Skessuhorn - 17.02.2016, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 201630
„Hver er uppáhalds
drykkurinn þinn?“
Spurning
vikunnar
(spurt á Akranesi)
Ólöf Inga Birgisdóttir:
„Pepsi max“
Kristín Sigfúsdóttir:
„Kaffi“
Soffía Magnúsdóttir:
„Vatn“
Sigurður Hallgrímsson:
„Vodka“
Níels „kokkur“ Jónsson:
„Sterkt kaffi“
Sunnudaginn 14. febrúar hóf ÍA
keppni í Lengjubikar karla í knatt-
spyrnu þegar liðið vann stórsigur
á Grindavíkingum í Akraneshöll-
inni með fimm mörkum gegn engu.
Ásgeir Marteinsson skoraði fyrsta
markið eftir tæplega korters leik og
var það eina mark fyrri hálfleiks. Í
þeim síðari var komið að Garðari
Gunnlaugssyni að finna netmöskv-
ana. Hann skoraði þrjú mörk áður
en hinn ungi Stefán Teitur Þórðar-
son innsiglaði fimm marka sigur ÍA
á lokamínútu leiksins, en Stefán er
aðeins 17 ára gamall.
Næsti leikur ÍA í Lengjubikarnum
fer fram laugardaginn 5. mars þegar
liðið mætir Haukum. Sá leikur fer
einnig fram í Akraneshöllinni.
kgk
Garðar með
þrennu í fyrsta leik
Strákarnir í meistaraflokki karla í
knattspyrnu hjá Víkingi voru á æf-
ingu nú á mánudaginn þegar ljós-
myndari var á ferðinni í Ólafsvík.
Voru þeir að undirbúa sig fyrir næsta
leik í Lengjubikarnum og auðvitað
átökin í Pepsídeildinni í sumar. Til-
efnið var að fá mynd af strákunum
með Dragostyttuna en hana hlaut
Víkingur Ólafsvík á 70. ársþingi
KSÍ um síðustu helgi. Dragostytt-
urnar hljóta þau lið í efstu tveimur
deildum KSÍ fyrir prúðmannlegast-
an leik miðað við gul og rauð spjöld.
Víkingur Ólafsvík hefur aldrei áður
hlotið þessa viðurkenningu. þa
Víkingsmenn hlutu Dragostyttuna
Anna Kara Eiríksdóttir leikmað-
ur Ungmennafélags Grundarfjarð-
ar í blaki var á dögunum valin í A
landslið kvenna í blaki. Þetta er
í fyrsta skipti sem UMFG á leik-
mann í A landsliði Blaksambands
Íslands, en hefur áður átt leikmenn
í yngri landsliðum.
tfk
Anna Kara valin í
A landsliðið
Víkingur Ólafsvík hóf leik í Lengju-
bikarnum um síðustu helgi þegar
þeir tóku á móti Selfossi í 2. riðli
A deildar. Spilað var í Akranes-
höllinni á laugardaginn. Víking-
ar mættu sprækir til leiks en staðan
var samt markalaus í hálfleik. Á 63.
mínútu dró til tíðinda þegar Alfreð
Már Hjaltalín kom Víkingum yfir.
Skömmu síðar eða á 71. mínútu jók
Hrvoje Tokic forystuna í 2 – 0. Sel-
fyssingurinn Ragnar Þór Gunnars-
son minkaði muninn á 86. mínútu
og staðan orðin 2 – 1. Ekki kom-
ust þeir lengra og leikurinn endaði
2 – 1 fyrir Víkingi og fara þeir vel af
stað. Hin liðin í riðlinum eru Fjarð-
arbyggð, KA, Fylkir og Breiðablik
og komast tvö efstu liðin áfram í 8
liða úrslit. þa
Víkingur hafði
betur í fyrsta leik
Um liðna helgi var Gullmót KR
í sundi haldið í Laugardalslaug.
Sundfélag Akraness sendi um 30
keppendur til þátttöku í mótinu og
kepptu þeir í öllum aldursflokkum.
