Skessuhorn - 16.03.2016, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201614
AÐAL
FUNDUR
Félagið veitir ferða-
styrk til þeirra félags-
manna sem búa í meira
en 40 km fjarlægð frá
fundarstað.
Félags iðn- og
tæknigreina 2016
verður haldinn í Borgartúni 30, 6.
hæð laugardaginn 19. mars kl. 11.00
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins
á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til
umræðu og afgreiðslu.
3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
4. Kjöri stjórnar lýst.
5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar,
skoðunarmanna reikninga og uppstillinganefndar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tillaga um fulltrúa á þing Samiðnar 2016.
8. Tillaga um fulltrúa á þing ASÍ 2016.
9. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða
sem FIT er aðili að.
10. Önnur mál.
Hádegismatur í boði félagsins.
Stjórnin
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Leikskólakennara vantar við Auðarskóla
Leikskólakennara og deildarstjóra vantar við leikskóladeild
Auðarskóla. Auðarskóli, sem er samrekinn leik-, grunn- og
tónlistarskóli er staðsettur í Búðardal. Einkunnarorð skólans eru:
Ábyrgð - Ánægja - Árangur. Leikskólinn er tveggja deilda og að
jafnaði dvelja þar 35 – 40 börn frá 12 mánaða aldri. Húsnæði
leikskólans er nýlegt og aðstaða og aðbúnaður góður. Sjá frekari
upplýsingar á www.audarskoli.is.
Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, skapandi og vill vera
virkur hluti liðsheildar.
Hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun
Góð færni í mannlegum samskiptum
Áhugi og metnaður fyrir faglegu leikskólastarfi
Skipulagshæfni
Frumkvæði
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Allar umsóknir verða teknar til skoðunar og þeim svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands
Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars.
Nánari upplýsingar veitir Þorkell Cýrusson skólastjóri í síma
894-3445. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið
keli@audarskoli.is.
Dalir eru sögufrægt hérað þar sem sögusvið Laxdælu og Eiríkssögu
rauða ber hæst. Það má því með sanni segja að fá landssvæði státi af
ríkulegri sögu Dalirnir. Náttúrufegurð og friðsæld Dalanna er rómuð og
eru ótal möguleikar til útiveru, gönguferða og fuglaskoðunar. Í Búðardal,
sem er þjónustumiðstöð Dalanna, eru íbúar um 255 og þar er ostagerð
MS staðsett sem er þekkt fyrir ostana sína.
Búðardalur er miðsvæðis á Vesturlandi og stutt til næstu áfangastaða,
til dæmis eru 153 km til Reykjavíkur og 278 km á Akureyri.
Íslandsmót unglinga í badminton
var haldið á Akranesi helgina 11.-13.
mars og voru þátttakendur 168 tals-
ins frá tíu félögum; Aftureldingu,
BH, Hamri, ÍA, KR, Samherjum,
TBR, TBS, UMFS og Umf. Þór.
Spilaðir voru 337 leikir um helgina.
ÍA og UMFS áttu 18 keppendur á
mótinu. Mótið gekk vel fyrir sig en
veðrið var aðeins að stríða þátttak-
endum á leiðinni á mótsstað. En
það urðu ekki mörg forföll vegna
veðurs. Allir þátttakendur í mótinu
fengu bol, buff og tattú að gjöf frá
Badmintonfélagi Akraness og ÍA í
tilefni afmælis þeirra. Badminton-
félag Akraness fagnar 40 ára afmæli
í nóvember og því var tilvalið að
halda veglegt Íslandsmót unglinga á
Akranesi þetta árið.
Á laugardaginn fór fram keppni
í U-11 flokknum, þar var keppt í
einliðaleik og tvíliðaleik. Þar eign-
aðist ÍA fyrsta Íslandsmeistaratitil-
inn 2016 þegar Máni Berg Ellerts-
son sigraði í tvíliðaleik með Höllu
Stellu Sveinbjörnsdóttur. Á sunnu-
daginn fóru fram úrslit og í lok dags
voru krýndir Íslandsmeistarar 2016.
Mesta afrekið hjá ÍA vann Brynjar
Már Ellertsson, hann sigraði þrefalt,
í einliðaleik, tvíliðaleik og tvennd-
arleik. Alls hlutu félagsmenn ÍA og
UMFS 9 Íslandsmeistaratitla.
