Skessuhorn - 17.02.2016, Page 32
Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Veita Grundaskóla faglega forystu. Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs á Akranesi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum er skilyrði.
Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði.
Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og kennslufræða er æskileg.
Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SNS og KÍ.
Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2016. Umsóknarfrestur er til 29. febrúar 2016.
Jóna Björk Sigurjónsdóttir jona.sigurjonsdottir@capacent.is og Gunnar Gíslason gunnar.gislason@akranes.is
þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.
Akranes
og unglinga á Akranesi.
Grundaskóli
Grundaskóli hefur á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki og er með um
600 nemendur í 1 til 10 bekk. Leiðarljós Grundaskóla er metnaðarfullt
nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans.
Hann hlaut meðal annars Íslensku menntaverðlaunin fyrstur allra skóla.
J Á K V Æ Ð N I
M E T N A Ð U R
V Í Ð S Ý N I
Við leitum að umbótasinnuðum og farsælum leiðtoga
Skólastjóri Grundaskóla
U
JÓ
N
SD
Ó
T
T
IR
„Þann 4. október í fyrra var ég
fótbolta með syni mínum. Þetta
var svokallaður foreldrafótbolti í
íþróttahúsinu hér í Grundarfirði.
Þegar langt var liðið á tímann fann
ég eins og einhver hefði sparkað aft-
an á hægri fótinn á mér þannig að
ég féll. Ég sneri mér við og ætlaði að
fara að skamma samherja minn en
þá stóð enginn fyrir aftan mig. Þá
áttaði ég mig á því hvað hefði gerst
því ég hafði heyrt lýsingarnar. Ég
væri líklega með slitna hásin. Þarna
lá ég og gat mig ekki hreyft og þetta
var mjög sárt. Ég var fluttur með
sjúkrabíl niður á heilsugæslu, fé-
lögum mínum í sjúkraflutningunum
til mikillar gleði! Þar var ég gifsaður
í svokallaða ballerínustöðu.“ Þann-
ig lýsir Tómas Freyr Kristjánsson
sjúkraflutningamaður, skrifstofu-
maður, fréttaritari og ljósmyndari
Skessuhorns í Grundarfirði upp-
hafinu á því sem ætlar reynast hon-
um bæði langt og leiðigjarnt sjúkra-
ferli með tilheyrandi takmörkunum
á ferðafrelsi.
Gerðist án fyrirvara
Hásinin er sterkasta og sverasta sin
líkamans. Hún liggur aftanvert á
leggnum og myndar tengsl milli hæl-
beins og kálfavöðva. Þessi sin getur
slitnað hjá fólki og það mun algeng-
ara hjá körlum en konum. Þegar há-
sin slitnar upplifir fólk það einmitt
eins og Tómas lýsir því. Það er eins
og sparkað sé á kálfann aftanverðan.
Tenging kálfavöðvans við hælbeinið
rofnar og fólk fellur við. „Þetta gerð-
ist algerlega fyrirvaralaust. Ég hafði
ekki fundið fyrir neinum eymslum
áður eða neitt. Allt í einu slitnar bara
hásinin. Reyndar mun þetta geta átt
sér stað meðal þeirra sem hafa áður
verið að æfa íþróttir en síðan hætt og
stífnað eftir það. Ég æfði fótbolta til
2013 en hætti því þá þegar við hjón-
in eignuðumst dóttur okkar.“
Tómas Freyr segir að hefðbund-
inn bati eftir að fólk slíti hásin feli
í sér fjórar vikur með fótinn í gifsi.
Síðan taki við aðrar fjórar vikur í
gönguspelku og svo endurhæfing.
„Samtals er ferlið um 28 vikur eða
um sjö mánuðir þangað til maður
ætti að vera orðinn þokkalegur að
nýju. Ég fór í þetta og var byrjaður
í endurhæfingu núna eftir áramót-
in. Þannig fór ég alltaf tvisvar í viku
í Stykkishólm til sjúkraþjálfara. Þetta
leit allt vel út miðað við aðstæður. Ég
var farinn að ganga nokkuð eðlilega,
var nokkurn veginn óhaltur og orð-
inn nokkuð brattur.“
Slitnaði í annað sinn
Bataferlið sem gekk svo vel fékk
hins vegar bráðan endi föstudag-
inn 5. febrúar síðastliðinn. „Það
er þannig að ég er að ganga út úr
bílskúrnum heima að ég finn smell
í fætinum. Fyrst hélt ég að það
hefði hrunið snjór ofan af þakinu
og lent aftan á fótleggnum. Ég leit
við og þar var ekki neitt. Það rann
upp fyrir mér hvað hefði gerst og
þá gersamlega féllust mér hendur.
Ég skildi að hásinin hefði slitnað á
nýjan leik.“
Það kemur fyrir að fólk slíti há-
sin á nýjan leik á meðan það er í
bataferli eins og Tómas. Slíkt er
þó ekki mjög algengt. Rannsókn-
ir sýna að það geti gerst í um 5 til
15% tilfella. Því er óhætt að segja
að Tómas Freyr hafi verið óhepp-
inn. „Við þetta upphefst sama ferl-
ið aftur. Ég fór suður og þar var
fóturinn myndaður. Það kom í ljós
að 70 til 80 prósent af hásininni
væri trosnuð. Hún var því ekki al-
veg slitin heldur hangir hún föst
við hælinn á eitthvað um 20 pró-
sentum. Það skýrir sennilega af
hverju þetta var ekki jafn sárs-
aukafullt nú í seinna skiptið og hið
fyrra. Hins vegar get ég ekki lýst
því hvað ég var rosalega svekktur
að lenda aftur í þessu. Ég tel mig
ekki hafa farið óvarlega. Nú taka
við aftur við fjórar vikur í gifsi, síð-
an er það gönguspelka og svo end-
urhæfing. Ég byrja aftur á byrjun-
arreit í bataferlinu. Reyndar verð-
ur skoðað núna hvort ég verði
sendur í aðgerð eða hvort það eigi
að freista þess að láta þetta gróa
aftur eins og síðast.“
Fréttaritari Skessuhorns í
Grundarfirði mun því „skrönglast
um á hækjum næstu vikurnar,“ eins
og hann orðar það. „Ég verð að-
eins betri þegar ég verð kominn í
gönguspelkuna. Þetta er bara verk-
efni, maður verður bara að taka
þessu úr því sem komið er. En ég
ætla samt að reyna að taka myndir
og vera á vaktinni fyrir Skessuhorn
þó hreyfigetan verði kannski ekki
nálægt hundrað prósentum,“ seg-
ir hann furðu hress í bragði þrátt
fyrir allt. „Ég vorkenni konunni
minni Guðrúnu Jónu Jósepsdóttur
mest, þar sem að nú verður tölu-
vert meira á hana lagt aftur hvað
varðar heimilisstörf og barnaupp-
eldi.“ mþh
Seinheppinn fréttaritari sleit í tvígang hásin
Tómas Freyr Kristjánsson heima í stofu að lesa Skessuhorn með slitna hásin í annað sinn.
Að slíta hásin er ekkert grín enda
eru hásinar stærstu sinar líkamans
tengja saman kálfavöðva við hæl og
eru þannig í lykilhlutverki við allar
fótahreyfingar. Mynd er af vefnum
heilsutorg.is þar sem nánar má fræðast
um slit á hásinum.