Skessuhorn - 16.03.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201622
Spurningin
Þrátt fyrir að flest ungmenni
á Íslandi kjósi að láta ferma
sig í kirkju á það ekki við um
alla. Ekki aðhyllast allir kristna
trú og börn á fermingaraldri
eru engin undantekning þar
á. Þeir sem vilja sleppa því
að fermast á kristinn hátt
hafa þó aðra valkosti. Hér á
landi stendur meðal annars
til boða taka siðmálum að
heiðnum sið. Þeir sem taka
siðmálum eru á öllum aldri
þó meirihluti þeirra sé á ung-
lingsaldri. Í ár munu nokkur
ungmenni taka siðmálum á
Vesturlandi.
Alma Hlín Þórarinsdóttir, sem bú-
sett er á Hvanneyri, var ein þeirra
sem tók siðmálum í fyrra. Hún kaus
að fara þá leið frekar en að fermast
í kirkju og hafði ákveðið sig tölu-
vert áður en hún komst á ferming-
arald. „Mér fannst þetta það flott-
asta af því sem var í boði. Þetta var
öðruvísi og í ásatrúnni fannst mér
skemmtilegustu sögurnar,“ seg-
ir Alma Hlín í samtali við Skessu-
horn. Hún er ekki alin upp við
heiðinn sið en þekkti ásatrúna þó
vel. „Ég er alin upp við þannig við-
horf að ég mátti velja það sem ég
vildi. Það var lesið mikið fyrir mig
af þessum sögum þegar ég var yngri
og ég spurði mikið út í þessi mál.
Ég kynnti mér þetta vel áður en ég
tók þessa ákvörðun,“ segir Alma
Hlín. Fyrir siðmálaathöfnin er veitt
fræðsla sem að mestu leyti fer fram
í spjallformi. Þar er rætt um goðin
og heiðna lífssýn, velt fyrir sér heil-
ræðum Hávamálanna ásamt ýmsum
siðfræðilegum og heimspekilegum
álitamálum. Alma Hlín fékk fræðslu
frá Jónínu Kritínu Berg Vestlend-
ingagoða. „Við sátum saman og lás-
um í Hávamálum og skoðuðum ljóð
og erindi sem ég vildi taka. Ég fékk
lista yfir flokka til að geta valið hvað
ég vildi hafa erindin mín um í vígsl-
unni. Ég valdi það sem skipti mig
máli og valdi mér ljóð líka,“ útskýr-
ir Alma Hlín. „Ég las mörg erindi
áður en kom að vígslunni sjálfri, ég
las þau flest öll,“ bætir hún við.
Las úr Hávamálum
Siðmálaathöfn er vígsla að hætti
ásatrúarmanna inn í fullorðinna
manna tölu. Að því leyti er hún sam-
bærileg fermingarathöfn kristinna
manna en ólíkt fermingarathöfn
fer athöfnin fram úti í náttúrunni
og aðeins er einn aðili í hverri at-
höfn. Þá er engin krafa gerð um
trúarjátningu heldur opinberar við-
komandi að hann ætli að hafa heið-
inn sið að leiðarljósi í lífinu. Athöfn
Ölmu Hlínar fór fram í fyrrasumar
í Hafnarskógi. „Við pabbi völdum
staðinn saman. Við völdum stað-
inn vegna tengsla við Höfn í Mela-
sveit. Pabbi er ættaður þaðan og við
geymum hestana við Hafnarfjall og
fannst þessi staður því passa vel,“
segir hún. Höfn í Melasveit hef-
ur verið í eigu ættar föður henn-
ar og á amma Ölmu Hlínar jörð-
ina núna. Landið er fallegt og var
staðsetningin því vel við hæfi. Jón-
ína Vestlendingagoði framkvæmdi
athöfnina. „Við fórum út í skóg-
inn ásamt öllum gestunum mínum.
