Skessuhorn - 16.03.2016, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2016 9
Deiliskipulagstillögur í Reykhólahreppi
Þéttbýlið á Reykhólum , útivistarsvæði og Sjávarböð
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum þann 11. febrúar 2016 að auglýsa deiliskipulagstillögu ásamt
umhverfsiskýrslu í landi Reykhóla skv. 41. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið nær yfir stóran hluta af Langanesi og Titlingastaðarnesi sunnan byggðar Reykhóla allt frá syðstu
þéttþýlismörkum Reykhóla niður að sjó við Karlsey. Heildarstærð skipulagssvæðisins eru 324,11 hektarar.
Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir allt svæðið sé ætlað fyrir almenna útivist í sátt við umhverfið og náttúru
svæðisins og einnig afmörkum á 10.000 m² lóð undir þjónustubyggingu Sjávarbaða sem er skilgreind með takmörkuðu
byggingarmagni.
Innan lóðarinnar má byggja þjónustubyggingu Þ1, smáhýsi G1-2, laugar og potta ásamt bílastæðum sem þjóna
Sjávarböðunum. Lóðinni er annars vegar skipt upp í framkvæmdarsvæði og hins vegar náttúrusvæði, þar sem
byggingin markar skil milli þessara tveggja svæða.
Eftir framkvæmdir mun strandlengjan á Langanesi og Titlingastaðarnesi verða aðgengileg til almennrar útivistar í
sátt við náttúruna.
Breyting á deiliskipulagi í Fremri-Gufudal Reykhólahreppi
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum þann 11. febrúar 2016 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi á
landi Fremri-Gufudals Reykhólahreppi skv. 43. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að ný íbúðarhúsalóð er skilgreind innan skipulagssvæðisins. Skipulagsmörkum er
hnikað lítillega til vegna þessa og tekur deilskipulagið því til 22,3 ha svæðis í stað 21,5 ha. Innan skipulagssvæðisins eru
fjögur sumarhús, tvö íbúðarhús og útihús sem tilheyra jörðinni.
Skipulagsbreytingin er í samræmi við gildandi aðalskipulag sem heimilar allt að þrjú íbúðarhús á jörð auk þeirra húsa
sem fyrir eru.
Innstipollur í Flatey á Breiðafirði.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum þann 8. október 2015 að auglýsa deiliskipulagstillögu ásamt
umhverfisskýrslu vegna smábátahafnar við Innstapoll í Flatey á Breiðafirði skv. 41. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 123/2010.
Tillagan á deiliskipulaginu við Innstapoll í Flatey á Breiðafirði tekur til svæðis á aðalskipulagi sem er áætlað opið svæði
og hafnarsvæði merkt H3.
A. Aðkoma - opið og óbyggt svæði.
Á opna svæðinu má koma fyrir vegslóða að höfninni en skal að öðru leyti vera óhreyft.
Ekki verður heimilt að nota þetta svæði sem athafnasvæði á byggingartíma eða sem lager fyrir efni, tæki eða nokkuð
sem til fellur á byggingartíma hafnarinnar.
Slóðinn má vera allt 3 m breiður eða að hámarki 4 m með vegöxlum. Yfirborð skal vera í samræmi við aðra vegi í
Flatey en þeir eru með malaryfirborði í dag.
Á uppdrætti er sýnd leiðbeinandi lega. Svæðið er um 1.900 m2 að stærð.
B. Hafnarsvæði.
Á hafnarsvæðinu má koma fyrir bátalægi fyrir smábáta. Gera má skjólgarða báðum megin hafnarsvæðis, koma fyrir
bryggjum og athafnasvæðum sem fylgja slíkri starfsemi. Dýpka má botn hafnarkvíarinnar niður í -2,5 m. Reiknað er
með að smábátalægið verði 25x30 m að stærð svo kemur innsiglingarenna ca 12x40 m. Gerðir verða tveir grjótgarðar
um 40 metra langir. Til að valda sem minnstri röskun er ætlunin að nýta efnið úr dýpkuninni í garðanna. Efnismagnið
í garða er áætlað um 4000 m³. Halda skal öllu jarðraski í lágmarki og skal frágangur vera til fyrirmyndar og í samræmi
við umhverfi. Svæðið er 9.670 m2 að stærð.