Sundmenn af Akranesi syntu
mörg góð sund og unnu félagsmenn
til fjölda verðlauna, bæði einstak-
lingar og boðsundssveitir. Alls urðu
verðlaunin sextán talsins; sjö brons-
verðlaun, sjö silfurverðlaun og tvenn
gullverðlaun. kgk
Sundfólk SA sneri heim hlaðið verðlaunum
Boðsundsveitir SA sem unnu til
silfurverðlauna í 4x50 metra
skriðsundi í flokkum meyja og
sveina. Ljósm. SA.
Unglingaflokkur Snæfellskvenna
spilaði bikarúrslitaleik við Keflavík
í Laugardalshöllinni á föstudaginn.
Þrátt fyrir stórt tap þá báru þær
höfuðið hátt eins og Snæfellingar
gera jafnan.
þek
Spiluðu
til úrslita í
unglingaflokki
Stelpurnar í UMFG tóku á móti liði
Fylkis fimmtudagskvöldið 11. febrú-
ar. Gestirnir byrjuðu leikinn af krafti
og unnu fyrstu hrinuna 25-15 og
komust í 1-0. Önnur hrina var ívið
meira spennandi en jafnt var með
liðunum alla hrinuna en það voru
þó Fylkiskonur sem kláruðu hana
með 27-25 sigri og komust því í 2-0.
Heimamenn spýttu í lófana og ætl-
uðu ekki að gefast svo auðveldlega
upp og náðu að minnka muninn í
þriðju hrinu sem þær sigruðu 25-18
og staðan því 2-1 gestunum í vil.
Mikil barátta einkenndi fjórðu hrin-
una og jafnt var á öllum tölum en það
voru þó gestirnir sem náðu að klára
leikinn með 25-23 stigum og sigruðu
því leikinn 3-1.
UMFG heimsótti Aftureldingu í
gær, þriðjudag, í bikarleik. Sá leikur
var ekki hafinn þegar Skessuhorn fór
í prentun.
tfk
Skagamenn tóku á fimmtudags-
kvöldið á móti Breiðabliki í frest-
aða leiknum svokallaða. Mikið var
undir en liðin eru í hörkukeppni um
sæti í úrslitakeppninni. Hjá ÍA lögð-
ust svo ofan á þetta tilfinningar þar
sem Sean Tate í liði ÍA missti góð-
an vin sinni í vikunni og léku Skaga-
menn með sorgarbönd til að votta
„Beeper,“ eins og hann var kallað-
ur, virðingu sína. Fyrsti leikhluti var
kaflaskiptur en gestirnir leiddu eftir
hann 18-19. Sama má segja um ann-
an leikhluta. Blikar byrjuðu betur, en
þá tóku Skagamenn syrpu og staðan
í hálfleik 33-37 fyrir gestina. Í þriðja
leikhluta small svo vörnin hjá ÍA en
sóknin var á pari við fyrri hálfleikinn.
Það þýddi að ÍA náði tökum á leikn-
um, unnu fjórðunginn 15-6 og tóku
forystuna í leiknum 48-43. ÍA byrjaði
svo fjórða leikhlutann vel, náðu mest
13 stiga forystu í stöðunni 56-43 en
Blikar voru ekki á þeim buxunum að
þetta væri búið og náðu að saxa á for-
skot heimamanna en í stöðunni 57-52
gáfu leikmenn ÍA aftur í og lönduðu
að lokum mikilvægum sigri; 69-61.
Það sem skóp sigurinn hjá ÍA var
vörnin og greinilegt hver dagsskip-
unin hafi verið. Hjá ÍA átti Sean Tate
enn einn stórleikinn en hann skoraði
30 af 69 stigum ÍA auk þess að gefa
fjórar stoðsendingar, taka fjögur frá-
köst og stela þremur boltum.
Eftir leikinn eru Skagamenn áfram
í 5. sæti deildarinnar nú með 16 stig
með fjögurra stiga forskot á Blika sem
sitja enn í 7. sæti með 12 stig. Þess
ber þó að geta að það er nóg eftir af
deildinni og ljóst að baráttan um sæti
í úrslitakeppninni mun halda áfram
þá fimm leiki sem eftir eru af deild-
arkeppninni. hh
Baráttuleikur en tap í blakinu
Sæmilegar sóknir en veglegar varnir
skópu sigur Skagamanna
Sean og Fannar en ÍA léku með
sorgarbönd í virðingarskyni við félaga
Sean sem féll frá í vikunni langt fyrir
aldur fram. Ljósm. jho.