Skessuhorn - 17.02.2016, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 201624
Viðbragðsaðilar í Dalabyggð
fögnuðu 112 deginum með opnu
húsi hjá Björgunarsveitinni Ósk
síðastliðinn fimmtudag. Allir til-
tækir neyðarbílar á svæðinu byrj-
uðu dagskrána á því að keyra
hringinn í kringum Búðardal með
forgangsljós logandi og sírenur í
gangi. Að því loknu var bílunum
lagt við húsnæði björgunarsveitar-
innar þar sem áhugasömum stóð
til boða að skoða þá. Sjálfboða-
liðar í Rauða kross deild Búðar-
dals lögðu sitt af mörkum og buðu
upp á matarmikla súpu fyrir gesti
ásamt rjúkandi kaffisopa. Á þess-
um tímamótum fagnaði Slysa-
varnadeild Dalasýslu eins árs af-
mæli sínu og afhenti Björgunar-
sveitinni Ósk veglega gjöf; bak-
bretti og spelkur. Góð stemning
var í húsinu og voru viðbragðsað-
ilar í Dalabyggð að vonum kátir
með þátttöku íbúa. sm
Dagskrá á 112 deginum í Dölum
Slysavarnadeild Dalasýslu færði björgunarsveitinni að gjöf bakbretti og spelkur.
Neyðarbílum var ekið með ljósum og sírenum gegnum bæinn.
112 dagurinn var haldinn hátíðleg-
ur um allt land síðastliðinn fimmtu-
dag. Af því tilefni var opið hús hjá
Slökkviliði Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar við Kalmansvelli þar sem
gestir og gangandi gátu meðal ann-
ars kynnt sér starf slökkviliðsins og
Björgunarfélags Akraness. Einnig
voru lögreglan og sjúkraflutnings-
menn á staðnum sem og fulltrúar frá
Rauða krossinum sem kynntu þjálf-
un í skyndihjálp. Nokkuð af fólki
lagði leið sína á staðinn þar sem
stóð til boða að prófa tæki og tól
viðbragðsaðilanna, sem vakti mikla
lukku hjá yngri kynslóðinni. Í til-
efni dagsins afhenti Þráinn Ólafsson
slökkviliðsstjóri SAH einum heppn-
um grunnskólanemanda viðurkenn-
ingu fyrir þátttöku í árlegri eldvarn-
argetraun hjá 3. bekk. Sá heppni var
Mikael Aron Reynisson nemandi í
Grundaskóla og hlaut hann viður-
kenningarskjal, reykskynjara og tíu
þúsund krónur að launum. Þá af-
hentu fulltrúar Rauða krossins sér-
staka viðurkenningu frá RKÍ fyrir
afrek í skyndihjálp. Voru það Haf-
þór Höskuldsson, Páll Gísli Jónsson
og Þórður Guðlaugsson sem hlutu
viðurkenninguna en þeir björguðu
mannslífi með því að nota skyndi-
hjálp á síðasta ári. grþ
Opið hús hjá viðbragðsaðilum á Akranesi
Ungir og áhugasamir drengir prófa að hnoða skyndihjálpardúkku.
Fulltrúar Rauða krossins ásamt Þórði Guðlaugssyni og Páli Gísla Jónssyni sem
hlutu hlutviðurkenningu fyrir afrek í skyndihjálp. Lengst til hægri er Eva Kristín
Elfarsdóttir með Hafdísi Myrru Hafþórsdóttur en þær tóku við viðurkenningu fyrir
hönd Hafþórs Höskuldssonar.
Þessi ungi maður var ánægður með að fá að setjast undir stýri á lögreglubifreið.
Börnin skemmtu sér konunglega við að skoða og klifra á
slökkviliðsbílunum.
Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri ásamt Mikael Aroni
Reynissyni sem fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í
eldvarnargetraun.
Í Snæfellsbæ var sjónum að þessu
sinni beint að almannavörnum og
áhersla lögð á viðbúnað og viðbrögð
almennings. Viðbragðsaðilar í Snæ-
fellsbæ voru með fjör og læti eins og
þeir kalla það að venju. Keyrði bíla-
lest um götur bæjarins í Ólafsvík,
Hellissandi og á Rifi þar sem safnast
var saman í Björgunarstöðinni Von.
Þar stóðu allir viðbragðsaðilar fyrir
sýningu og kynningu á sínum störf-
um og búnaði. Slysavarnadeildirn-
ar Helga Bárðardóttir og Sumargjöf
ásamt Snæfellsbæjardeild RKÍ voru
með kynningu á sínu starfi og var
einnig margt annað hægt að skoða
og prófa mátti til dæmis kíkja inn í
slökkvi- og sjúkrabílana sem og skoða
önnur tæki sem ekki er hægt að skoða
á hverjum degi. Þá var einnig í boði
blóðþrýstings- og blóðsykurmæling
fyrir þá sem það vildu. Lögðu margir
leið sína í Björgunarstöðina og mátti
vart sjá hverjir skemmtu sér betur
börn eða fullorðnir. Að deginum í
Snæfellsbæ stóðu Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, lögreglan, Slysavarna-
deildin Sumargjöf, Björgunarsveitin
Lífsbjörg, Slysavarnadeildin Helga
Bárðardóttir, Slökkvilið Snæfellsbæj-
ar og Rauðakrossdeild Snæfellsbæjar.
þa
Fjör og læti í Snæfellsbæ