Skessuhorn - 17.02.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Snæfell varð á laugardag bikarmeist-
ari kvenna í körfuknattleik í fyrsta
sinn í sögu félagsins eftir sigur á
Grindavík. Tvisvar áður hafði lið-
ið komist alla leið í úrslitaleikinn en
þurft að bíta í hið súra silfur. En allt
er þegar þrennt er og Snæfellskon-
ur staðráðnar í því að njóta ávaxta
erfiðis síns þetta skiptið. Grindvík-
ingar skoruðu fyrstu stig leiksins en
Snæfell svaraði með þriggja stiga
körfu. Um miðjan fyrsta leikhluta
náðu þær yfirhöndinni í leiknum
og litu aldrei til baka. Þá kúnst að
leiða naumlega kann Snæfell betur
en flest önnur lið. Þrátt fyrir nokkr-
ar atlögur að forystu Snæfells höfðu
Grindvíkingar ekki erindi sem erf-
iði. Alltaf höfðu leikmenn Snæfells
svör á reiðum höndum.
Gunnhildur Gunnarsdóttir var
frábær í leiknum, sérstaklega í fyrri
hálfleik, þar sem hún tók af skar-
ið og dró vagninn í liði Snæfell-
inga. Grindvíkingar brugðu á það
ráð að taka hana úr umferð í síð-
ari hálfleik og dekkuðu hana mjög
stíft. En þá var sem hún einfaldlega
hafi rétt Haiden Palmer lyklana að
stjórntækjum leiksins. Haiden steig
upp, skoraði meðal annars gríðar-
lega mikilvæga körfu um miðjan
þriðja leikhluta þegar Grindvíking-
ar höfðu minnkað muninn í eitt stig
og sneri gangi leiksins aftur Snæfelli
í vil. Eftir það leiddu Snæfellskon-
ur til loka leiks og hleyptu Suður-
nesjaliðinu aldrei inn í leikinn aftur.
Lokatölur í Laugardalshöllinni urðu
78-70 og Snæfell tryggði sér þar
með bikarmeistaratitilinn í körfu-
knattleik kvenna árið 2016.
Gunnhildur skoraði 23 stig í leikn-
um og Haiden lauk leik með mynd-
arlega þrennu; 23 stig, 13 fráköst
og tíu stoðsendingar. Bryndís Guð-
mundsdóttir skoraði 13 stig og reif
niður 16 fráköst. Berglind Gunn-
arsdóttir skoraði tólf stig, Andrea
Björt Ólafsdóttir fjögur og María
Björnsdóttir þrjú. Hjá Grindavík var
Whitney Fraizer atkvæðamest með
32 stig og 16 fráköst.
„Snæfellshjartað
skín í gegn“
Gunnhildur Gunnarsdóttir fyrir-
liði var að vonum ánægð með bik-
armeistaratitilinn. „Tilfinningin var
rosalega góð,“ segir Gunnhildur í
samtali við Skessuhorn. „Við vitum
reyndar hvernig það er að vinna tit-
il en okkur vantaði þennan í safn-
ið,“ bætir hún við létt í bragði. „Við
mættum tilbúnar til leiks og ætl-
uðum okkur alltaf að taka bikarinn
með heim.“
Gunnhildur lék afar vel í leiknum
eins og áður sagði og dró vagninn
í fyrri hálfleik. Hún vill hins vegar
ekki gera of mikið úr eigin frammi-
stöðu. „Við spiluðum vel sem lið og
opnuðum vel fyrir hvora aðra. Ég
fékk tvö galopin skot í upphafi leiks
og nýtti þau sem betur fer. Þeg-
ar maður setur tvö í röð þá heldur
maður bara áfram að skjóta.“
Grindavíkurliðið kom ákveðið til
síðari hálfleiks, gerði harða atlögu
að forystunni og náði að minnka
muninn í eitt stig. Gunnhildur seg-
ir að leikmenn Snæfells hafi ekki lát-
ið áhlaupið slá sig út af laginu. „Mér
fannst við halda haus allan tímann.
Auðvitað koma alltaf upp og niður
kaflar, þannig er körfuboltinn. Þær
sóttu vel að okkur en við vorum all-
ar tilbúnar í verkefnið og héldum ró
okkar. Við náðum að losa af okkur
spennuna fyrstu tvær til þrjár mín-
úturnar og vorum yfirvegaðar eftir
það. Ég var allavega ekkert stress-
uð,“ segir Gunnhildur og hlær við.