Jónína kveikti eld, heiðraði goðin
og fjallaði um fullorðinna manna
tölu. Ég sagði frá því hvers vegna
ég valdi ljóðin og las þau upp.“ Að
lokum var horn látið ganga milli
manna og barni og goðum drukkin
heillaskál. Við siðmálaathöfn fá við-
staddir tækifæri til að taka til máls
og færa barninu persónulega kveðju
og er þá orðinn þátttakandi í at-
höfninni en ekki áhorfandi. „Þetta
var mjög skemmtilegt,“ segir Alma
Hlín.
Reynir að mæta á blót
Að athöfninni lokinni var hald-
in hefðbundin veisla í Grunnskól-
anum í Borgarnesi. „Það var mjög
líkt fermingarveislu. Þarna voru
sýndar myndir af mér, ég söng
og eitthvað svona skemmtilegt,“
segir hún. Boðið var upp á mat
og hún fékk gjafir. Skreytingarn-
ar í salnum voru í ákveðnu þema
sem tengdist athöfninni af vissu
leyti. „Ég var ekki með fermingar-
kerti. Við fundum okkur stein úr
fjörunni við Hafnarskóg í staðinn
og á hann var skrifað nafnið mitt
og dagsetning. Steinar og grein-
ar voru notuð sem skreytingar á
borðunum ásamt hvítu og grænu.“
Þá var Alma Hlín einnig í hvítum
kufli með grænni svuntu.
Hún segir fáa hafa orðið hissa
yfir því að hún veldi að taka siðmál-
um frekar en að fermast kristilega.
„Fólk þekkir mig og ég vil oft vera
öðruvísi. Vinir mínir sögðu eigin-
lega ekkert, þeim fannst þetta pínu-
lítið skrítið en var samt alveg sama.
Þeim fannst athöfnin flott og þetta
var ólíkt venjulegum fermingum.
Svona athöfn tekur líka mun styttri
tíma,“ segir hún. Alma Hlín segir líf
sitt ekki hafa tekið miklum breyt-
ingum eftir að hún tók siðmálum að
heiðnum sið. „Ég reyni að mæta á
þau blót sem ég kemst á. Við pabbi
höfum áhuga á því að fara á blótin
og þetta er mjög gaman.“ grþ
Alma Hlín tók siðmálum að
hætti ásatrúarfólks
Alma Hlín ásamt Jónínu Kristínu Berg Vestlendingagoða.
Spurningin
„Hvað langar þig að fá í
fermingargjöf?“
(Spurt í Stykkishólmi)
Benjamín Ómar Kristjánsson:
„Mig langar mest af öllu í miða
á NBA leik.“
Védís Bergþórsdóttir:
„Mig langar í margt, t.d. pen-
inga, tölvu og húsgögn.“
Thelma Hinriksdóttir:
„Mest langar mig í utanlands-
ferð og helst að komast á NBA
leik.“
Lárus Thorarensen Bogason:
„Mér þætti best að fá pening,
þá get ég valið það sem mig
langar í.“
„Hvað langar þig að fá í
fermingargjöf?“
(Spurt í Ólafsvík)
Lovísa Lín Traustadóttir:
„Mig langar í utanlandsferð til
Orlando.“
Emil Steinn Clausen:
„Mig langar í ferð á Liverpool
leik.“
Vigfús Kristinn Vigfússon:
„Mig langar í pening og miða
fyrir mig og pabba til útlanda.“
Sæbjörg Jóhannesdóttir:
„Utanlandsferð til Spánar.“
@home • Stillholt 16-18 • 300 Akranes • Sími 431-1218
Kæra fermingarbarn vertu velkomin í @home og gerðu þinn óskalista.
Nafnið þitt fer svo í pott og þú getur unnið Kreafunkt þráðlausan hátalara.
Opnunartími
Mánudaga-föstudaga 11-18
Laugardaga 11-15
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Frí innpökkun
Erum á Facebook og Instagram:
gjafavöruverslunin @home