Verðlaunahafar frá ÍA og UMFS:
Einliðaleikur U15 aukaflokkur
2. sæti – Katrín Eva Einarsdóttir ÍA
Einliðaleikur U15 aukaflokkur
1. sæti – Davíð Örn Harðarson ÍA
Einliðaleikur U19 aukaflokkur
1. sæti – Elvar Már Sturlaugsson ÍA
Einliðaleikur U11
2. sæti – Máni Berg Ellertsson ÍA
Tvíliðaleikur U13
2. sæti – María Rún Ellertsdóttir ÍA
Tvíliðaleikur U15
2. sæti – Davíð Örn Harðarson ÍA
Íslandsmeistarar:
Máni Berg Ellertsson ÍA –
tvíliðaleikur U11
Brynjar Már Ellertsson ÍA –
einliðaleikur, tvíliðaleikur og
tvenndarleikur U15
Ingibjörg Rósa Jónsdóttir UMFS –
tvíliðaleik og tvenndarleik U15
Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir ÍA –
einliðaleik og tvíliðaleik U17
Harpa Kristný Sturlaugsdóttir ÍA –
tvíliðaleik U17
-fréttatilkynning
Héldu Íslandsmót í badminton
Íslandsmeistarar af Vesturlandi.
Síðastliðinn föstudag var haldinn
sameiginlegur íþróttadagur í Akra-
neshöll. Þar hittust elstu börn í leik-
skólum og 1. bekkingar í grunn-
skólum á Akranesi og spreyttu sig á
ýmsum æfingum. Á annað hundr-
að börn tóku þátt í íþróttadeginum
í ár og skemmtu sér konunglega.
Starfsfólk skólanna hafði útbúið fjöl-
breyttar stöðvar um alla Akranes-
höll og var börnunum skipt í bland-
aða hópa á hverja stöð, þar sem þau
fengu að spreyta sig ýmsum boltaæf-
ingum, stultum, jóga, hlaupum og
fleiru. Um er að ræða árlegan við-
burð sem er liður í samstarfi skóla-
stiganna, Brúum bilið sem hefur ver-
ið fastur liður í skólastarfi á Akra-
nesi frá 1996. Á Akranesi eru starf-
andi fjórir leikskólar og tveir grunn-
skólar sem unnið hafa saman að því
á þessum árum að auðvelda börnum
að flytjast milli skólastiga og skapa
samfellu í námi þeirra. Að sögn Ástu
Egilsdóttur kennara við Grunda-
skóla hefur samstarfið reynst mjög
vel í alla staði. Hún segir skólabyrj-
unina reynast börnunum almennt
mun auðveldari eftir að samstarfið
hófst og að aðlögun að grunnskólan-
um gangi betur fyrir sig. „Við höfum
sinnt faglegu samstarfi skólastiganna
í gegnum árin en sá þáttur í samstarf-
inu þarf að vera reglubundinn, með-
al annars vegna mannabreytinga. Nú
er til að mynda nýfarinn af stað sam-
ráðshópur um læsi sem hefur meðal
annars það markmið að leggja fram
tillögur um hvernig tryggja megi
samfellu í læsi milli skólastiganna,“
segir Ásta.
Auðveldar breytingar
Ásta segir grunnþætti samstarfsins
vera nokkra. Þar megi meðal ann-
ars nefna heimsóknir milli skólanna,
annars vegar skólastjóraheimsókn-
ir þar sem elsti árgangur leikskóla-
barnanna heimsækir báða grunn-
skólana og hins vegar gagnkvæm-
ar heimsóknir nemenda leikskóla og
grunnskóla. Þær taka við að loknum
skólastjóraheimsóknum og heimsæk-
ir þá hópur leikskólabarna grunnskól-
ann og á sama tíma fer svipaður fjöldi
1. bekkinga í leikskólaheimsóknir. Í
þessum heimsóknum hittast börn af
öllum leikskólunum og 1. bekking-
ar fá bæði tækifæri til að heimsækja
sinn leikskóla og að kynnast leikskól-
um skólafélaga sinna. Að sögn Ástu
lýkur vetrarstarfinu formlega með
fjögurra daga vorskóla þar sem all-
ir væntanlegir 1. bekkingar kynn-
ast framtíðarskóla sínum. „Mark-
miðið með vorskólanum er að efla
sjálfstraust og öryggi barnanna gagn-
vart þeim breytingum sem framund-
an eru í lífi þeirra. Meðan á vorskóla
stendur heimsækja 1. bekkingar leik-
skólana en hluti þeirra er þó eftir í
grunnskólanum sem gestgjafar. Á
lokadegi vorskólans er haldin hátíð
þar sem 1. bekkingar og væntanleg-
ir nemendur 1. bekkjar skemmta sér
saman við leiki, söng og dans.“ Aðr-
ir þættir samstarfsins snúa að meðal
annars að þátttöku í morgunstund og
stórum samsöng grunnskólanna. Þá
sækja leikskólabörnin einnig tíma í
íþróttahúsum bæjarins þar sem þau
kynnast íþróttakennurum, húsnæð-
inu og starfinu sem bíður þeirra í
íþróttatímum í grunnskólanum.
grþ
Bilið brúað í Akraneshöll
Börnin fengu meðal annars að spreyta sig á því að ganga á stultum.
Hlaupið í skarðið.
Einbeitt að æfa sig að halda blöðru á
lofti.