Stuðningsmenn Snæfells voru
áberandi á áhorfendapöllum Laug-
ardalshallarinnar. Segir Gunnhildur
það hafa verið liðinu mikil hvatning.
„Það var ótrúlega gott að vinna bik-
arinn með þessu liði og öllum sem
eru í kringum það. Stuðningsmenn-
irnir voru frábærir, hálft bæjarfélag-
ið var mætt í stúkuna, lét vel í sér
heyra og það hjálpaði okkur mik-
ið,“ segir hún og er það til marks
um að liðsheildin teygi sig langt út
fyrir sjálft liðið. „Við erum ótrúlega
góður hópur. Allar þekkja sín hlut-
verk og eru tilbúnar að leggja sitt
af mörkum. Snæfellshjartað skín í
gegn hjá öllum, hvort sem þær eru
uppaldar í Hólminum eða ekki.
Við smellum ótrúlega vel saman og
hópurinn í kringum liðið er frábær
og heldur vel utan um okkar,“ seg-
ir Gunnhildur.
Frábær liðssigur
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæ-
fells, var heilt yfir ánægður með
leik síns liðs. „Ég held þetta hafi
verið mjög skemmtilegur leikur að
horfa á. Spennandi leikur og mik-
il tilþrif. Góður kvennakörfubolti,“
segir Ingi í samtali við Skessu-
horn. Hann segir leikinn hafa spi-
last nokkurn veginn eins og liðið
hafi búið sig undir. „Við náðum þó
ekki að hafa eins góð tök á Whit-
ney Fraizer og við ætluðum okkur.
Þær náðu að koma henni of oft í of
góðar stöður. Hún fékk svolítið af
auðveldum körfum,“ segir hann. „Á
móti kemur að við fengum frábært
sóknarframlag frá Gunnhildi, fyrir-
liðanum okkar, og svo góðar körf-
ur frá öðrum leikmönnum,“ bætir
hann við.
Ingi segir að varnarlega hafi all-
ir gert vel heilt yfir en þegar kom-
ið var inn í klefa í hálfleik hafi öll-
um fundist liðið geta gert ögn bet-
ur. „Haiden bætti sig svo þegar
leið á leikinn. Mér fannst það vera
það sem skildi liðin að því henn-
ar frammistaða smitaði út frá sér.
Bryndís og Berglind voru mjög
góðar þó þær hafi ekki skorað mik-
ið, en varnarlega gerðu þær gríðar-
lega vel, og allar sem voru á gólf-
inu hverju sinni gerðu vel,“ seg-
ir Ingi. „Þetta var frábær liðssig-
ur. Það höfðu allir trú á verkefninu,
allir í kringum liðið og sem og liðið
sjálft,“ segir hann og bætir því við
að sér þyki vænt um góðan stuðn-
ing áhorfenda. „Það var geðveikur
stuðningur í stúkunni. Allir í rauð-
um Snæfellsbol og virkilega flott
stemning.“
Ingi segir tilfinninguna sem
fylgdi því að lyfta bikarnum hafa
verið virkilega góða. „Að vinna tit-
il er eitthvað sem er erfitt að lýsa
með orðum. Þetta er náttúrulega í
þriðja skipti sem Snæfell kemst í úr-
slit bikarsins. Tvisvar sinnum höf-
um við þurft að horfa upp á önnur
lið lyfta bikarnum þannig að okk-
ur virkilega langaði að vinna,“ seg-
ir hann. „Það er geðveikt að hafa
náð þessu og ég er rosalega stolt-
ur af öllum sem komu að þessu með
einum eða öðrum hætti,“ segir Ingi
Þór að lokum. kgk/ Ljósm. sá.
Snæfellskonur eru bikarmeistarar í
körfuknattleik árið 2016
Bikarmeistarar í körfuknattleik kvenna árið 2016.
Gunnhildur Gunnarsdóttir fyrirliði
átti skínandi fínan leik þegar Snæfell
tryggði sér bikarmeistaratitilinn í
fyrsta sinn.
Bryndís Guðmundsdóttir skilaði sínu
og vel það. Hún skoraði 13 stig og reif
niður 16 fráköst.
Gunnhildur og Berglind Gunnarsdætur, Gunnar Svanlaugsson formaður kkd.
Snæfells, Haiden Palmer og Bryndís Guðmundsdóttir.
Snæfellskonur hlaupa sigurhring um Laugardalshöllina. Reynsluboltinn Alda Leif
Jónsdóttir leiðir hópinn með bikarinn á lofti.