls staðar sáum við fullt af
kirkjum, skoðuðum tvær, fórum upp
í turn á einni þaðan sem var flott út-
sýni yfir borgina. Einnig fórum við
á ströndina við Atlantshafið. Okkur
fannst fyndið hvað mörgum fannst
það merkilegt og voru hræddir við
ölduganginn. En margir af þessum
krökkum höfðu ekki séð úthaf áður.
Við smökkuðum þjóðarrétt Portú-
gala sem heitir Francesinha og sam-
anstendur af samloku með mismun-
andi kjöttegundum sem bræddur
ostur er settur yfir og síðan bjórsósa,
spælt egg og rækja eru ofan á. Okkur
fannst þetta skrýtinn matur og ekki
góður.
Borgarstjórinn í Valongó tók síð-
an á móti okkur í ráðhúsi bæjar-
ins, spjallaði við okkur og við feng-
um síðan veitingar. Það er gaman að
segja frá því að einn daginn í Portó
hittum við forsetaframbjóðanda sem
var að safna fylgi. Forsetakosning-
ar voru síðan sunnudaginn eftir að
við fórum heim. Þessi frambjóðandi
sem við hittum var kosinn forseti og
við eigum mynd af okkur með hon-
um. Þetta var mjög skemmtileg upp-
ákoma og Freyja fékk „selfí“ mynd
af sér og frambjóðandanum. Dag-
inn eftir komu svo myndir af okkur í
blöðunum og í sjónvarpinu.
Þetta var alveg frábær ferð og
ómetanleg upplifun að fá að hitta
jafnaldra frá öðrum þjóðum og
kynnast landi og menningu gestgjaf-
anna. Að kveðja þessa nýju vini okk-
ar var það erfiðasta sem við gerðum
í ferðinni enda voru þetta frábærir
krakkar sem við kynntumst og þeim
munum við seint gleyma.“
Helga Stefanía Magnúsdóttir,
Kristín Frímannsdóttir,
Aníta Jasmín Finnsdóttir,
Freyja Fannberg Þórsdóttir,
Þorgrímur Magnússon.
Fóru í nemendaferð til Portúgal
Hópurinn í skoðunarferð. Frá vinstri Þorgrímur, Helga Stefanía, Freyja Fannberg,
Aníta Jasmín og Kristín.
Þorgrímur, Aníta og Freyja eru þeir þrír nemendur Grunnskólans í Borgarnesi sem
fóru í nemendaferð til Portúgal í janúar.
Hópurinn hélt kynningu um vatnið í nærumhverfi sínu.
Svipmynd úr portúgalskri skólastofu.