Skipu lags uppdrættir og greinagerðir ásamt umhverfisskýrslum eru til sýnis á skrifstofu Reykhólahrepps frá
17. mars til 29. apríl 2016. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.reykholar.is.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Reykhólahrepps Maríutröð 5a, 380 Reykhólum eða á netfangið
skrifstofa@reykholar.is eða bogi@dalir.is merkt ,,deiliskipulag” og því skipulagi sem um ræðir fyrir 29. apríl 2016.
Reykhólar 8.mars 2016
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags og byggingarfulltrúi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Kvenfélagið Gleym mér ei
í Grundarfirði færði dval-
arheimilinu Fellaskjóli
veglega gjöf á dögunum.
Komu konurnar færandi
hendi með lyftu til notk-
unar á heimilinu. Lyfta
þessi hjálpar fótalúnum
vistmönnum og auðveldar
starfsmönnum tökin þeg-
ar við á. Gamla lyftan var
komin til ára sinna og vart
í nothæfu ástandi. Þetta
var því kærkomin gjöf fyr-
ir dvalarheimilið. Það voru
þær Sólrún og Mjöll Guð-
jónsdætur sem færðu Fella-
skjól lyftuna fyrir hönd
Kvenfélagsins.
tfk
Kvenfélagskonur gáfu lyftu á dvalarheimilið
Sólrún og Mjöll Guðjónsdætur færðu Fellaskjóli lyftuna fyrir hönd Gleym mér ei og það var
Vineta Karimova hjúkrunarfræðingur sem tók á móti henni.
Tveir hópar stúlkna á Akranesi
héldu nýverið tombólur og gáfu af-
rakstur sölunnar til Rauða krossins.
Sunneva Rut, Guðlaug María og
Sigríður Vala söfnuðu 2.498 krón-
um.
Aldís Birta og Kara Líf héldu
einnig tombólu og söfnuðu 4.153
krónum.
„RKÍ á Akranesi þakkar þeim
kærlega fyrir þeirra framlag.“
mm
Söfnuðu fyrir RKÍ
Laugardagurinn 12. mars var mik-
ill hátíðisdagur í Stykkishólms-
kirkju en þá voru haldnir svæð-
istónleikar Nótunnar, uppskeru-
hátíðar tónlistarskólanna, fyr-
ir Vestfirði og Vesturland. Fjöldi
nemenda af öllum stigum tónlist-
arnámsins kom fram og voru at-
riðin afar fjölbreytileg, sem gerði
tónleikana einstaklega skemmti-
lega og áhugaverða. Viðurkenn-
ingar voru veittar fyrir framúr-
skarandi atriði og þrjú atriði valin
til þátttöku á lokatónleikum Nót-
unnar sem haldnir verða í Hörpu
sunnudaginn 10. apríl næstkom-
andi. Sigurvegararnir voru: Oli-
ver Rähni frá Tónlistarskóla Bol-
ungarvíkur, en hann lék frumsam-
inn konsert fyrir einleikspíanó,
Sigurður Guðmundsson frá Tón-
listarskóla Stykkishólms, en hann
lék Söng Sólveigar eftir E. Grieg á
alt-saxófón. Meðleikari á píanó var
Hólmgeir Þórsteinsson. Að lok-
um þau Pétur Ernir Svavarsson og
Kristín Harpa Jónsdóttir frá Tón-
listarskóla Ísafjarðar sem léku eig-
in útsetningu á Harry Potter svítu
eftir John Williams fyrir tvö píanó.
hf / Ljósm. sá.
Undankeppni Nótunnar á
Vesturlandi og Vestfjörðum
Þátttakendur að loknum tónleikunum.
Verðlaunagripirnir sem veittir voru
fyrir framúrskarandi flutning.
Pétur Ernir Svarsson, Kristín Harpa
Jónsdóttir og Oliver Rähni.